Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 18

Sameiningin - 01.03.1954, Qupperneq 18
16 Sameiningin Séra Bragi Reynir Friðriksson, Lundar, Man.: Þjóðrækt og Guðrækni ræða flutt suíinudaginn 21. febrúar 1954 í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg „Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns“. (S. 90, 1. v.) Ég nefni þessa ræðu mína „Þjóðrækt og Guðrækni“. Þetta tækifæri gefur mér tilefni til að ræða þessi merku og miklu efni sameiginlega. Ég hef einnig ákveðinn tilgang í huga. Blátt áfram vil ég sýna og leitast við að sanna með dæmum og tilvitnunum úr sögu þjóðarinnar báðum megin hafsins hið nána samhengi þessara þátta í skaphöfn og lífi íslendinga. Þetta er að færast mikið í fang, en sú er einlæg og ákveðin skoðun mín, að þessi lækurinn verði aldrei bakkafullur. Menn ættu altíð að leitast við að lyfta ein- göngu „Grettistökum“ í þágu þjóðernis og Guðrækni. Það er oft litið til fornaldarinnar, þegar íslendingar vilja efla og styrkja þjóðarhug og metnað sinn. Landnáms- og söguöldin er sem bjartur og fagur morgunn á sögudegi þjóðarinnar. Það er árfögur birta yfir nöfnum og sögnum þessa tímabils, og án efa hefur sá bjarmi magnast á þeim tímum, er myrkur grúfði svo lengi og átakanlega yfir högum og hugum landsmanna. í öllu mati á mönnum og málefnum felst ein hætta. Röng ályktun og ofmat er stundum valdur þess, að einrýnt er um of á aðra hlið málanna en hin vanrækt, er og hefur sína sögu að segja. Þetta hafa íslendingar ekki ávallt haft í huga. Allir þekkja söguna um Gunnar kappa á Hlíðarenda og Kolskegg bróður hans. Skilnaður þeirra við Markarfljót er hinn örlagaríki hápunktur sögu þeirra. Þar segir Gunnar: „Fögur er hlíðin, svá at mér hefr hon aldri jafnfögr sýnzt, bleikir akrar og slegin tún, ok mun ek ríða heim aftr ok fara hvergi“. Mörgum finnst, að betur verði ekki í orðum lýst sannri ættjarðarást, enda hefur Gunnar löngum verið ástmögur þeirra, sem unna fornum dug og drengskap. Þegar Njála er betur í kjölinn lesin þá má einnig líta á þetta frá annari hlið. Svar Kolskeggs, er Gunnar reynir að fá hann til að verða eftir heima, er athyglisvert. „Egi skal

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.