Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1925, Page 13

Sameiningin - 01.04.1925, Page 13
107 félag. Var þaö rétt aíS hlaupa af stokkunum, en horfur virtust góðar um framtíS þess. 'Meðan eg dvaldist vestra, andaðist, á spítala í Olympia, Sig- ríður Sumarliðason, dóttir Sumarliða Sumarliöasonar gullsmiðs. Var hún ógiftur kvenmaður um fimtugt. Hafði verið heilsu- biluö þrjú síðustu árin. Var fríðleiks- og myndar kvenmaður og gædd yfirburða mannkostum. Er hún sjötta barn Sumarliða, sem dáið hefir síðan hann fluttist vestur að Kyrrahafi. Sumar- liði er nú hálf-tiræður, og búinn að vera blindur í allmörg ár. Helga kona hans hefir borið með honum byrðarnar eins og hetja. Tilhneigingu, hefði eg haft til þess aö minnast ýmsra manna, sem eg kyntist i þessari ferð, en það mundi að nokkru leyti verða endurtekning þess, sem eg ritaöi fyrir þremur árum. E'kki get eg þó stilt mig um að geta þess, að mér veittist sú ánægja, að sjá Gunnar Ervin Johnson, seytján ára unglinginn, sem er átta fet á hæð. Jakob Bjarnason, lögregluliðsforingi, var með mér, og er hann talinn að vera vaxinn úr grasinu, en hann getur staðið í 'handarkrika Gunnars, Á heimili Jakobs Bjarnasonar kyntist eg öðrum Islending, sem á óvanalega sögu. Var það Capt. Kristján Guðmundsson. sem nú er til heimilis í Wenatchee í Washington-ríki. Hann var fyrir skipi, ;sem fór með matvöru frá Alaska til Síberíu árið 1920, ef eg man rétt. Skifti hann matvörunni fyrir skinnavöru, og ætlaði að leggja aftur til hafs. Var hann þá sakaður af stjórn Bolshevika um að vera sjóræningi, og átti að' aka af honum allan varninginn. Varð hann nú að ferðast 1500 mílur inn í landið til að standa fyrir máli sinu, og varð sú ferð rík af æfintýrum. Að hann fékk haldið lífi og 'komist aftur til Ameríku, er litt skiljanlegt. tlarðfylgi mannsins og áræði hafa orðið honum að liði. En ekki ber hann Bolshevikum • söguna vel. í tvö ár var hann í þessum leiðangri, og hefir. hann frá mörgu að segja. Hann er að skrifa bó!k um ferðina, og auk þess er hann nú á fyr- irlestraferð um vesturhluta Bandaríkjanna undir umsjón Chata- qua félags. Það er von á því, að bók hans komi út á komanda hausti. Kennarar við háskólann í Washington-ríki hafa kynst frásögu Capt. Guðmundssonar og álíta hana stórmerkilega. Mun margan fýsa að eignast bókina og lesa, er hún kemur út. Meðan eg dvakli í Seattle, skrapp eg snöggvast norður til

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.