Sameiningin - 01.03.1954, Blaðsíða 34
32
Sameiningin
Kirkjuþing í lok júni
Ákveðið er að sjötugasta ársþing hins ev. lúterska
kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi skuli haldið í kirkju
Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg, dagana 27.—30. júní
næstkomandi. Meðal góðra gesta þingsins verður cand. theol.
Þórður Kr. Þórðarson, frá Chicago; en eins og margir munu
minnast, var hann gestur kirkjuþingsins í Minneota 1952,
og hreif hann þar hugi manna með lærdómsríkri ræðu og
prúðri framkomu. Hann stundar framhaldsnám í guðfræði
við Chicago háskólann og býr sig undir doktorspróf. 1 þetta
sinn kemur hann ásamt konu sinni. Enda þótt þetta sé ekki
formleg tilkynning um kirkjuþing, er það væntanlega ekki
of snemmt að minna söfnuðina á að kjósa erindreka í tæka
tíð. Veltur á miklu að þeir einir séu kosnir á þing, sem hafa
bæði áhuga og hæfileika til að taka þátt í störfum þingsins,
og fara með umboð safnaðanna meira en aðeins í orði kveðnu.
Söfnuðunum ber siðferðileg skylda til að framkvæma það,
sem þeir með ráðum og atkvæði fulltrúa sinna hafa ákveðið
á þinginu, hvort heldur sem það snertir fjármál eða önnur
nauðsynjamál félagsins.
☆ ☆ ☆
Fullráðið er að séra B. Theodór Sigurðsson takist prests-
þjónustu á hendur í íslenzka prestakallinu að Mountain og
Garðar í Dakota. Er hann væntanlegur frá New York, ásamt
konu sinni og ungum syni þeirra, í vikunni fyrir páska.
Sameiningin óskar honum og prestakallinu allrar blessunar
í samstarfi þeirra, sem nú er að hefjast.
☆ ☆ ☆
Dr. Haraldur Sigmar og frú gera ráð fyrir að leggja af
stað í Evrópuferð snemma í næsta mánuði. Ferðast þau flug-
leiðis frá New York til Noregs, en þar á frú Sigmar margt
ættmenna. Á heimleiðinni fara þau til íslands, og dvelja
þar um tíma. Verða þau væntanlega viðstödd biskupsvígslu
séra Ásmundar Guðmundssonar prófessors, sem gert er ráð
fyrir að fari fram í sambandi við fund prestastefnunnar.
(Synodus). Sameiningin óskar að ferð þessara mætu hjóna
megi verða þeim til hressingar og ánægju.