Fréttablaðið - 26.03.2011, Síða 44
26. mars 2011 LAUGARDAGUR6
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
G
S
5
42
77
0
3/
11
Tækniþjónusta Icelandair (ITS) á Keflavíkurflugvelli
óskar eftir flugvirkjum í framtíðarstörf.
Við leitum að öflugum liðsmönnum til starfa í stærsta
flugskýli landsins í tæknivæddu og alþjóðlegu umhverfi.
STARFSSVIÐ:
Almenn flugvirkjastörf í stórskoðunum á B757-200/300.
HÆFNISKRÖFUR:
I Hafi lokið prófi frá viðurkenndum skóla í flugvirkjun.
I Lögð er áhersla á samskiptahæfileika, frumkvæði
og sjálfstæð vinnubrögð.
I Góð enskukunnátta er nauðsynleg.
I Reynsla af vinnu í tölvuvæddu umhverfi.
Hér er um að ræða spennandi og krefjandi framtíðar-
störf í góðu starfsumhverfi þar sem öryggi, áreiðanleiki
og hágæðavinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að ná árangri í starfi
og hafa jafnframt metnað til að vinna sem hluti af öflugri
liðsheild.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair
www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 8. apríl 2011.
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Theodór Brynjólfsson 4250 104 tbrynjol@its.is
Kristín Björnsdóttir 5050 155 stina@icelandair.is
WWW.ICELANDAIR.IS
FLUGVIRKJAR ÓSKAST
Í FRAMTÍÐARSTÖRF
GERÐU ALLT KLÁRT
FYRIR FLUGTAK
Laust starf að ferðamálum og í
upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk
á Akranesi
Laust er til umsóknar tímabundið starf við Upplýsingamiðstöð fyrir
gesti og ferðafólk á Akranesi. Ráðið verður í starfið til 6 mánaða og
er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í starfinu felst m.a. þátttaka í útgáfu kynningarefnis um Akranes,
vinna við vefsvæðið „visitakranes.is“, skipulagning viðburða,
umsjón með viðburðadagatali auk almennra samskipta við gesti
og ferðafólk. Einnig skipulagning ferðaþjónustu á Akranesi og
samskipti við hagsmunaaðila á svæðinu, samskipti við aðrar
upplýsingamiðstöðvar og ferðaskrifstofur sem og skipulagning og
umsjón með móttöku hópa.
Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og samskiptahæfni og
sýna mikinn metnað, jákvæðni og frumkvæði í starfi. Æskilegt er
að viðkomandi hafi reynslu og/eða menntun á sviði ferðaþjónustu
og mikinn áhuga á þeim viðfangsefnum. Góð tungumálakunn-
átta er æskileg og færni í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli
er nauðsynleg. Þekking á staðháttum á Akranesi og nágrenni er
nauðsynleg. Viðkomandi mun starfa undir stjórn verkefnastjóra
Akranesstofu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2011. Umsóknir skal senda til
Tómasar Guðmundssonar, verkefnastjóra Akranesstofu, Stillholti
16 – 18, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar um starfið
(tomas.gudmundsson@akranes.is)
Mývatnssveit er einn eftirsóttasti áfangastaður erlendra
ferðamanna á Íslandi, allt að 60% erlendra gesta sækja sveitina
heim, sem telst með helstu náttúruperlum landsins. Þar starfar
Mývatnsstofa
sem er hlutafélag og hefur upplýsingagjöf til ferðamanna og
viðburðarstjónun sem meginmarkmið í starfsemi sinni.
Auk þess sinnir félagið markaðssetningu Mývatnssveitar
og nágrennis í sérverkefnum.
Félagið auglýsir hér með eftir
framkvæmdastjóra í fullt starf.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
• Hafa menntun sem nýtist í starfi.
• Hafa þekkingu á innviðum ferðaþjónustunnar og
jarð- og landafræði Íslands.
• Hafa starfsreynslu og þekkingu á viðskiptum
og markaðsmálum.
• Hafa reynslu á sviði viðburðastjórnunnar.
Í Mývatnssveit búa um 400 manns, þar er leiksóli,
grunnskóli og tónlistarskóli. Góð aðstaða er til íþrót-
taiðkunnar innanhúss sem utan. Flestir íbúar starfa
að ferðaþjónustu og landbúnaði auk orkuvinnslu.
Stjórn Mývatnsstofu mun liðsinna umsækjanda um
hentugt húsnæði gerist þess þörf enda er ætlast til
þess að viðkomandi hafi fasta búsetu á svæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2011, um-
sækjandi þarf að hefja störf í síðasta lagi 1 maí nk.
Umsóknir berist til Stefáns Gunnarssonar, stjórnar-
formanns á netfangið: stefan@jardbodin.is sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar sér þess óskað.
Matreiðslumenn og
aðstoðarmenn í eldhúsi óskast
Café Flóra í Grasagarði Reykjavíkur óskar eftir að ráða
matreiðslumenn og aðstoðarfók í eldhús. Unnið er á
vöktum. Leitað er að samviskusömum einstaklingum
sem vinna vel undir álagi, eru heiðarlegir og hafa
brennandi áhuga á mat.
Café Flóra er starfrækt í garðskála Grasagarðs
Reykjavíkur í Laugadalnum. Café Flóra býður upp á
léttan matseðil undir nýnorrænum áhrifum og með
áherslu á hráefni úr eigin ræktun. Áhugasömum gefst
tækifæri á að vinna á skemmtilegum og skapandi
vinnustað og hafa áhrif á stefnu eldhússins.
Umsækjendur skili umsókn ásamt ferilskrá á net-
fangið: cafeflora@cafeflora.is. Fyrirspurnum um starf-
ið er svarað af Marentzu Poulsen í síma 661-7305.
Viltu hjálpa okkur
að gera enn betur?
Sérfræðingur í farsímakerfum
Starfið felur í sér rekstur stjórnstöðva radíókerfa, vinnu við gæðastillingar
og þróun og viðhald á tölfræðikerfum (perfomance statistics). Um er að
ræða greiningu á virkni, úrvinnslu á tölfræði og mæligögnum, ásamt
samskiptum við kjarnabúnað. Unnið er í hópi sérfræðinga í hönnun og
bestun radíókerfa.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í tæknifræði eða verkfræði.
Reynsla af sambærilegu starfi.
Nákvæmni og skipulagshæfileikar.
Metnaður og frumkvæði í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2011.
Áhugasamir eru beðnir um að sækja um starfið á vodafone.is.
Nánari upplýsingar veita Sigurður Ingi Hauksson, deildarstjóri,
sigurdurh@vodafone.is og Sonja M. Scott, starfsmannastjóri,
sonjas@vodafone.is.
Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem
setur viðskiptavininn í fyrsta sæti!