Sameiningin - 01.08.1950, Side 32
110
Sameiningin
Messenger eða í Sameiningunni. Vér leggjum prestunum
það á hjarta að styðja að því, að þetta komist í framkvæmd.
MRS. H. HALLSON, BARNEY STEVENSON
K. N. S. FRIDFINNSON, STEFÁN STEFÁNSSON,
RÚNÓLFUR MARTEINSSON
Tillögur Yfirlýsinganefndar
1. Svohljóðandi kveðjuskeyti leggjum vér til að for-
seti sendi fyrverandi forseta kirkjufélagsins, Séra Haraldi
Sigmar D.D.: „Þar sem Dr. Haraldur Sigmar hefir orðið að
leggja niður starf sitt í Vancouver söfnuði, sökum van-
heilsu; og þar sem hann hefir þjónað söfnuðum félagsins
í fjörutíu ár, annaðist forseta embætti félagsins í fjögur ár,
og gegndi öðrum markskonar störfum á vegum þessa félags;
og þar sem hann hefir innt af hendi gjörvöll verk sín með
dygð og góðum árangri; og þar sem hann hefir áunnið sér
virðingu og vináttu fólks vors í öllu sínu starfi: þá vottar
þingið Dr. Haraldi hluttekningu og samúð í þessu böli, og
biður Guð að gefa honum góðan bata, og mátt til meira starfs
í kirkju Krists“.
2. Svohljóðandi skeyti sendi forseti ekkju séra Friðriks
Hallgrímssonar: „Kirkjufélagið harmar fráfall séra Friðriks
Hallgrímssonar, dómkirkjuprests í Reykjavík, tjáir ekkju
hans og börnum innilega samhrygð sína, og minnist með
þakklæti hins ágæta starfs, sem séra Friðrik vann í þessu
kirkjufélagi, bæði sem prestur og kirkjufélags skrifari, svo
og fyrir ljúfmensku hans í allri samvinnu, og trygð hans við
starf og stefnu félagsins. Vér biðjum góðan Guð að hugga
og styrkja ástvini hans í hinni þungu sorg þeirra“.
3. Forseti sendi þetta skeyti fyrir hönd þingsins til
ekkju séra Péturs Hjálmssonar: „Vér minnumst með hlý-
leik og söknuði hins góða og ötula starfsbróðurs vors, séra
Péturs Hjálmssonar, og starfsins sem hann vann á trúboðs-
svæðum vorum í Alberta og víðar, jafnvel eftir að hann
misti sjónina. Vér biðjum Guð að blessa og hugga ekkjuna,
sem syrgir fráfall hins góða, trygga kennimanns11.