Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1950, Síða 31

Sameiningin - 01.08.1950, Síða 31
Sameiningin 109 on Evangelism“, og í ritum þeirra um „Every Member Visitation“. ANNA M. JÓNASSON, MRS. CAROLINE HANSON, S. ÓLAFSSON Nefndarálit um Trúmálafundi Þingnefndin, sem falið var að athuga 14. mál á dagskrá, um trúmálafundi, leggur til: 1. Að trúmálafundir séu haldnir í söfnuðum, þar sem að það er unnt, og að vandað sé til undirbúnings þeirra af fremsta megni. 2. Að eitt kvöld á hverju kirkjuþingi sé sérstaklega helgað trúmálaumræðum, og sé eingöngu til þess varið. MRS. CAROLINE HANSON, ANNA M. JÓNASSON, S. ÓLAFSSON Nefndarálil í Úigáfumáli 1. Nefndin í útgáfumáli ræður til þess, að rit Kirkju- félagsins — Sameiningin, Parish Messenger og Gjörðabókin — séu, á næsta starfsári, gefin út á sama hátt og síðastliðið ár, með sömu ritstjórum og sömu ráðsmönnum. 2. Nefndin sér brýna nauðsyn þess, að fjölgað sé áskrif- endum beggja tímaritanna; og finnur hún það helzta ráð, að biðja alla söfnuðina að leggja hönd á það verk að útvega blöðum þessum fleiri kaupendur. Vér skorum á sérhvern söfnuð vorn að skoða þetta verk sem eitt af ákveðnum starfsmálum sínum, er honum beri að inna af hendi. Vér mælumst enn fremur til þess, að allir erindrekar þessa þings efli þetta mál af alefli. 3. Nefndin æskir þess, að sem allra flestir söfnuðir kaupi upplag af Parish Messenger, og útbreiði blaðið svo það nái til sem allra flestra. 4. Enn fremur fer nefndin bónarveg að öllum söfnuðum Kirkjufélagsins, að láta fréttir af starfi sínu birtast í Parish

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.