Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 22
26. mars 2011 LAUGARDAGUR22
Í lok maí verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla á Möltu, sú fyrsta síðan 2003,
þegar þjóðin ákvað að ganga í ESB. Nú skal kosið um hvort leyfa eigi hjón-
um að skilja. Malta er kaþólskt land og þar þarf fólk að fara í eitthvert annað
land til að sækja um og fá lögskilnað. Snúa svo til baka með stimplaða
pappíra, sem eru afhentir maltneskum yfirvöldum svo skilnaður megi ganga
í gegn. Nú á að breyta þessu þannig að eftir fjögurra ára skilnað að borði og
sæng megi fólk skilja að lögum, án þess að þurfa að fara úr landi.
„Ég vil búa í Evrópuríki, sem þýðir ekki bara að maður fljúgi til Brussel
eða fari í ESB-röðina á flugvöllum. Það þýðir að maður lifir samkvæmt
evrópskum gildum,“ segir Joseph Muscat, formaður stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins, Verkamannaflokksins, í viðtali við AFP. Muscat styður
lögleiðingu skilnaðar, ólíkt Gonzi forsætisráðherra. Öll önnur ESB-ríki leyfa
skilnað.
Tæp níu prósent maltneskra þingmanna eru konur og hvergi í Evrópu-
sambandinu eru jafn fáar konur hlutfallslega á vinnumarkaði. Það er hluti
af átaki Maltverja í 2020-áætlun ESB að breyta þessu. Á hinn bóginn hefur
maltneska stjórnin ekki viljað láta undan þrýstingi Evrópuþingisins um að
lengja fæðingarorlofið, sem er fjórtán vikur.
HJÓNUM ER BANNAÐ AÐ SKILJA
● Maltverjar eiga ekki viðlíka
auðlindir og Íslendingar og
framkvæmdastjórn ESB hefur
skammað þá fyrir að slugsa við að
nýta sér endurnýjanlega orkugjafa.
Meðan Íslendingar gæla við að
ESB-aðild auðveldi sölu raforku
í gegnum sæstreng til megin-
landsins vantar Maltverja svipaðan
streng til að kaupa hana. Franskt
fyrirtæki leggur nú rafstreng milli
Möltu og Sikileyjar; meirihluti fjár-
festingarinnar er frá Fjárfestinga-
banka Evrópu og ESB.
● Þegar íslensk stjórnvöld vildu
gera Ísland að alþjóðlegri fjár-
málamiðstöð ákváðu Maltverjar
að stofna til þekkingarmiðstöðvar.
Nýborgin SmartCity átti að marka
umbreytingu þjóðfélagsins í
þekkingarþjóðfélag og skapa um
5.600 störf í tækni- og tölvu-
geira. Maltverjum gekk betur en
Íslendingum, því uppbyggingin
er enn í gangi. Í janúar tilkynnti
hugbúnaðarrisinn Cisco að hann
ætlaði að hafa aðsetur þar.
● Fréttir af erlendri fjárfestingu
og á Möltu eru nokkuð tíðar.
Nágrannarnir í austri virðast líta á
Möltu sem ákveðinn áfanga á leið-
inni á Evrópumarkað og hafa t.d.
Sádi-Arabar fjárfest þar duglega.
Síðustu þrjú ár hefur utanríkis-
ráðherra Möltu undirritað á annað
hundrað tvíhliða samninga við
erlend ríki, þar af minnst 30 til að
auðvelda erlenda fjárfestingu.
● Maltverjar eru með litla stjórn-
sýslu og ekki alltaf í samræmi
við staðla ESB. Í fyrra stöðvaði
framkvæmdastjórn ESB greiðslur í
menntaáætlunum til þeirra vegna
„sjóðs-óstjórnar“. Nemar urðu af
greiðslum og brotlegir embættis-
mennirnir voru reknir. Annars er
Malta það ríki ESB sem fæstar
Evrópureglur brýtur.
B
aráttan með og á móti
aðild Möltu að Evr-
ópusambandinu klauf
þjóðina í tvær fylk-
ingar, áður en Malta
gekk í ESB fyrir sjö
árum. Óvíða hefur verið tekist jafn
mikið á um þessa ákvörðun og þar,
í ríki sem er á stærð við rúman
fimmtung Færeyja. Átökin gengu
svo langt að þegar nýr meirihluti
Verkamannaflokksins náði völdum
1996 dró hann umsókn Maltverja
til baka, eða frysti hana.
Fyrir var Malta tvíklofið samfé-
lag um flesta hluti aðra en kaþólska
trú, sem nær allir játast. Þar hafa
tveir flokkar lengi verið með nær
helming atkvæða hvor, fyrrnefnd-
ur Verkamannaflokkur og svo Þjóð-
ernisflokkurinn.
