Fréttablaðið - 26.03.2011, Qupperneq 8
26. mars 2011 LAUGARDAGUR
J.S.Bach BWV 245
Listvinafélag Hallgrímskirkju - 29. starfsár
Sunnudaginn 3. apríl 2011 kl. 17
Minningartónleikar um Áskel Jónsson
söngstjóra f. 5. apríl 1911.
Hallgrímskirkja
Reykjavík
Menningarhúsið Hof
Akureyri
Laugardaginn 2. apríl 2011 kl. 17
Föstudaginn 1. apríl 2011 kl. 20
Jóhannesarpassía
ÁFRAM er hreyfi ng einstaklinga sem telja hagsmunum Íslands best borgið með
því að Icesave-lög Alþingis (lög nr. 13/2011) haldi gildi sínu. Auglýsingar og
annað starf hreyfi ngarinnar eru greidd með frjálsum framlögum og vinnuframlagi
sjálfboðaliða. ÁFRAM - Laugavegi 3 - 101 Reykjavík - afram@afram.is
Ég...tel að það sé e
kki
bein lagaskylda á o
kkur
að borga þetta en
ég tel
hins vegar að áhæt
tan
af slíku dómsmáli s
é það
mikil að við eigum
ekki
að taka hana.
„
“
Ragnar Hall hæstar
éttarlögmaður
Kastljós 20.2.2011
www.afram.is
Já er leiðin áfram!
JAFNRÉTTISMÁL Mun færri feður
nýta sér fæðingarorlof eftir
efnahagshrunið en áður. Á síð-
ustu þremur árum hefur hámark
á fæðingarorlofsgreiðslum verið
lækkað í þrígang og er hámark-
ið nú 300 þúsund krónur. Orlofs-
greiðslum til feðra hefur fækkað
um níu prósent frá árinu 2008, en
greiðslum til mæðra fjölgað um
4,5 prósent.
Um helmingur feðra lenda í
hámarkinu á móti 20 prósent
mæðra. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu, Konur í kreppu?, sem er
samantekt á opinberum töluleg-
um gögnum á áhrifum efnahags-
hrunsins á velferð kvenna. Þær
Eygló Árnadóttir og Eva Björns-
dóttir tóku skýrsluna saman
fyrir hönd velferðarvaktarinn-
ar, stýrihóps sem skipaður var
af ráðuneytinu til að fylgjast með
félagslegum og fjárhagslegum
afleiðingum efnahagsástandsins
fyrir fjölskyldur og einstaklinga
í landinu.
„Skoða þyrfti kynjamun á
þeim hópi foreldra sem þurfa að
brúa bilið milli fæðingarorlofs
og leikskóla og detta á meðan
út af vinnumarkaði með til-
heyrandi tekjutapi. Telja má að
þarna séu konur í miklum meiri-
hluta,“ segir í skýrslunni. Tekju-
tap fjölskyldna er líklegra til að
verða meira ef faðir fer í fæð-
ingarorlof heldur en móðir. Við-
horf til feðra í orlofum eru einn-
ig ólík innan vinnustaða, en í
rannsókn á vegum Rannsókna-
stofu í kvenna- og kynjafræðum
og fleiri frá árinu 2004 töldu 46
prósent atvinnurekenda að erf-
itt væri fyrir karlmann að taka
þriggja mánaða fæðingarorlof,
en 26 prósent að erfitt væri fyrir
konu að taka sex mánaða orlof.
Kynjahlutfall atvinnulausra
hér á landi hefur nú jafnast mun
meira út heldur en var stuttu
eftir efnahagshrunið. Niður-
skurður hjá hinu opinbera hefur
meiri áhrif á atvinnustöðu
kvenna en karla þar sem konur
eru yfirgnæfandi meirihluti
ríkis starfsmanna og þá sérstak-
lega í umönnunarkerfinu; 82 pró-
sent af heilbrigðisstarfsfólki eru
konur og 78 prósent grunnskóla-
kennara.
