Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 86

Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 86
26. mars 2011 LAUGARDAGUR54 PERSÓNAN Ása Ninna Pétursdóttir Starf: Verslunar- eigandi Aldur: 30 ára Búseta: Reykjavík Fjölskylda: Foreldar eru Péur Þor- móðsson og Sigurbjörg Grétarsdóttir. Maki er Guðmundur Hallgrímsson og saman eigum við Patrek Thor og Kormák Krumma. Stjörnumerki: Ljón Ása Ninna tók við rekstri GK Reykjavíkur síðasta haust. „Við erum byrjuð að leggja drög að klæða- burði sönghópsins i Düsseldorf og það verður ekkert svart að þessu sinni. Bara litir og gleði,“ segir prjóna- og fatahönnuðurinn Guð- rún Ragna Sigurjónsdóttir en hún hefur yfir- umsjón með klæðaburði Eurovision-faranna í Vinum Sjonna. Undirbúningur fyrir för hóps- ins til Þýskalands er á fullu þessa dagana. Guðrún Ragna hefur einbeitt sér að prjónahönnun síðan hún útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2003 en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur að sér verkefni á borð við þetta. „Þórunn Erna Clausen, eiginkona Sigurjóns heitins Brink, er æskuvinkona mín og ég er mjög þakklát fyrir að hafa verið beðin um að taka þátt í þessu ævintýri með þeim.“ Guðrún Ragna segir að ekki verði mikil breyting á útliti strákanna eins og þeir voru í forkeppninni en áhersla verði lögð á skapa ákveðna tengingu við myndbandið „Það verður svipuð stemning og í mynd- bandinu. Lopapeysur og fínni klæðnaður.“ Guðrún segir mjög skemmtilegt að vinna með strákunum sex og að það sé mjög góður andi í hópnum. „Markmiðið með þessu verkefni er að öllum líði vel enda allir í ákveðnu sorgarferli og hópurinn mjög náinn,“ Guðrún Ragna viðurkennir jafnframt að hún sé laumu Eurovision-aðdáandi „Það verður gaman að fá að upplifa stemminguna þarna úti og kannski kemur maður heim alveg smitaður af Eurovision-veikinni.“ - áp Vorgleði í klæðaburði Eurovision-faranna STÍLISTI EUROVISION-FARANNA Prjónahönnuðurinn Guð- rún Ragna Sigurjónsdóttir ætlar að klæða sönghópinn, Vini Sjonna, í frísklega liti í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Það tók mig tvo mánuði að búa mig undir að gera þetta tattú, samt var ég nötrandi og titrandi í stóln- um rétt áður en ég byrjaði og hugs- aði að ég gæti bara krotað eitthvað annað yfir ef þetta yrði ljótt,“ segir Atli Freyr Arnarson en hann gerð- ist svo kræfur að láta húðflúra stóra mynd af poppdívunni Lady Gaga á upphandlegg sinn til að lýsa aðdáun sinni á amerísku söngkonunni. Húð- flúrið hefur vakið mikla athygli og meira að segja náð augum sjálfrar Lady Gaga, sem lagði blessun sína yfir það. „Vinur minn hitti hana baksviðs á tískusýningu í Mílanó og sýndi henni mynd af tattúinu. Ég fékk svo að vita að henni þótti það æðislegt. Það var alveg geðveikt,“ segir Atli en húðflúrið er ekki full- gert og ætlar hann að setjast aftur í stólinn í maí til að klára listaverk- ið og bæta við bæði litum og bak- grunni. Hugmyndina fékk hann þegar hann sat heima og velti fyrir sér hvaða mynd hann ætti að fá sér næst enda vill hann að húðflúrin hafi persónulega merkingu fyrir sig. Ekki er nema ár síðan Atli kol- féll fyrir Lady Gaga en hann leggur það ekki í vana sinn að vera einlæg- ur aðdáandi tónlistarmanna. „Fyrst þegar hún kom fram á sjónar sviðið fannst mér hún ekkert merkileg og bara svona blaðra sem mundi fljótt springa. Eftir að Fame- monster, önnur plata söngkonunnar, kom út fékk ég hana gjörsamlega á heilann,“ segir Atli en hann vill meina að Lady Gaga sé stór partur af lífi hans í dag „Það er mjög fynd- ið að segja það en hún er orðin eins konar áhrifavaldur í mínu lífi og ég er alveg dolfallinn yfir henni. Text- arnir og lögin eru góð og svo er hún ein af flottustu tískufyrirmyndum í heiminum dag,“ segir Atli, sem í dag vinnur á vegum Eskimó skrif- stofunnar og æfir dans. Hann er orðinn vel sjóaður í að fá sér húð- flúr en hann er með sextán víðs vegar um líkamann og alls ekki hættur. „Tattúin eru minningar um ólík tímabil í mínu lífi. En þetta er alltaf jafn ógeðslega vont. Kannski er ég að verða háður blendnu til- finningunum sem fylgja því að setj- ast í stólinn, eins konar kvíðablend- in tilhlökkun.