Malta er gjarnan sögð á mótum
Evrópu, Afríku og Mið-Austur-
landa og fékk sjálfstæði frá Bretum
1964. Afstaða flokkanna tveggja
til utanríkismála hefur verið ansi
ólík. Þegar Þjóðernissinnar voru
við völd urðu Maltverjar hluti Sam-
einuðu þjóðanna og Evrópuráðsins
og helstu skrefin í utanríkismálum
voru stigin í vesturátt. Þjóðernis-
flokkurinn sótti um aðild að ESB
1990.
Verkamannaflokkurinn leit hins
vegar til austurs og lagði áherslu
á tvíhliða samninga við ESB, án
pólitískrar þátttöku. Verkamanna-
flokkurinn sagðist vilja vinna með
sem flestum og lýsti yfir hlut-
leysi Möltu þegar hann var við
völd í kalda stríðinu. Malta átti
að vera „Sviss Miðjarðarhafsins“.
Flokkurinn bauð sérstak-
lega upp á aukið samstarf
við Kína og Líbíu. Reyndar
var Malta í valdatíð Verka-
mannaflokksins uppnefnd
„Kúba Miðjarðarhafsins“.
Þjóðin var því með öllu
ósammála um hvar hún stæði í
heiminum. Allt þar til Malta gekk
í ESB 2004. Eftir það hefur ríkt
mikil samstaða um aðild Möltu að
ESB.
Flokkarnir keppa nú á öðrum
sviðum og formanni Verkamanna-
flokksins, Joseph Muscat, sem er
fyrir löngu yfirlýstur Evrópusinni,
er gjarnan núið um nasir að hafa
verið andstæðingur aðildar á yngri
árum. Honum til ama er við hvert
tækifæri rifjuð upp hin eldri utan-
ríkisstefna Verkamannaflokksins
og spurt: Hvar værum við í dag ef
þessi flokkur hefði fengið að ráða?
Aðildarferlið
Margt var til fyrirmyndar í
umsóknarferli Maltverja, sem var
umfangsmeira en yfirstandandi
umsóknarferli Íslendinga því Mal-
tverjar voru vitaskuld ekki EES-
þjóð þegar þeir sóttu um aðild.
Mikið samráð var haft við hags-
munahópa og komið á sérstöku
nefndastarfi til að sem flestir
tækju þátt. Ein afleiðing þessa, ef
marka má skoðanakannanir, er sú
að meirihluta Maltverja finnst sem
afstaða hans eða „rödd“ skipti máli
og heyrist innan ESB, fleirum en
hjá ESB-þjóðum allajafna. Þá var
mikið rætt opinberlega og í fjöl-
miðlum um kosti og galla aðildar.
Úr skotgröfum í samstöðu
Malta er minnsta ríki ESB með um 410.000 íbúa. Þar urðu hatrömm átök um hvort ganga ætti í sam-
bandið. Klemens Ólafur Þrastarson sá að margt þar minnir á íslenskar aðstæður en annað ekki.
ÁRÓÐURSMYND Í umsóknarferlinu sagði Verkamannaflokkurinn meðal annars að
fóstureyðingar yrðu lögleiddar við aðild að ESB, en sérstök bókun gegn fóstur-
eyðingum var sett í aðildarsamninginn. Fóstureyðingar eru að öllu leyti eða hluta til
bannaðar í þremur ESB-ríkjum. Á Möltu, Írlandi og í Póllandi. NORDICPHOTOS/AFP
Maltnesk stjórnvöld hafa notað ESB-aðildina til að styrkja tengsl sín og stöðu meðal nágrannanna í Norður-Afríku og látið til sín
taka í málefnum Miðjarðarhafs. Maltverjar hafa til dæmis fjárfest í
Líbíu og eiga þar nokkurra hagsmuna að gæta. Þegar öll önnur ríki
ESB vildu beita Líbíu refsiaðgerðum fyrr í mánuðinum beittu Malt-
verjar neitunarvaldi sínu og stöðvuðu þær um nokkurt skeið. Þeir
hafa lokað flugvöllum Möltu fyrir árásarflugi til Líbíu.
Fyrir ekki hálfu ári síðan hitti forsætisráðherra Möltu Gaddafí,
leiðtoga Líbíu, að máli í Trípólí til að ræða öryggismál. Helsta málið
á dagskrá var það sem kallað hefur verið fjárkúgun Gaddafís,
sem fór fram á fimm milljarða evra í árlegan styrk. Í staðinn
myndi hann gera sitt til að koma í veg fyrir að þegnar sínir yfir-
gæfu heimalandið til að bætast í stóran hóp ólöglegra innflytj-
enda Evrópu. Sumir leiðtogar Evrópu hafa litið á Gadd afí sem
bandamann í þessum málum og litið framhjá aðstæðum fólksins,
sem hefur oft mátt dúsa í hraklegum flóttamannabúðum. Sam-
starf ESB og leiðtoga Norður-Afríku hefur verið vægast sagt
umdeilt meðal mannúðarsamtaka og víðar.
MALTA – ÍSLAND
■ BRÚ MILLI ESB OG AFRÍKU
Malta
Grikkland
Líbía Líbía
TúnisAlsír
Sikiley
Ítalía
Sardinía
MIÐJARÐARHAFIÐ