Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1931, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.09.1931, Blaðsíða 30
284 einhverjum að komast upp á við; eða hún væri að reyna til að rýma til fyrir einhverjum öðrum. Hvað annars eru æðstu sætin á himnum? Eg veit, að við keisarahirðina eru æðstu sætin þau, sem eru næst keisaranum. Kjörfurstarnir skipa sér þétt umhverfis há- sætið. En er það mögulegt fyrir nokkurn, að honum líði vel og að hann sé algerlega rólegur, ef hann stæði svo nærri almættinu ? Það sýnist svo fjarska erfitt að géra honum til geðs í þessu lífi, en afar-mikil hætta á því að styggja hann. Eg held manni liði betur, ef maður væri dálítið frá honum, helzt í dálitlum krók ná- lægt hliðinu, þar sem væri kyrt og rólegt, og margir heilagir stæðu á milli okkar. Það var hérna um daginn, að faðir Kristófer lagði á mig þunga syndarefsingu fyrir að missa mola af oblátu, þó eg gæti ekki betur séð, en það væri sök prestsins, eins mikið og mér að kenna. Hann sagði, að Guð yrði mjög reiður, og F'riðrik sagði mér, að prestarnir föstuöu og píndu sig iðulega mjög fyrir að hlaupa yfir eitt orð í messunni. Eg er hrædd við myndina af Drotni Kristi, þar sem hann heldur á eldingunni, en hún er ekki lík útskornu myndinni af honum, þar sem hann er á krossinum. Því þurfti hann að líða svona mikið? Leið hann þetta til þess að geta komist að æðra sæti í himnaríki, eins og Agnes frænka, eða gerði hann það til þess að geta verið vandlátur við okkur, eins og hún? Þetta virðist, þótt undarlegt sé, móðga Guð og þóknast honum. — Eg skil ekkert í þessu, en það er vegna þess, að eg finn enga köllun hjá mér viðvíkjandi trúarefnum. Mamma segir, að þeir, sem eru í klaustrunum, verði alt af meir likir Guði og skilji hann þess vegna betur en eg geri. Er þá Agnes frænka líkari Guði en mamma? Andlit hennar er rólegt og fölt eins og dauðinn; augun köld og hörkuleg ; röddin tilbreytingalaus og hás, eins og hún kæmi úr málmhólk eða úr grafhvelfingu, en ekki frá mannlegu brjósti. Ætli Guð komi til okkar og tali við okkur með þeirri rödd? Satt að segja er óttalegt að hugsa um dómsdag. Maður verður að vera mörg ár í klaustri, áður en maður hættir að hræð- ast að fara til himins. Eg vildi bara, að mamma væri ein af þessum helgu mönn- um, og að svoleiðis konur væri Guði þóknanlegar, en ekki kon- ur eins og Agnes frænka, þá væri gleðilegt að reyna til að verða heilagur. Og þá mætti maður hafa fulla von um það, að komast til himins, og þá gæti maður líka verið viss um, að manni liði þar vel.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.