Sameiningin - 01.04.1925, Side 14
108
Blaine. Var einn sólarhring í ferÖinni. Sérstaklega langaÖi
mig til að hitta séra Halldór Johnson, sem þar er þjónandi prest-
ur, og aðra kunningja. Séra Halldór er búinn aö vera prestur
í Blaine hálft annað ár. Hann þjónar einnig á Pt. Roberts.
Mun hann njóta almennra vinsælda í prestakalli sínu, og vera að
gera þar mjög gott starf. Hefir fólkÖ þar reynst honum mjög
vel í sorgarreynslu þeirri, er hann varð fyrir, þá er kona hans
lézt. — Tíminn var altof naumur í Blaine, og varð eg aS sleppa
því a<5 fara út á Pt. Roberts og til Vancouver.
K. K. 0.
------o-----
Kirkjurækinn efunarmaður.
ÞaÖ er ekki nema sjálfsagöur hlutur, aS kristnir menn
sé áhugasamir um málefni kiúkjunnar og leggi rækt við helg-
ar tíÖir. Þó fara þessir hlutir misjafnlega hjá mörgum, sem
bera kristiS nafn, vitanlega. Ætti ;því játendur trúarinnar aÖ
geta gjört sér góða hugvekju úr oröum og breytni trúleysingja,
sem telur sér bœði gagnlegt og skyldugt, eigi aö eins að liðsinna
kirkjunni með fégjöfum, heldur og aö taka drjúgan þátt í
kirkjustarfinu og sækja guðsþjónustur á hverri helgi
Blaðið Worlds’ Work flutti ritgjörð frá slíkum manni ný-
lega Greinarhöfundurinn játar það hispurslaust, að hann sé
efasemdamaður, sem fáu trúi, og ekki geti skrifað nafn sitt
undir neina kirkjujátningu. Hann hefir verzlunarstörf að at-
vinnu, feröast mikið og hefir margt fyrir stafni; auk þess há-
mentaöur og bókamaður mikill. Þó lætur hann ekkert af þessu
koma sér til að afrækja messusókn eða safnaðarstörf. Mað-
urinn er i sérstökum skilningi betri kirkjumaður, en margir
þeir, er óhikað játa kristna trú. Ekki lætur hann nafns síns
getið, en ritstjóri blaðsins staðfestir lýsinguna meö eigin orðum
Hvernig gjörir nú maður þessi grein fyrir afstöðu sinni
við 'kirkju og kristindóm? Fyrst og fremst er hann alinn upp
á kristnu heimili, undir ströngum, kalvínskum trúaraga. Hefir
því rótgróna tilhneigingu til að sækja guðsþjónustur, og hygg-
ur hann, að það stafi meðfram frá gömlum barns-vana, eða
geti jafnvel veriö nokkurs konar arfgeng eðlisávísun, þar sem
forfeður hans voru kirkjumenn miklir öldum saman.
- Snemma segist hann hafa gjörzt vantrúaður á kalvínska
guðfræði, en finnur þó hins vegar, að andrúmsloftið kristilega.
sem hann ólst upp í, hafi verið mjög svo heilsusamlegt og gefið