Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 2
26. mars 2011 LAUGARDAGUR2 MENNING Stefnt er að því að allar Íslendingasögurnar komi út í nýjum þýðingum á norsku, dönsku og sænsku árið 2012. Útgáfan var kynnt á kynningarfundi á Hótel Loftleiðum í gær. Um er að ræða umfangsmesta þýðingarverkefni í sögu íslenskra bókmennta, jafnvel í heiminum að mati Jóhanns Sigurðssonar, útgef- anda hjá Sögu forlagi, sem stendur að verkefninu. „Við þekkjum að minnsta kosti engin dæmi um verkefni þar sem heil bókmenntagrein er þýdd yfir á þrjú tungumál í einu.“ Útgáfan fylgir í kjölfar heildar- útgáfu sagnanna á ensku frá 1997 en sú þýðing liggur einnig til grundvallar þýskri þýðingu Íslendasagnanna sem kemur út í tengslum við bókamessuna í Frankfurt í haust. Ákveðið var að ráðast í heildar- þýðingu Íslendingasagnanna yfir á Norðurlandamálin árið 2004. Fyrstu árin fóru í fjármögnun verksins undir forystu Jóhanns. Fyrsta styrkinn fékk verkefnið frá Alþingi 2007 og fóru hjólin þá að snúast. Gerðir voru samningar við ríflega 60 manns, sem vinna að þýðingunum og hafa sérstakir rit- stjórar verið ráðnir í hverju landi. Efnahagshrunið setti aftur á móti strik í reikninginn. „Við vorum langt komin með fjármögnun þegar hrunið reið yfir. Þá misstum við bæði bakhjarla, sem sáu sér ekki fært að standa við sitt og hrun krónunnar varð til þess að samningar við þýðendur og rit- stjóra hækkuðu um helming,“ segir Jóhann, en heildarkostnaður verks- ins er um 200 milljónir króna. Brugðist var við með því að leita til stofnana og fyrirtækja á Norðurlöndum, sem Jóhann segir að hafi brugðist vel við, auk fyrir- tækja hér heima sem leggja verk- efninu lið. „Fjármögnunin er mjög langt á veg komin; við erum ekki alveg komin fyrir vind en sjáum í mark. Þar skiptir ekki síst máli að þetta er gert af bullandi hugsjón rit- stjóranna og fleiri sem að þessu verkefni standa.“ Nú stendur yfir viðamikill yfir- lestur á þýðingunum, samræming og annar frágangur á atriðum á borð við kveðskap sagnanna og þekktustu orðtök. Útgáfustjóri norrænu þýðinganna er Gísli Sig- urðsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, og með honum í ritnefnd eru fyrrverandi for- stöðumenn Árnastofnunar, Jónas Kristjánsson og Vésteinn Ólason, Örnólfur Thorsson forsetarit- ari og Viðar Hreinsson, ritstjóri ensku heildarútgáfunnar. bergsteinn@frettabladid.is Við þekkjum að minnsta kosti engin dæmi um verkefni þar sem heil bókmenntagrein er þýdd yfir á þrjú tungumál í einu. JÓHANN SIGURÐSSON ÚTGEFANDI Gunnar, er þetta nokkuð að fara fyrir ofan garð og neðan? „Nei, og er ekki best að sem flestir rækti garðinn sinn?” Gunnar Hersveinn er upplýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg, sem býður nú upp á fjölskyldugarða til leigu í stað skólagarða. DÓMSMÁL Fimm karlmenn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til fangelsisvistar vegna skotárásar í Bústaðahverfi á aðfangadag á síðasta ári. Sjötti maðurinn var sýknaður. Sá sem hlaut þyngsta dóminn, Kristján Haukur Einarsson, var dæmdur í tveggja og og hálfs árs fangelsi. Ívar Kolbeinsson fékk tveggja ára fangelsi. Sá þriðji fékk eitt ár, sá fjórði fimm mánuði og sá fimmti fjóra mánuði. Þrír mannanna, sem allir eru á þrítugs- og fertugsaldri, voru jafnframt dæmdir til að greiða húsráðandanum í Bústaðahverfi hálfa milljón króna í skaðabætur og eiginkonu hans 700 þúsund. Upphaf þessa máls var að tveir mannanna komu að húsi í Bústaða- hverfi á aðfangadagsmorgun og vildu ræða við húsráðanda. Hann vildi ekki hleypa þeim inn en rak járnstöng út um bréfalúguna sem hafnaði á höfði annars aðkomu- manna. Skömmu síðar sneru menn- irnir aftur ásamt fleiri mönnum og höfðu þeir þá haglabyssu meðferð- is. Tveir þeirra skutu sínu skotinu hvor í útidyrahurð hússins. Lög- reglu bar brátt að og handsamaði hún mennina. Atlagan var rakin til fíkniefna- mála. Dómurinn ákvað að hagla- byssan skyldi gerð upptæk. - jss Þrír menn dæmdir til að greiða 1,2 milljónir í miskabætur: Fimm í fangelsi eftir skotárás SKOTÁRÁS Tveimur skotum var skotið í útidyrahurðina. Viðamesta þýðing íslenskrar ritsögu Um sextíu manns vinna að nýjum þýðingum á öllum Íslendingasögunum á dönsku, norsku og sænsku. Saga forlag stendur að þýðingunum, sem eru þær umfangsmestu í íslenskri bókmenntasögu. Kostnaður er um 200 milljónir króna. STJÓRNMÁL Tillaga utanríkisráð- herra um þingsályktun um mótun öryggisstefnu Íslands í