Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 8

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 8
6 Sameiningin sonararf, vildi ekki einn sitja að arfleifð sinnar eilífu dýrðar, heldur hlutskipta henni með oss. Það kostaði hann krossins kvöl að umbæta ófullkomleika allan þinn og bræðra þinna í syndinni. Og þegar þú horfir inn í þennan helgidóm, þá stillist gjörvallt hjartans böl. Þú getur sagt: Ég er Guðs barn og bróðir þinn, blessaði Jesú, Herra minn, náð kann mig nú ei bresta. 1 hinum pínda Jesú hefur Guð gjört lífsvandamál vor öll að sínum. Það er engin neyð framar til, sem Guð hafi ekki ofið inn í sitt skapandi, sigrandi líf, engin synd, sem hann hafi ekki afplánað, enginn dauði, sem hann hafi ekki að velli lagt. Þetta er Hallgrími, eins og öllum kristnum mönnum frá upphafi, fögnuður um að hugsa og um að ræða. Út frá afli þessarar umþenkingar sindra neistar snilldarinnar í samlíkingum, dæmum og lærdómum. Það er hin djúpa, persónulega gagntaka þessarar boðunar, sem alls staðar kyndir undir. Það er glóðin, varminn, sem andar gegn manni úr hendingum hans, þaðan er kveikimáttur, lyftiafl þessara ljóða. III. Skyldi þetta skáld ekki eiga eitthvað vantalað einnig við vora samtíð? Ekki aðeins við krossberana, harmkvæla- menn nútímans, ekki aðeins við þá einstaklinga, sem ekki valda vanda einkalífs síns eða almennra málefna, heldur við heiminn í heild, sem stendur vegvilltur og ráðþrota, vegna þess að hann lýtur svo mörgum vanmáttugum gervi- herrum, en þekkir ekki, lýtur ekki, viðurkennir ekki sinn eina sanna Drottin? Hinn trúarvissi boðskapur Passíusálmanna á erindi við alla þessa spyrjandi, leitandi, áttavilltu, föllnu menn, sem ekki þekkja neina dýpri merkingu í skuggaskiptum sögunn- ar, ekki neinn bakgrunn handan við tímans svið, þekkja ekki hjartað, sem þeirra vegna brast á Golgata, ekki hugann, sem í áhyggju kærleikans fylgist með þeim úr himnunum. Upp, upp mín sál. Innsti leyndardómurinn í áhrifamætti Passíusálmanna er sá, að þeir eru sannir. Þeir eru útlistun, boðun staðreynd- ar, innblásin af þeim anda, sem Hallgrímur ákallar að upp- hafi, þegar hann segir:

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.