Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1931, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.09.1931, Qupperneq 10
264 Skapari náttúrunnar og faÖir mannanna hafði útbúið veröld- ina með allsnægtir. Hann ætlaðist til, að mennirnir, synir sinir, skiftu þeim bróðurlega milli sín. Staðhættir og aðrar ástæSur ollu því, að nauðsynjar lífsins voru framleiddar að miklu leyti sín á hverjum stað, og ætlast var til, að mennirnir hjálpuðust að til að gera sér alla jörðina undirgefna. Þetta hafði það í för með sér, að nauðsyn ber til þess, að menn skiftist á því, sem þeir framleiða úr skauti náttúrunnar. Enginn hlutur ber fremur vott um spillingu i manneðlinu en þaö, hve snemma fór að bera á ójöfnuði í viðskiftunum. Framan af skiftust menn á hlutunum, eða vörunum, sjálfum, og virtu hvern hlut til móts við annan. En af því viðskiftin voru á þann hátt oft erfið og þunglamaleg fundu menn það upp til hægðarauka, að koma sér saman um við- skiftamiðla, eða peninga. Skildi hver peningur hafa gikli til inn- kaupa miðað við verðmæti hlutanna, sem menn skiftust á. Átti peningurinn aðeins að vera skírteini eða vottorð þess, að hand- hafinn ætti og hefði lagt fram í munum eða vinnu það, sem svar- aði til gildi peningsins. Mátti þetta framfaraspor telja í viðskifta- lífi mannanna. En von bráðar fór að bera á því, að sumir menn hefðu komist upp á, að ná peningunum í sínar hendur, án tilverkn- aðar. Ágerðist það ár frá ári, unz það varð sem ný íþrótt, eða atvinna, að henda peningana á lofti, þar sem þeir gengu milli seljenda og kaupenda náttúrulegra lifsnauðsynja. ' Urðu sumir menn listfengnir í þvi að ná peningunum á lofti, eins og þeir er knöttinn grípa á lofti á flugferð hans milli hafna í knattleik, og til þess lærðust mönnum margskonar brellur og sjónhverfingar. Fór svo, og er nú svo komið, að tiltölulega fáir menn einir hafa náð í sínar hendur mestum hluta peninganna í allri veröldinni. Þjóð- irnar hafa verið rændar viðskifta-ihiðlinum; aflið vantar þvi til verklegra framkvæmda; annarsvegar eru hrúgur matvæla og lífs- anuðsynja, sem í sumum stöðum er nú farið að sökkva í sjó og brenna á báli, en hinsvegar eru skarar hungraðra, klæðlausra, skýlislausra manna, kvenna og barna; mannkyniS svo krept í bóndabeygju, að það getur hvorki selt né keypt, því kaupeyri er innilokaður í öryggisskápum peningakónganna. Hjá þeim verða nú allar þjóðir að éta úr hnefa, svo að j<ifnvel voldugasta þjóð veraldarinnar liefir undanfarna daga skolfið á beinunum, unz fjárhaldsmenn heimsins í New York og París opnuðu skápa sina og lánuðu henni nokkur þau miljóna hundruð, sem þeir hafa í varðveizlu sinni. Má því segja, að svo sé komið, að fáeinir auðmenn á höfuðbólum auðæfanna, hafi nú þjóðir heims á sínu valdi og ráði örlögum mannkynsins. Þriðja ræningjann höfum vér og komið auga á, þann, er

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.