Sameiningin - 01.07.1929, Blaðsíða 12
202
ur gleði; því eg sé þau ÖLI í and'a nú, himinglöð og fagnandi með
oss á þessa'ri ljúfu stundu, og eg veit að innan skamms rætist trúar
innar dýrlegi draumur, og sú kemur stund, aði
“Við mér blasa engil-andlit blið
sem els'kað hefi’ eg lengi, en núst um hríð,”
því Guðs hús er eitt og hið sama á himni og á jörðu.
B. B. J.
“Bryan bróðir”
Eftir William L. Stidger.
Kirkjuþing fjölment stóð yfir í Birmingham fyrir nokkrum
árum. Það var einhvers konar starfsmála þing. Ekkja dr. George
Stuarts, trúboðans alkunna, sagði ntér, að “Bryan bróðir,” hefði
l’tt kunnað við sig á stefnu þeirri. Hann sat i gegnum heilan
morgunfund og hlustaði á endalausar ræður, skýrslur og grein-
argjörðir, en í hádegis-rofinu laumaðist hann burt, á meðan fund-
armenn sátu að dagverði og bjuggu sig undir aðra brýnu 'jafn-
ianga síðdegis.
Hánn gjörði dr. Stuart grein fvrir ferðum sínum á þessa
leið: “George, eg þoldi eld<i lengur við þar inni á þessari starfs-
mála-stefnu, hún var svo langdregin og sviplaus. Eg laumaðist
út og tók mér bita með daglaunamanni, sem eg þeklci yfir á verk-
stæðinu. Við sátum á gangstéttarskörinni og stýfðum nestið úr
matarskrínunni hans; eg baðst fyrir með honutn og hann gaf
Drotni hjarta sitt. Eg hefi setið urn hann, þorparann, í marga
mánuði. Hánn slæðist af og til i kirkju. Eg var að hugsa um
hann allan morguninn þar í fundarmálamærðinni. Allir voru
þar að tala um að frelsa fólkið í stór-hópum, og þaö er vitaskuld
ágætt. En eg var alt af að hugsa um Jim Rjuggles, Eg gat ekki
komið honum burt úr huga minum. Eg vissi hvar hann var vanur
að borða miðdegisbitann sinn; og svo laumaðist eg þangað og
fann hann fyrir Drottin. Og nú held eg að eg þoli við í gegn um
annan fund, með Guðs hjálp.”
Hann er hár vexti, gráskeggjaður, bláeygur, grannvaxinn;
gengur alt af í svörtum frakkafötum með hvitt hálsbindi, eins og
siðvenjan skipar fyrir, og þó hefi eg aldrei séð kennimann jafn
laiusan við gamlar venjur.
Hann útskrifaðist úr Princeton prestaskólanum um það leyti,
þegar Woodrow Wlilson gjörðist kennari þar; og hélt hann uppi
kunnings'skap við styrjaldar-forsetann á meðan þeir lifðu báðir.