Fréttablaðið - 26.03.2011, Blaðsíða 68
26. mars 2011 LAUGARDAGUR36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Nýtt gallerí á Ísafirði hefur
formlega starfsemi sína
á morgun klukkan 14.01.
Galleríið heitir Fjör 10 þrep
og er til húsa í Listakaup-
stað, Norðurtangahúsinu, á
þriðju hæð. Opnunarsýning
gallerís Fjör 10 þrep nefn-
ist Ein stök hús. Þar sýna
listamennirnir Marsibil G.
Kristjánsdóttir og Jóhannes
Frank Jóhannesson verk sín
byggð á eyðibýlum á Vest-
fjörðum. Jóhannes sýnir
ljósmyndir en Marsibil
teikningar en hvert eyðibýli
er tekið frá nákvæmlega
sama sjónarhorni. Eyðibýli
eru fjölmörg á Vestfjörðum
eins og um land allt en á sýn-
ingunni Ein stök hús má sjá
eyðibýli úr Ísafjarðardjúpi,
Dýrafirði og Arnarfirði. Við
opnunina verður boðið upp á
veitingar að hætti efnisins;
rúgbrauð með kæfu og svart
kaffi. Eftir það verður sýn-
ingin opin á fimmtudögum
og föstudögum frá klukkan
15 til 17 og á laugardögum
frá klukkan 13 til 15. - fsb
Nýtt gallerí
opnað á Ísafirði
Kammerkór Hafnar-
fjarðar og Tríó
Agnars Más halda
tónleika í Hásöl-
um, Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, á
sunnudaginn klukk-
an 17. Yfirskrift tón-
leikanna er Arfur
þjóðar. Þar verða
flutt þjóðlög og fim-
mundarsöngvar í
ýmsum útsetningum með
skemmtilegum árangri,
enda ekki oft sem klassískur
kór og djasstríó taka hönd-
um saman á tónleikum.
Kammerkór Hafnar-
fjarðar, undir stjórn Helga
Bragasonar, mun hefja
leikinn á nokkrum
þjóðlegum lögum í
hefðbundum útsetn-
ingum. Þá mun tríó-
ið flytja nokkur lög
en þess má geta að
Agnar Már Magn-
ússon gaf út disk-
inn Láð árið 2007
þar sem hann lagði
áherslu á þjóðleg
stef.
Í lokin munu kórinn og
hljómsveitin syngja og
leika saman nokkur þjóðlög
í útsetningu Agnars Más.
Má þar nefna lög á borð við
Grafskrift, Blástjarnan, Nú
vil ég enn í nafni þín og Ein-
setumaður einu sinni.
Þjóðlög á djöss-
uðum nótum
Hljómsveitirnar Brother
Grass og Illgresi leiða
saman hesta sína í brjáluð-
um bluegrass-bræðingi á
Café Haíti í kvöld og byrja
tónleikarnir kl 21. Báðar
hljómsveitirnar segjast
koma tiltölulega vel undan
vetri og að spilagleðin sé
gífurleg.
Munu þær flytja efni
bæði saman og hvor í sínu
lagi þannig að lofað er Suð-
urríkjaeyrnakonfekti fram
eftir kvöldi.
Væntanlegum tónleika-
gestum er bent á að mæta
tímanlega til að ná sætum
því seinast var fullt út úr
dyrum. Það kostar 1.500
krónur inn, enginn posi á
staðnum.
Bluegrass á Haíti
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför okkar ástkæra
Sigurbjörns
Þorgrímssonar
(Bjössa Biogen)
Sérstakar þakkir til vina Bjössa sem stóðu að
minningartónleikum honum til heiðurs.
Jenný Sigurbjörnsdóttir Þorgrímur Baldursson
Atli Már Þorgrímsson Kristín Björk Einarsdóttir
Hekla Atladóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur hlýhug og vinarhug vegna
fráfalls okkar ástkæra
Jóns Ásgeirssonar
og heiðruðu minningu hans.
Steinunn Helga Jónsdóttir Hallgrímur Gunnarsson
Rebekka Dagbjört Jónsdóttir Björgvin Halldórsson
Ásgeir Jónsson Hrafnhildur H. Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín
Jóhanna Berta
Friðbjarnardóttir
frá Hellissandi,
Sléttuvegi 11, Reykjavík,
lést á Hrafnistu Reykjavík miðvikudaginn 16. mars.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 30. mars kl. 13.
