Sameiningin - 01.03.1954, Blaðsíða 22
20
Sameiningin
og hin sanna þjóðrækt er í því fólgin að þroska hið sama og
geyma í göfugu hjarta.
Hvað er þá hið bezta, sem við brjóst hinnar gömlu
ísafoldar óx? Ótal margt má að sjálfsögðu nefna. Ég tel
það einkum tvennt. Ástin á landinu og trúin á Guð. Það er
því okkar hlutverk að kynda þá elda, sem bjartast hafa
brunnið, lýst og ornað þjóðinni. Það er og spá mín, að það
verði megin hlutverk ykkar hér vestan hafs að varðveita
þau verðmæti, sem þið eigið úr íslenzku þjóðerni. Vegur
ykkar mun því meiri, sem það vökustarf verður betur rækt.
Feður ykkar og mæður festu hér fyrstu rætur, öfluðu sér
virðingar og ástsældar fyrir trúmennsku, heiðarleik og
drenglyndi í hvívetna. fslendingum hefur aldrei brugðizt
trúmennska Kolskeggs, festa Bergþóru og trú Hallgríms.
Það verður því þjóðrækt, sem okkur öllum ber að leggja
stund á. Það verk verður þó eigi eingöngu unnið á þjóð-
ræknisþingi, heldur er í því fólgin almenn mannrækt.
Það er heiður hverjum manni að vera af íslenzku bergi
brotinn og á engan hátt betur getum við þakkað það, en
að rækta svo eigin sálu og framkomu alla, að ekki falli
nokkru sinni blettur á þann skjöld. Heiður íslenzks þjóð-
ernis er heiður okkar sjálfra.
III.
í Guðspjalli þessa dags er á fagran hátt sögð og útskýrð
dæmisaga um sáningu og sáðmann. Það á vel við að hugsa
um þau orð í þessu sambandi. í bráðum ellefu hundruð ár
hefur Drottinn eigi eingöngu verið íslenzku þjóðinni at-
hvarf heldur og gefið henni dýrmætar gjafir og sífellt sáð í
hjörtu landsmanna sæði því, sem engan á sinn líka, fagnaðar-
erindi Jesú Krists. Þetta sæði hefur að vísu fallið í mis-
jafnan jarðveg, en var nokkuð fremur ljós á vegum þjóðar-
innar, en birtan, huggunin og krafturinn frá orði Frelsarans.
Arfurinn mikli, þjóðernið, tungan, bókmenntirnar og trúin
er það sæði, sem sáð hefur verið meðal okkar. Hvern jarð-
veg mun það finna hjá þér, kæri áheyrandi minn? Munt þú
bera gæfu til þess að geyma það í göfugu og góðu hjarta,
og láta það bera ávöxt með stöðuglyndi og trúmennsku.
Enginn má samt ætla að þjóðrækni og þjóðrækt sé allt.