Sameiningin - 01.08.1950, Blaðsíða 16
94
Sameiningin
gefur getur þú ekki eyðilagt." Þrátt fyrir öll heimilin, sem
risið hafa upp nú á seinustu árum, megum vér ekki gleyma
að Betel er móðir þeirra allra; og móðurinni megum vér
ekki gleyma. Eg legg ykkur þetta á hjarta. Betel er þörf
á gjöfum ykkar. Nefnd verður að sjálfsögðu sett í elli-
heimilismálið.
Ýmislegt
Hinn nýi söfnuður í Cavalier, sem mun beiðast inn-
göngu í kirkjufélag vort á þessu þingi, hefir þegar fest kaup
í kirkju, sem rúmar um 170 manns í sæti; einnig fylgja
altari, prédikunarstóll, o.fl. Er söfnuðurinn í undirbúningi
með að flytja kirkjuna inn til bæjarins, setja undir hana
kjallara, og endurbæta nokkuð; og hefir söfnuðurinn þá
eina af hinum fegri kirkjum í Cavalier bæ.
Guðbrands söjnuður, við Morden, mun eiga fimtíu ára
afmæli þetta ár. Má vera að hann hyggi á fagnað í því
sambandi. Fimtíu ára starfssaga er rík af ávöxtum. Má vera
að kirkjufélagið vildi hér eitthvað leggja til málanna. Því
minni ég á það.
Víkur söfnuður, í Mountain, mun þá líka geta nokkurs
minnst, því sjötíu ára afmæli hans er nú þetta haust. Einn
með elztu söfnuðum kirkjufélagsins, á hann mikið starf að
baki, og stendur föstum fótum enn og á framtíð bjarta.
Útgáfumál
Nú hin seinni árin höfum við ekki staðið í miklum
útgáfu önnum. Seinustu rit frá okkar hendi voru „Lutherans
in Canada“ og „Rit og Ræður“. Hin fyrri er nú uppseld,
og mun féhirðisskýrsla sýna fjárhag okkar gagnvart þeirri
bók. Af síðari bókinni er allmikið upplag ennþá til. Sala
hennar mætti betur ganga. Það sem hún hefir að flytja
tapar ekki gildi sínu þó árin líði, og er jafn velkomin gjöf
nú sem þegar hún var gefin út. En ekki hafa allir ennþá
keypt þá bók sem hefðu gott af að lesa hana.
Gjörðabókin var gefin út svo sem þing ákvað, nokkru
dýrari en venjulega sökum hækkandi kostnaðar pappírs og
prentverks. Prentun hennar er eini vegurinn til að geyma
ákvarðanir og skýrslur starfsemi vorrar sem félag og kirkja.
Verður því að sjálfsögðu að gefa hana út áfram.