Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 44
26. mars 2011 LAUGARDAGUR6 ÍS L E N S K A S IA .I S I G S 5 42 77 0 3/ 11 Tækniþjónusta Icelandair (ITS) á Keflavíkurflugvelli óskar eftir flugvirkjum í framtíðarstörf. Við leitum að öflugum liðsmönnum til starfa í stærsta flugskýli landsins í tæknivæddu og alþjóðlegu umhverfi. STARFSSVIÐ: Almenn flugvirkjastörf í stórskoðunum á B757-200/300. HÆFNISKRÖFUR: I Hafi lokið prófi frá viðurkenndum skóla í flugvirkjun. I Lögð er áhersla á samskiptahæfileika, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. I Góð enskukunnátta er nauðsynleg. I Reynsla af vinnu í tölvuvæddu umhverfi. Hér er um að ræða spennandi og krefjandi framtíðar- störf í góðu starfsumhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki og hágæðavinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að ná árangri í starfi og hafa jafnframt metnað til að vinna sem hluti af öflugri liðsheild. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 8. apríl 2011. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Theodór Brynjólfsson 4250 104 tbrynjol@its.is Kristín Björnsdóttir 5050 155 stina@icelandair.is WWW.ICELANDAIR.IS FLUGVIRKJAR ÓSKAST Í FRAMTÍÐARSTÖRF GERÐU ALLT KLÁRT FYRIR FLUGTAK Laust starf að ferðamálum og í upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk á Akranesi Laust er til umsóknar tímabundið starf við Upplýsingamiðstöð fyrir gesti og ferðafólk á Akranesi. Ráðið verður í starfið til 6 mánaða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Í starfinu felst m.a. þátttaka í útgáfu kynningarefnis um Akranes, vinna við vefsvæðið „visitakranes.is“, skipulagning viðburða, umsjón með viðburðadagatali auk almennra samskipta við gesti og ferðafólk. Einnig skipulagning ferðaþjónustu á Akranesi og samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu, samskipti við aðrar upplýsingamiðstöðvar og ferðaskrifstofur sem og skipulagning og umsjón með móttöku hópa. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og samskiptahæfni og sýna mikinn metnað, jákvæðni og frumkvæði í starfi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og/eða menntun á sviði ferðaþjónustu og mikinn áhuga á þeim viðfangsefnum. Góð tungumálakunn- átta er æskileg og færni í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli er nauðsynleg. Þekking á staðháttum á Akranesi og nágrenni er nauðsynleg. Viðkomandi mun starfa undir stjórn verkefnastjóra Akranesstofu. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2011. Umsóknir skal senda til Tómasar Guðmundssonar, verkefnastjóra Akranesstofu, Stillholti 16 – 18, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar um starfið (tomas.gudmundsson@akranes.is) Mývatnssveit er einn eftirsóttasti áfangastaður erlendra ferðamanna á Íslandi, allt að 60% erlendra gesta sækja sveitina heim, sem telst með helstu náttúruperlum landsins. Þar starfar Mývatnsstofa sem er hlutafélag og hefur upplýsingagjöf til ferðamanna og viðburðarstjónun sem meginmarkmið í starfsemi sinni. Auk þess sinnir félagið markaðssetningu Mývatnssveitar og nágrennis í sérverkefnum. Félagið auglýsir hér með eftir framkvæmdastjóra í fullt starf. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði: • Hafa menntun sem nýtist í starfi. • Hafa þekkingu á innviðum ferðaþjónustunnar og jarð- og landafræði Íslands. • Hafa starfsreynslu og þekkingu á viðskiptum og markaðsmálum. • Hafa reynslu á sviði viðburðastjórnunnar. Í Mývatnssveit búa um 400 manns, þar er leiksóli, grunnskóli og tónlistarskóli. Góð aðstaða er til íþrót- taiðkunnar innanhúss sem utan. Flestir íbúar starfa að ferðaþjónustu og landbúnaði auk orkuvinnslu. Stjórn Mývatnsstofu mun liðsinna umsækjanda um hentugt húsnæði gerist þess þörf enda er ætlast til þess að viðkomandi hafi fasta búsetu á svæðinu. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2011, um- sækjandi þarf að hefja störf í síðasta lagi 1 maí nk. Umsóknir berist til Stefáns Gunnarssonar, stjórnar- formanns á netfangið: stefan@jardbodin.is sem jafnframt veitir nánari upplýsingar sér þess óskað. Matreiðslumenn og aðstoðarmenn í eldhúsi óskast Café Flóra í Grasagarði Reykjavíkur óskar eftir að ráða matreiðslumenn og aðstoðarfók í eldhús. Unnið er á vöktum. Leitað er að samviskusömum einstaklingum sem vinna vel undir álagi, eru heiðarlegir og hafa brennandi áhuga á mat. Café Flóra er starfrækt í garðskála Grasagarðs Reykjavíkur í Laugadalnum. Café Flóra býður upp á léttan matseðil undir nýnorrænum áhrifum og með áherslu á hráefni úr eigin ræktun. Áhugasömum gefst tækifæri á að vinna á skemmtilegum og skapandi vinnustað og hafa áhrif á stefnu eldhússins. Umsækjendur skili umsókn ásamt ferilskrá á net- fangið: cafeflora@cafeflora.is. Fyrirspurnum um starf- ið er svarað af Marentzu Poulsen í síma 661-7305. Viltu hjálpa okkur að gera enn betur? Sérfræðingur í farsímakerfum Starfið felur í sér rekstur stjórnstöðva radíókerfa, vinnu við gæðastillingar og þróun og viðhald á tölfræðikerfum (perfomance statistics). Um er að ræða greiningu á virkni, úrvinnslu á tölfræði og mæligögnum, ásamt samskiptum við kjarnabúnað. Unnið er í hópi sérfræðinga í hönnun og bestun radíókerfa. Hæfniskröfur: Háskólapróf í tæknifræði eða verkfræði. Reynsla af sambærilegu starfi. Nákvæmni og skipulagshæfileikar. Metnaður og frumkvæði í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2011. Áhugasamir eru beðnir um að sækja um starfið á vodafone.is. Nánari upplýsingar veita Sigurður Ingi Hauksson, deildarstjóri, sigurdurh@vodafone.is og Sonja M. Scott, starfsmannastjóri, sonjas@vodafone.is. Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem setur viðskiptavininn í fyrsta sæti!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.