Aðalsteinn Guðmundsson
Innilegar þakkir til allra þeirra er
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Sr. Ingimars
Ingimarssonar
fyrrverandi prófasts.
Ingimar Ingimarsson Hólmfríður Svavarsdóttir
Þorkell Ingimarsson Gunnþóra Önundardóttir
Björn Ingimarsson Sigrún Óskarsdóttir
Sigurgísli Ingimarsson Kristín Guðjónsdóttir
Hrafnhildur Sigurgísladóttir Bjarni Óskarsson
börn og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma
Karla Hildur Karlsdóttir
Hrísalundi 4g, Akureyri,
lést laugardaginn 19. mars. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jón Brynjar Gunnhallsson Þórhildur E. Halldórsdóttir
Arngrímur Þór Gunnhallsson Ása Sigurlaug Harðardóttir
Gunnhallur Gunnhallsson
Hildur Mary Thorarensen Magnús Jón Bragason
Karl Jónas Thorarensen Mary Jean Guino Malana
og ömmubörn
Af hug og hjarta í kærleika þakkar
fjölskylda öll innilega fyrir hlýhug,
samúð og nærgætni sem okkur var sýnd
í veikindum og við andlát vinar okkar,
ástkærrar eiginkonu, móður, dóttur,
systur, mágkonu og frænku,
Nínu Karenar Jónsdóttur
Háagerði 67, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Ljóssins, starfsfólks Trygginga-
stofnunar og Landspítala, ber sérstaklega að nefna
fremsta meðal jafningja Elísabetu Örnu Helgadóttur
lækni og Björk Unnarsdóttur hjúkrunarfræðing.
Karl Gunnarsson
Anna Lilja og Unnur Karen Karlsdætur
Nína Soffía Hannesdóttir og Jón Gunnarsson
Gunnar Jónsson
Stefanía Ösp Guðmundsdóttir
Sigríður B. Árnadóttir
„Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar“
Innilegar þakkir sendum við ykkur
öllum sem sýnduð okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra
Baldvins Einars
Skúlasonar.
Sérstakar þakkir sendum við til heimahjúkrunar
Karitasar og deildar 11-E Landspítala.
Unnur Tessnow
Helgi Magnús Baldvinsson Bára Mjöll Ágústsdóttir
Hafdís Erla Baldvinsdóttir Einar Ragnarsson
Hulda Björg Baldvinsdóttir Jóhannes Kristjánsson
afa- og langafabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Unnur Kjartansdóttir
Hvassaleiti 18, Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 23. mars á LSH Fossvogi.
Hreinn V. Ágústsson Dóra Jónsdóttir
Björn Á. Ágústsson Þuríður Magnúsdóttir
Einar Ágústsson Unnur H. Pétursdóttir
Kjartan Ágústsson Þóra S. Ingimundardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
HÁSALIR Kammerkór Hafnarfjarðar og Tríó Agnars Más flytja þekkt
þjóðlög í ýmsum búningi.
EINSTÖK HÚS Marsibil Kristjáns-
dóttir er annar listamannanna
sem eiga verk á sýningunni Ein
stök hús.
AGNAR MÁR
MAGNÚSSON
BRÆÐINGUR Blágresið blómgast á Café Haíti í kvöld klukkan 21. Íslandsmótið í bogfimi fer
fram í dag og á morgun í
Íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði. 31 kepp-
andi hefur skráð sig til leiks
og hefst mótið klukkan 11
báða dagana.
Fyrri keppnisdaginn skýt-
ur hver keppandi 60 örvum.
Á morgun verður svo
útsláttar keppni. Keppendur
eru paraðir saman og hver
skýtur 12 örvum í hverri
lotu uns úrslit eru fengin.
Öllum er velkomið að
koma og fylgjast með þess-
ari spennandi og óvenju-
legu keppni en aðgangur er
ókeypis.
Nánari upplýsingar er að
finna á www.bogfimi.net.
Keppt í bogfimi
Íslandsmótið í bogfimi fer fram
un helgina.