“ alfrun@frettabladid.is ATLI FREYR ARNARSON: LADY GAGA VAR HRIFIN HÚÐFLÚRAÐI ÁHRIFAVALD- INN Á UPPHANDLEGGINN Miðasala á sumarferðum Herjólfs hófst í byrjun vikunnnar og hefur sölulínan verið rauðglóandi síðan. Íslendingar sem ætla sér að fara á Þjóðhátíð næsta sumar eru greini- lega með vaðið fyrir neðan sig en uppselt er að verða í allar ferðir skipsins í kringum þessa mestu ferðahelgi ársins, fjóra mánuði fram í tímann. Þegar er búið að selja upp í allar ferðir skipsins til Eyja dagana 28. og 29. júlí, sem og frá Eyjum mánudaginn 1. ágúst. „Þetta er í fyrsta sinn sem við hjá Landeyjahöfn erum að sjá um þetta og eru miðarnir að renna út á methraða. Það er mikið að ger- ast í Eyjum í sumar en Þjóð hátíðin er langvinsælust og greinilegt að fólk ætlar að tryggja sér miða tímanlega,“ segir Elísabet Rut Sigmarsdóttir, sölufulltrúi hjá Landeyjahöfn. Miði aðra leiðina fyrir einn kostar 1000 krónur og gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Landeyjahöfn í sumar. „Ef fólk ætlar sér að ferðast með Herjólfi á Þjóðhátíð í Eyjum mæli ég með því það hafi hraðann á.“ Ásgeir Örn Þorsteinsson, mark- aðs- og sölustjóri hjá flugélaginu Erni, sem sér um allt áætlunar- flug til Eyja segist einnig vera byrjaður að finna fyrir mik- illi eftirspurn á flugi til Eyja á Þjóðhátíð. „Það er mikill áhugi og við hefjum sölu í hin svoköll- uðu þjóðhátíðarflug um helgina. Við stefnum á að vera með eins konar loftbrú milli lands og Eyja þessa helstu daga og látum fram- boð mæta eftirspurn.“ - áp Miðar í Herjólf rjúka út ALLT AÐ SELJAST UPP Þeir sem voru búnir að hugsa sér að ferðast til Vest- mannaeyja með Herjólfi yfir Þjóðhátíð verða að hafa harðar hendur því mið- arnir rjúka út. Í ÖLLU SÍNU VELDI Atli Freyr Arnarson ákvað að flúra andlitsmynd af poppstjörnunni Lady Gaga á handlegginn til að lýsa aðdáun sinni á dívunni frægu. Að sögn Atla hefur söngkonan sjálf fengið að sjá mynd af flúrinu og líkaði vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Lau 26.3. Kl. 19:00 Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Sun 27.3. Kl. 13:30 Sun 27.3. Kl. 15:00 Sun 3.4. Kl. 13:30 un 3.4. Kl. 15:00 Sun 10.4. Kl. 13:30 Sun 10.4. Kl. 15:00 Sun 17.4. Kl. 13:30 Sun 17.4. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Allir synir mínir (Stóra sviðið) Sun 27.3. Kl. 14:00 Sun 27.3. Kl. 17:00 Sun 3.4. Kl. 14:00 Sun 3.4. Kl. 17:00 Sun 10.4. Kl. 14:00 Sun 10.4. Kl. 17:00 Sun 17.4. Kl. 14:00 Sun 17.4. Kl. 17:00 Sun 1.5. Kl. 14:00 Sun 1.5. Kl. 17:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn Lau 2.4. Kl. 20:00 Mið 13.4. Kl. 20:00 Fim 14.4. Kl. 20:00 Mið 27.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Mið 4.5. Kl. 20:00 Fim 5.5. Kl. 20:00 Brák (Kúlan) Ö Ö Sun 27.3. Kl. 20:00 Mið 30.3. Kl. 20:00 Lau 2.4. Kl. 20:00 Lau 9.4. Kl. 20:00 Sun 10.4. Kl. 20:00 Lau 16.4. Kl. 20:00 Sun 17.4. Kl. 20:00 Hedda Gabler (Kassinn) Ö U Ö Ö Lau 26.3. Kl. 20:00 Aukas. Fös 8.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 U Ö Ö U U U Ö Ö U Ö U Ö Bjart með köflum (Stóra sviðið) Mið 6.4. Kl. 20:00 Fim 7.4. Kl. 20:00 Fös 8.4. Kl. 20:00 Lau 9.4. Kl. 20:00 Fös 15.4. Kl. 20:00 Lau 16.4. Kl. 20:00 Fim 28.4. Kl. 20:00 Fös 29.4. Kl. 20:00 Fös 6.5. Kl. 20:00 Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö U Ö U Ö Costa del Sol 6. maí í 9 nætur Verð kr. 119.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 9 nætur með öllu inniföldu á Hotel Griego Mar ***. Frá kr. 119.900 með „öllu inniföldu“ Heimsferðir bjóða frábæra 9 nátta ferð til Costa del Sol í vor. Í boði er frábært sértilboð, með „öllu inniföldu“ á Griego Mar hótelinu sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.