Í umsögn Kennarasambands
Íslands til menntaráðs Reykja-
víkur um tillögur að sameiningu
leik- og grunnskóla í Reykjavík
segir að breytingarnar hafi í för
með sér að 60 leikskólastjórnend-
um og 13 grunnskólastjórnendum
verði sagt upp störfum. Þar af
eru konurnar 70 og karlarnir 3.
sunna@frettabladid.is
Færri feður í orlof
eftir efnahagshrun
Efnahagshrunið hafði mikil áhrif á stöðu kynjanna í íslensku samfélagi kemur
fram í nýrri skýrslu á vegum velferðarráðuneytisins. Hlutfall atvinnulausra
kvenna hefur farið hækkandi og færri feður fara í fæðingarorlof en áður.
FJÖLSKYLDUSTUND Fjöldi þeirra feðra sem taka sér fæðingarorlof hefur dregist
saman um tæp tíu prósent eftir efnahagshrunið. Hlutfall mæðra í orlofi hefur
hækkað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Efnahagshrunið virðist ekki hafa haft neikvæð áhrif á frjósemi í landinu.
Fjöldi fæðinga hefur aukist jafnt og þétt síðan árið 2003 en árin 2008 og
2009 voru þriðju fjölmennustu fæðingarár sögunnar frá því að mælingar
hófust. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni fæddust 5.027 börn á
Íslandi árið 2009 en árið 2007 voru þau 4.560.
Í skýrslu velferðarvaktarinnar kemur fram að fóstureyðingum stúlkna á
aldrinum 15 til 19 ára hafi fækkað mikið árið 2009 og hafi þær ekki verið
færri síðan árið 1991. Fæðingum hjá þessum aldurshópi fækkaði einnig í
kreppunni. Þó fjölgaði fóstureyðingum árið 2009, að undanskildum fyrr-
greindum hópi. Mest fjölgaði fóstureyðingum meðal 25 til 29 ára kvenna,
alls voru þær 244 árið 2009 og hafa aldrei verið fleiri í þeim hópi.
Mun fleiri karlar fara í ófrjósemisaðgerðir en konur. Aðgerðunum hefur
fækkað síðan árið 2000, en þá var hlutfall kvenna 67,5 prósent. Nú hafa
hlutföllin snúist við því hlutfall karla er nú orðið 70 prósent.
Fóstureyðingar ekki færri síðan 1991
Konur Karlar
2008 32.083 18.204
2009 33.565 17.994
2010 33.521 16.586
Fjöldi greiðslna til
fæðingarorlofs
LÖGREGLUMÁL Lögreglan stöðvaði
kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði
í Kópavogi síðdegis í fyrradag.
Við húsleit fundust tuttugu
kannabisplöntur og var ræktunin
vel á veg komin. Á sama stað var
einnig lagt hald á tvö skotvopn,
haglabyssu og riffil.
Karlmaður um þrítugt, sem
kom á vettvang á meðan á leitinni
stóð, var handtekinn. Í fórum hans
fundust um 25 grömm af kókaíni.
Í framhaldinu var farið til húsleit-
ar hjá leigutaka húsnæðisins, karl-
manns á svipuðum aldri. Í híbýlum
hans í Grafarvogi fundust á fjórða
tug ampúlla af sterum og um tutt-
ugu kannabisplöntur en kannabis-
ræktunin var haganlega falin í bíl-
skúr við heimili mannsins. Málin
teljast upplýst.
Fyrrnefndar aðgerðir eru liður
í að hamla gegn sölu og dreifingu
fíkniefna en sem fyrr minnir lög-
reglan á fíkniefnasímann 800-
5005. Í hann má hringja nafnlaust
til að koma á framfæri upplýsing-
um um fíkniefnamál. Fíkniefna-
síminn er samvinnuverkefni lög-
reglu og tollyfirvalda og er liður í
baráttunni við fíkniefnavandann.
- jss
Lögreglan handtók tvo karlmenn í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi í gær:
Fundu byssur, kókaín og stera
KÓKAÍN Annar mannanna var með
umtalsvert magn af kókaíni í fórum
sínum.