þjóðar- öryggismál- um var rædd á fundi ríkis- stjórnarinnar í gær. Tillagan verður lögð fram á þing- flokksfundum í næstu viku, en efnislega vill utanríkisráðu- neytið ekki gefa upplýsingar um tillöguna fyrr en hún hefur verið kynnt þingflokkunum. Utanríkisráðherra hefur þó áður boðað þverpólitíska vinnu um mótun heildstæðrar stefnu í varnar- og öryggismálum, sem byggð verði á nýrri og breiðari nálgun á öryggishugtakinu eins og það var útlistað í skýrslu áhættumatsnefndar til utanríkis- ráðherra fyrir tæpum tveimur árum. - gb Stjórnartillaga til þingflokka: Þjóðaröryggis- stefna mótuð ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ORKUMÁL Ekki hefur komið til tals að Orkuveita Reykjavíkur selji Landsvirkjun einhverjar af virkj- unum sínum, eins og fram kom í fjölmiðlum í gær. Þetta segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR. Bjarni segir að staða Orkuveit- unnar sé vissulega erfið, og leitað sé allra leiða til að laga fjárhag- inn, en sú leið að selja einhverjar af virkjunum fyrirtækisins hafi ekki verið skoðuð. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, tekur í sama streng. Hann segir slík kaup á virkjunum ekki hafa verið skoðuð hjá Landsvirkjun, og engar við- ræður séu í gangi eða séu fyrir- hugaðar við Orkuveituna. - bj Leita leiða til að laga fjárhag: Sala virkjana ekki áformuð DANMÖRK Um 31 þúsund pör gengu í hjónaband í Danmörku í fyrra, en það er 6 prósenta sam- dráttur frá fyrra ári og fæstu giftingarnar frá árinu 1989. Þetta kemur fram hjá tölfræðistofnun Danmerkur. Karlar eru að meðaltali 34,6 ára þegar þeir ganga fyrst í hjónaband, en konur 32,1 árs. Það er óbreytt frá fyrra ári og í fyrsta sinn frá árinu 1966 sem meðalaldur hækkar ekki milli ára. Þá fækkaði hjónaskilnuðum nokkuð, en í fyrra skildu 14.460 pör að skiptum. Um helmingur skilnaðarpara fór hvort í sína átt- ina eftir níu ár eða minna. - þj Hjónavígslur í Danmörku: Færri giftingar en síðustu 20 ár HJÓNABAND Sífellt færri Danir ganga í hjónaband. RISAVERKEFNI Í ÍSLENSKRI BÓKMENNTASÖGU Jón Gunnar Jörgensen, annar ritstjóra norsku þýðingarinnar, og Jóhann Sigurðsson, útgefandi hjá Sögu forlagi, vinna að heildarþýðingu Íslendingasagna yfir á Norðurlandamálin. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SÝRLAND, AP Átök brutust út víða í Sýrlandi í gær milli stuðningshópa stjórnarinnar og andstæðinga hennar, sem fjölmenntu þúsund- um saman út á götur eftir föstu- dagsbænir. Herinn jók svo enn á ofbeldið með því að beita skotvopnum á mótmælendur í nokkrum borgum. Í borginni Daraa náði hópur mót- mælenda byssum af hermönnum og rak þá út úr borginni. Óeirðirnar í gær eru þær mestu sem orðið hafa í landinu svo árum skiptir. Mótmælendurnir krefjast þess að Bashar Assad forseti segi af sér. Mikil ólga er enn víða í Mið- Austurlöndum. Í Jórdaníu kom einnig til átaka milli mótmælenda, sem krefjast umbóta, og stuðnings- manna stjórnvalda. Í Jemen er sívaxandi þrýstingur á Ali Abdullah Saleh að segja af sér. Í gær sagðist hann reiðubúinn til þess, svo fremi sem hann geti skilið landið eftir í öruggum hönd- um, eins og hann orðaði það. Átök brutust einnig út í Barein í gær og jafnvel í Sádi-Arabíu héldu nokkur hundruð sjía út á götur að lýsa yfir stuðningi við trúbræður sína í Barein. - gb Fjölmenn mótmæli víða í Mið-Austurlöndum að loknum föstudagsbænum: Hörð átök brutust út í Sýrlandi LÖGREGLUMÁL Karlmaður um fertugt lést þegar hann varð úti í Reykjavík. Maðurinn fannst látinn í gærmorgun á Granda, en þar eru gámahús á vegum Reykjavíkurborgar. Friðriki Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgar- svæðinu, segir bráðabirgðaniður- stöður krufningar benda til þess að maðurinn hafi látist af völdum ofkælingar. Hann segir að það sé frekar óalgengt að fólk verði úti í Reykjavík. - jhh Varð úti í Reykjavík: Fannst látinn úti á Granda HERMENN Í SÝRLANDI Veifuðu myndum af Bashar Assad forseta. NORDICPHOTOS/AFP LÍBÍA, AP Kanadíski herforinginn Charles Bouchard hefur fengið það hlutverk að stjórna árásum Atlantshafsbandalagsins á Líbíu. NATO tekur við yfirstjórn hernaðaraðgerðanna af Banda- ríkjunum á allra næstu dögum. Bandaríkin munu þó líklega auka enn þátttöku sína í hernað- inum. - gb Samkomulag í sjónmáli: Nató tekur við stjórn árása SPURNING DAGSINS Súrmjólk á tilboði! Ávaxta- og karamellu- súrmjólk á tilboði í mars 0 9 -0 3 5 4 / H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.