Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1931, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.12.1931, Qupperneq 20
370 mannfélagsmálin og viÖ eilífðarmálin. Stundum mun fastan vera slík stund í lífi ýmsra einstaklinga, stundum líka þakkarhátíÖin eÖa þaÖ tímabil ársins. En engin stund virÖist þó eÖlilegri til þess að leiða menn með djúpri alvöru að slíkum athugunum, en ára- mótin. Við þessi áramót, sem nú nálgast, stöndum vér andspænis þessu öfugstreymi og þessum erfiðleikum, sem á hefir verið minst, jafnframt því að standa andspænis mörgum öðrum umhugsunar- efnum, sem við höfum oft áSur horfst í augu við. Hvernig eigurn vér þá að nálgast það umhugsunarefni ? Og hver á niðurstaðan hjá oss að verða? Oss verður það sjálfsagt fullljóst, að nú eru tímar sérstakra erfiðleika, fátæktar og skorts, sem skapast af óeðlilegum ástæðum, sem oss virðist að ætti að vera auðvelt að lagfæra, þó að þaö gangi svona illa. Búast má við að ýmsum kunni að finnast, að þeir hafi fyrir færri gjafir að þakka en stundum fyr. Þó er Guði fyrir lífið að þakka og fjölmargar gjafir,—heilsu, gleði og náð á náð ofan. Skyldum vér ekki líka geta fundið hjá oss hvöt til að þakka honum fyrir lexíur baráttunnar og örSugleikanna ? Það væri sigur í slíkri afstöðu. Og ef við eigum vonina og trúna í hjartanu, meg- um við þakka Guði fyrir þá náð. Því þar er örugg hjálp til að sigra örðugleikana. Sjálfsagt er að vér verðum nú að fara á mis við margt. Ekki einasta það, er vér höfum kallað munað, heldur líka það, sem vér höfum tamið oss að nefna nauðsynjar. Það verður margt erfið- ara en áður fyr. Ekki þurfum vér þó að sleppa trúnni, ekki þurf- um vér að glata voninni, ekki þurfum vér að kasta burtu frá oss sigurvissunni. Vér getum sjálfsagt ekki gjört eins mikið og stundum fyr til að hjálpa bágstöddum, gleðja mædda, og hjálpa fram góðum fyrirtækjum. En þó getum vér miklu orkað í þá átt með góðum vilja. Engin stór spor til framfara og þroska, er líklegt að vér stígurn nú á yfirstandandi tíð, í sambandi við félagsmál vor og íélagsstörf. En vér getum vel haldið i horfinu, ef viljinn er góð- u'r. Um leiö og vér ]jví hneygjum höfuð vor auðmjúkir um áramótin til að þakka velgjörðirnar, kærleikann og náðina alla, skulum vér heita Guði vorum því, og heita oss sjálfum því líka, að berjast áfram í bjartsýni, nægjusemi og trú, með vopnum Guðs og i anda Jesú Krists til sigurs fyrir sjálfa oss og aðra á komanda ári.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.