Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1925, Blaðsíða 24

Sameiningin - 01.04.1925, Blaðsíða 24
118 Á þessu ári eru liÖin ioo ár, síÖan útflutningur hófst veru- lega frá Noregi til Ameríku. Hafa frændur vorir af norskum ættstofni hér í álfu gert mikinn viÖbúnaö til 'þess aÖ minnast þessa aldarafmælis á viÖeigandi hátt, eins og getiÖ hefir veri‘5 um í “Sam.” ASal hátíöahaldiö verður i St. Paul frá 7. til 9. júni, á sýningarsvæði Minnesota-ríkis. Þing sitt heldur svo norska kirkjan í Ameríku frá 9. til 14. júni í St. Paul. Ung- mennafélög þeirrar kirkju halda þing sitt í Minneapolis frá 6. til 9. júní. Um ýmislegt fréttnæmt er aÖ geta í sambandi við þetta há- tíöaha’.d. Forseti Bandaríkjanna, Calvin Coolidge, flytur erindi við hátíðahaldið þann 8. júní. f för með 'honum verða, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, Frank B. Kellog, og Peter Norbeck frá Suöur-Dakota, meðlimur í öldungadeild sambandsþingsins í Washington. Búist er viS, að hátíðina sæki fulltrúar frá stjórn- um Canada og Noregs, samkvæmt boði til beggja framvísuðu af stjórninni í Wíashington. Þing Bandaríkjanna hefir beimilað sérstök frímerki, tveggja centa og fimm centa, í minningu um aldarafmælið. Einnig hefir það heimilað, að slegnar séu 40,000 medalíur, er sýni fund Ameríku árið 1,000. Eiga þær aS vera áttkantaðar í lögun og á stærð viS 50 cent í Bandaríkja mynt. Biskup Eunde frá Oslo verður á hátíðinni, sækir þing norsku kirkjunnar og ferðast svo víðsvegar til að heimsækja mentastofn- anir og söfnuði Norömanna. Dr. F. Melius Christiansen, snill- ingurinn heimsfrægi viö St. Olaf College, hefir verið fenginn til að semja söngljóö og lag við hátíðasöngva, er syngja skal víðsvegar i kirkjum Norðmanna hér í landi sunnudaginn 5. júlí. Má bú- ast við því, að það verði tilkomumikill hátíðarsöngur. Svo verð- ur þann 9. okt. í haust sérstakt hátíSahald í New York-borg, því þá einmitt eru liöin 100 ár síðan norska skipið “Restaurationen” lenti þar meS fyrsta norska innflytjenda hópinn. K. K. Ó. ---------------------------o------- Séra Fnðrik Hallgrímsson. Séra Friörik Hallgrímsson kvaddi söfnuSi sína í Argyle á páskum. Var þá sameiginleg guðsþjónusta flutt í elztu og stærstu kirkju prestakallsins, kirkju Frelsissafnaðar. Að lok- inni guðsþjónustu var haldin samkoma í sal þeim, sem þar stendur rétt hjá kirkjunni. Voru prestshjónin og börn þeirra kvödd þar af safnaðafólkinu með miklum kærleika. Leyst voru þau út með dýrum gjöfum: .silfur-borðbúnaöi ágætum og fé-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.