Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 10

Sameiningin - 01.01.1925, Síða 10
4 steig í hásætiö. Efnishyggjan settist að völdum. Úrlausu alls átti aö vera i efninu. EfniÖ var sjálfs sín Gu'Ö, sjálfs sín skap- ari, sjálfs sín eilífa líf. Svo konr afturkippurinn. Og nú, er vsindaleg þekking hefir stigið fram risasporum nýjum, svo aÖ aldrei hafa þvílík verið, þá fer hugsandi mönnum svipað eins og öldungaráðinu í Róm forðum, er það sendi eftir Cinneinnat- usi, er þá hafðist við uppi í sveit og fór plógjárni um sáðlönd sín, bað hann hverfa aftur til Róm hiÖ bráðasta og taka við stjórnartaumunum, því öldungaráðið væri ráðþrota. A sama hátt leita nú sendiboðar skýrustu hugsana á fund andans og biðja hann taka aftur stjórnvölinn í liönd, því efnishyggjan sé upp- gefin. Er leitað var betur i efninu, og rannsa'kaö var lögmál orkunnar, sáust hvarvetna spor alviturs, almáttugs anda. Er menn komu að háfjöllum tilverunnar og spurðu: “Hver vann hér svo að með orku ?” koni svar, sem eigi varð á rnóti mælt: "Drottins hönd þeirn vörnum veldur.” Og hugur mannsins dró skó af fótum og söng: “Fyrir þinni hægri hönd—”. Ef til vill léti jrað undarlega í eyrum sumra manna, ef sagt væri, að hliðstæð saga þeirri, er nú var lýst á sviði vísindalegr- ar framþróunar, gerðist einnig innan kirkjunnar. Fjarstæða væri það samt ekki. Að vísu leyti má segja, að trúar-hugsanir kristinna manna leiti nú út úr efninu til andans. Þá er efnis- hyggjan sat að stóli í umdæmi vísindalegra efna, sat og að stóli í kirkjunni einskonar efnishyggja. Kirkjan b.eitti allri orku til þess að rannsa'ka og verja efnið. En svo er hér nefnt það alt, senr tilheyrir umbúðum þeim, sem sannindi trúarinnar hafast við í: bókin helga sjálf, kirkjusagan, erfikenningar og játn- ingar kirkjuflokkanna. Af miklum lærdómi keptust lærifeður kirkjunnar við að rannsaka þessi efni á alla vegu. Upp úr því varð trúin í rauninni hálf-efnisfræðileg. Menn spunnu úr efn- inu vísindalega greinargjörð fyrir kennisetningum og skoðun- um, en hvort sem úr því varð “rétttrúnaður” eða “villitrú”, þá var sú “trú” í rauninni nreira eða minna skynsemistrú—• rationalisme. Það verður ekki með rökum hrakið, að það eru straum- hvörf um þessar mundir hvarvetna i kirkjunni. Nú leita menn úrlausnar fremur í anda en í efni trúarinnar. Þaö varöar ekki jafn-miklu máli sem áður, hver trúarjátningin það er, hver kirkjudeildin það er, hvers manns útskýring það er, sem farið er eftir. En menn sækjast ótrúlega mikið eftir því, sem er andi og líf. Það má vera, að menn láti sig ek'ki varða jafn-mikið og

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.