Sameiningin - 01.08.1950, Blaðsíða 29
Sameiningin
107
Foam Lake-Wynyard prestakall: Ágústínus, Elfros,
Immanuel, United Lutheran (Foam Lake) og United
Lutheran (Leslie) söfnuðir.
Gimli prestakall: Árnes, Gimli, Mikleyjar og Víðines
söfnuðir.
Langruth prestakall: Herðubreiðar söfnuður.
Lundar prestakall: Lundar og Lúters söfnuðir.
Minneota prestakall: Lincoln, St. Páls og Vesturheims
söfnuðir.
Mountain prestakall: Fjalla, Hallson, Péturs, Vídalíns
og Víkur söfnuðir.
Piney prestakall: Furudals söfnuður.
Seattle prestakall: Hallgríms (Calvary) söfnuður.
Selkirk prestakall: Selkirk söfnuður. Sami prestur
þjónar einnig Guðbrands söfnuði.
Silver Bay prestakall: Betel söfnuður.
Upham prestakall: Melankton söfnuður.
Vancouver prestakall: Icelandic Lutheran söfnuður.
Winnipeg prestakall: Fyrsti lúterski söfnuður.
Winnipegosis prestakall: Winnipegosis söfnuður.
Arborg, Man., 22. júní 1950.
B. A. BJARNASON
skrifari Kirkjufélagsins
Skýrsla Dagskrárnefndar
I. Nefndin leggur til, að forseta og skrifara kirkju-
félagsins sé þakkað fyrir ítarlegar og vel samdar skýrslur,
og fyrir vel unnið starf á liðnu ári.
II. Eftirfylgjandi mál leggjum vér til að verði tekin á
dagskrá þessa kirkjuþings:
1. Trúboðsmál.
2. Bindindismál.
3. Lutheran World Action.
4. Vakningarstarf.
5. Christian Higher Education Year.
6. Apportionment.
7. Yfirlýsingar og kveðjuskeyti.
8. Elliheimilin.