Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1931, Qupperneq 34

Sameiningin - 01.09.1931, Qupperneq 34
288 Ur heimahögum Bandalag kvenfélaga innan kirkjufélagsins átti fundi að Langruth dagana io.—12. júlí. Hefir funda-skýrsla veritS birt í “Lögbergi” og má til hennar vísa. í sambandinu eru nú 14 félög og sendu þau flest fulltrúa til fundarins. AÖallega lágu þrjú mál fyrir til umræðu: 1. Sunnudags-skóla mál, og í því sambandi skýrslur um starf íslenzkra ungkvenna að kristilegri fræÖslu í ný- lendum Islendinga; 2. Friðarmál, með hugleiðingum um horfur og hag þeirra mála hjá þjóðunum nú; 3. Bindindismál, með hvatn- ingu um starfsemi kristinna kvenna heima fyrir í söfnuðum gegn spillingu ofdrykkjunnar. Voru vönduð erindi flutt um öll þessi mál og þau rædd á fundunum. Þá var og erindi flutt um hjúkr- unarstarf kvenna og ef til vill önnur erindi fleiri. V el er látið af viðtökunum í Langruth og þeirri athygli, er fundirnir vöktu þar í sókninni. Hafði gestunum verið skemt á marga lund og viðdvölin verið mjög ánægjuleg. Þessar konur skipa embætti félagsins næsta ár: Forseti, frú Guðrún Johnson, Winnipeg; vara-forseti, frú Halldóra Anderson, Baldur; ritari, ungfrú G. Markússon; vara-ritari, frú Jóna Sig- urðsson, Árborg; gjaldkeri, frú Þjóðbjörg Henrickson, Winni- peg; vara-gjaldkeri, frú B'. Bjarnason, Langruth. All-mikið hefir starfað verið á þessu sumri að kristindóms- boðskap út um prestslausar bygðir. Séra Haraldur Sigmar dvaldi mánaðartíma vestur i Vatnabygðum í Saskatchewan og þjónaði þar þann tíma sínu gamla prestakalli. Snemma í ágúst fór séra N. Steingr. Thorlaksson þangað vestur og þjónar þar út September mánuð. Séra Jónas A. Sigurðsson hefir vitjað safnaðanna í Swan River og Foam Lake. Guðfræðanemi Jóhann Friðriksson starfaði í tvo mánuði í bygðunum umhverfis Manitoba-vatn og viðar. Þá hefir og séra Rúnólfur Marteinsson vitjað nokkurra safnaða. Þrír ungir Islendingar hafa á þessu hausti byrjað guðfræða- nám við prestaskóla Pacific-sýnódunnar i Seattle. Er séra Kristinn K. Ólafsson einn af kennurum skólans og mun það hafa verið námsmönnum þessum hvöt til þess að leita þangað. Mennirnir eru: Jóhann Friðriksson, hefir hann áður lesið guðfræði við Biblíuskóla Norðmanna í Grand Forks; Theodor Sigurðsson, son- ur séra Jónasar; og Bjarni Bjarnason, sonur séra Jóhanns. Jóns Bjarnasonar skóli var settur þann 16. september með venjulegri athöfn. Er aðsókn að skólanum með langmesta móti, einkum hérlends fólks. —B. B. J.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.