Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1950, Síða 17

Sameiningin - 01.08.1950, Síða 17
Sameiningin 95 Sálmabók vor hin íslenzka er óðum að renna til þurðar. Stílinn eigum vér, en hvort enn er þörf að endurprenta hana getur þingið af skýrslu féhirðis tekið niðurstöður um. Hugvekjur þingprests okkar í fyrra hafa nú nokkrir vinir hans látið prenta. Verður upplagið hér á þingi; og var hugmyndin að söfnuðir tæki að sér sölu þeirra, og að ágóðinn gengi til höfundarins þótt ekki yrði nein stór upphæð. Vona ég að söfnuðir bregðist vel við þessu. „Guð í Hjarta“ er nafn þessara hugvekja séra Rúnólfs Marteinssonar. „Parish Messenger“ kom út á árinu undir ritstjórn séra V. J. Eylands. United Lutheran Church, sem í liðinni tíð hefir styrkt útgáfuna, hætti því snemma á árinu, og mun útgáfan ekki hafa borið sig fjárhagslega. Ýmislegt var það sem síðasta þing lagði til að söfnuðir gerðu til þess að útbreiða ritið, en harla fátt af því var framkvæmt. Úrlausn verður þetta þing að finna, sem dugar. Skýrsla blaðsins mun glöggva hugi manna á þessu, þegar hún verður lögð fram. Sameiningin kom út á árinu, svo sem ákveðið var. undir ritstjórn séra S. Ólafssonar, sem hefir verið ritstjóri hennar nú nokkur ár. Mætti um hana segja, að hún sé minna háð „veðrabrigðum kaupendanna11 en hið enska rit. Hennar rætur standa djúpt í sögu vorri og starfi. Enda þótt þeim fækki eitthvað sem hana kaupa og lesa, mun komu hennar sem svarar í hverjum mánuði jafnan vera vel tekið. Hversu blaðaútgáfa vor mætti blómgast, og gilda meira í öllu starfi, er eitt af okkar aðal málum. Ef ekkert blað væri gefið út frá okkar hendi, yrðum við sem þegjandi kirkjufé- lag álíka þegjandi prédikarar. Gefið þessu einlægan hug ykkar og leysið úr því sem bezt má kristni vorri til heilla verða. Trúboðsstarf Heimastrúboðsstarf vort og heiðingjatrúboðsstarf er, eins og áður, í samvinnu með U.L.C.A. Nefnd vor leggur á ráðin og hefir umsjón með starfinu, velur menn og ræður enn á heimatrúboðssvæðum kirkjufélagsins. En kostnaður kemur úr sameinginlegum sjóði kirkjunnar, sem vér leggj- um í með gjöfum okkar til „Apportionment“ eða „Income Objective“ eða „Missions and Benevolence“ — kallið það hvað sem þér viljið.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.