Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1954, Page 29

Sameiningin - 01.03.1954, Page 29
Sameiningin 2? og er svo til ætlast að söfnuðirnir deili hver sinni upphæð á meðlimi sína, og sjái um að þetta gjald sé greitt. Fjárhags- áætlun síðasta kirkjuþings nam $10.000. Fljótt á litið virðist þetta vera há upphæð, en í reyndinni nemur þetta aðeins 10 centum á viku fyrir hvern starfandi meðlim, sem nú telst til safnaða félagsins, eða $5.20 á ári. Þegar þetta er ritað, er aðeins lítill hluti þessara safnaðargjalda, kominn í hendur féhirðis. Hvað veldur þessu fálæti í kirkjulegum fjármálum okkar? Fátækt, mundu sumir segja. Ef það er fullnaðarsvar, þá er ekki mikið við því að segja. En ef við erum svo fátæk, að við getum ekki tekist neina verulega samfélagslega ábyrgð á herðar, þá ættum við að gera okkur það ljóst á kirkjuþingum, en ekki að eyða tíma okkar í að semja og samþykkja kirkjuþingaákvarðanir, ef engin veruleg alvara fylgir máli. Við ættum að gera þau heit, og þau loforð ein- göngu, sem við ætlum okkur að standa við; það eitt getur talizt heiðarlegt. Sundrung og sinnuleysi, mundu aðrir segja að væri sanni nær. Samkvæmt kenningu Krists erum við, allir menn, ráðsmenn yfir gjöfum Guðs. Enginn hefir neitt það, sem hann hefir ekki þegið að láni, hvort heldur það eru fjármunir eða hæfileikar. Nú er þess vænst af ráðsmönnum að þeir séu trúir, og að þeir skili því aftur, sem þeim er falið til gæzlu. Af því, sem að ofan greinir, virðist mega ætla að hin kristilega ráðsmannshugsjón sé enn sem komið er harla vanþroska hjá okkur að því er fjármál snertir til kirkju- legra þarfa. Þá kemur það til greina, hvort meinsemd kirkjufélagsins sé fyrst og fremst skortur á andlegri leiðsögn og kristilegri uppfræðslu. Nú eiga prestarnir að vera andlegir leiðsögu- menn og uppfræðarar safnaðanna, og þeir eru það, hver eftir getu sinni og hæfileikum. En prestarnir eiga erfiða aðstöðu að mörgu leyti. Flestir þeirra eru illa launaðir, og eiga sína tímanlegu velferð undir velvild safnaða sinna. Ef heilsa þeirra bilar, eða dauðinn kallar þá, eiga fjölskyldur þeirra fá fjárhagsleg úrræði. Undir þeim kringum- stæðum er þess naumast að vænta, að þeir beiti sér fyrir málum, sem þeir vita fyrirfram að eru óvinsæl hjá forráða- mönnum safnaða sinna. Kirkjufélag okkar er myndað af

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.