Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 9

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 9
Sameiningin 7 Ó, Jesú, gef þinn anda mér, allt svo verði til dýrðar þér uppteiknað, sungið, sagt og téð, síðan þess aðrir njóti með. Eru mörg áþreifanlegri bænasvör til en framhald þess- ara bænarorða, Passíusálmarnir og áhrif þeirra, þau not, sem aðrir hafa, sem vér höfum af því haft, er hann upp- teiknaði, söng og tjáði? Oss hefur dreymt um það, að hér risi kirkja, sem væri viðurkenning frá vorri hálfu, sýnileg játning þeirrar vit- undar, að Hallgrími hafi verið veitt sú bæn að verða Drottni sínum til dýrðar og oss til blessunar. En í orðum textans er brugðið upp fyrir oss mynd af öðrum helgidómi. Vér sjáum þar inn í hið eilífa musteri á himni. Vér eygjum hásætið, sem alheimur lýtur og umhverfi þess. Vér sjáum takmarkið, sem pína Jesú hefur markað oss og allri tilveru. Vér heyrum enduróma af tilbeiðslunni í hinum eilífa, himneska heimi, og hún snýst öll um hið sama og Passíusálmarnir, hún er um Lambið hið slátraða, Guðs- lambið, sem ber burt synd heimsins. Þar lofsyngur kirkjan í dýrðinni. Og öll sköpunin tekur undir og auðsýnir hinum krossfesta hollustu sína og lotningu, minnist Herrans pínu sem dýrasta og sælasta þakkarefnis um eilífðir eilífðanna. Harpa Hallgríms var stillt inn á sömu bylgjulengd. Þess vegna eru ómar hennar svo tærir, vissir, sannir. Vér höfum ekki aðeins enduróma frá hinni himnesku guðsþjónustu í 25. Passíusálminum og í síðasta versi sálm- anna, sem vér endum á hér í kvöld, eins og endranær á dánardægri Hallgríms. Passíusálmarnir eru allir endurvarp frá lofgjörð himnanna, eins og allt annað, sem satt er flutt og tjáð í kirkju Krists. Vitnisburður Jesú er andi spádóms- gáfunnar (Op. 19,10). Hinn jarðneski, kristni söfnuður, sem safnast umhverfis altarið, þar sem Drottinn nálgast oss með áþreifanlegu móti í líkingu kvöldmáltíðarefnanna, á frummynd sína og fyrir- mynd þar sem er þessi himneski, dýrðlegi söfnuður engl- anna og þeirra, sem fyrir blóð Lambsins blíða eru búnir að stríða og unnu sigurinn, þáðu sigur Krists.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.