Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 23
LAUGARDAGUR 26. mars 2011 23
Allt þetta gerir það að verkum að
Maltverjar, minnsta þjóð ESB,
segjast vera ánægðari með fyrir-
komulag lýðræðis í ESB en flestar
þjóðir.
Ein helstu mótrök aðildar-
andstæðinga voru þau að sameigin-
leg löggjöf ESB myndi múlbinda
Maltverja og sýna viðkvæmu efna-
hagslífi lítillar eyju lítið sem ekk-
ert tillit. Þetta myndi þýða „enda-
lok atvinnu“ fyrir Maltverja, því
erlendir verkamenn tækju störfin
af innfæddum. Þjóðin stóð frammi
fyrir „endalokum vefnaðariðnaðar“
og „endalokum frelsis“. ESB-aðild
hefði í för með sér of margar reglur
og skyldur, íbúðarhúsnæði myndi
rjúka upp í verði, skattbyrði yrði
meiri og hefðbundnar fuglaveið-
ar bannaðar. Skipasmíðastöðvum
yrði lokað og hefðbundinn sjávar-
útvegur og landbúnaður liði undir
lok. Verkamannaflokkurinn lagði
aðild að ESB að jöfnu við að Malta
yrði aftur nýlenda.
Allt þetta, ásamt óvinsælum
umbótum innanlands sem gerðar
voru að kröfu ESB, stuðluðu að því
að stjórn Þjóðernissinna féll í miðju
aðildarferlinu, 1996. Umsóknin var
dregin til baka, sem fyrr segir,
en tveimur árum síðar náði Þjóð-
ernisflokkurinn völdum aftur og
umsóknarferlið hélt áfram. Fyrir
utan efnahagsmál snerist umræð-
an um menningarlega stöðu Möltu
(hvaða heimshluta Maltverjar ættu
að tilheyra og hvað það þýddi að
vera Maltverji), þjóðaröryggismál
og hvernig mætti tryggja að hæf-
asta unga fólkið færi ekki úr landi.
Samningurinn
Malta er talin hafa náð afar góðum
samningum. 76 sérlausnir eru í
samningnum um frest til aðlög-
unar eða klæðskerasaumaðar
lausnir: endanlegar undanþágur.
Maltverjar fengu til að mynda að
takmarka fasteignakaup útlendinga
og hindra fiskveiðar þeirra innan
25 mílna. Þá fengu þeir fjölda sér-
lausna í landbúnaði og sérstakan
ríkisstuðning við skipaþjónustu.
Stjórnvöld máttu og stöðva frjálsa
för erlendra verkamanna ef þurfa
þætti.
Árið 2002 vildu einungis 38%
Maltverja ganga í ESB, sam-
kvæmt skoðanakönnun. Þrátt fyrir
það studdu um 53% þeirra aðild
Möltu að ESB í ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu 2003. En þar með
var sögunni ekki lokið því Verka-
mannaflokkurinn hélt óbreyttri
stefnu og hótaði að stöðva aðildar-
ferlið, kæmist hann til valda. Það
mun hafa verið að beiðni ESB að
boðað var til þingkosninga fljót-
lega eftir aðildaratkvæðagreiðsl-
una, svo enginn vafi yrði um nið-
urstöðuna. Verkamannaflokkurinn
náði ekki meirihluta í þeim kosn-
ingum og aldrei eftir það, nema í
kosningum til Evrópuþingsins!
Eftir á að hyggja
Deilt er um áhrif þess að Malta fór
klofin í gegnum aðildarviðræður.
Sumir fræðimenn telja að Verka-
mannaflokkurinn hafi með afstöðu
sinni neytt þjóðina til að eyða orku
sinni í mál sem engu skiptu, þegar
hún hefði getað tryggt sér betri
samning. Þetta sjónarmið er ríkt
innan Verkamannaflokksins sjálfs.
Þar er harmað að flokkurinn hafi
enga raunverulega aðkomu eða
áhrif haft í ferlinu, utan neikvæðs
og ómarkviss þrýstings.
Aðrir benda á að sökum tak-
markaðs fylgis aðildar hafi ríkis-
stjórnin þurft að leggja sig sér-
staklega fram við að kynna ferlið
og áhrif og merkingu aðildarinnar
fyrir kjósendum. Þetta hafi aukið
pólitískan skilning og stuðning við
aðildina.
Enn aðrir benda á að þegar tveir
eigi í viðræðum, eins og Malta og
ESB, sé einungis samið um hið
semjanlega. Þegar samninganefnd
Möltu kom að samningaborðinu var
henni og fulltrúum ESB ljóst að
nefndin hafði afar skilyrt umboð og
gat ekki litið fram hjá sjónarmiði
stjórnarandstöðunnar. Ef hún ekki
næði góðum kjörum fyrir Möltu
væri betur heima setið, því samn-
ingurinn yrði kolfelldur: Sveigjan-
leikinn yrði allur að vera ESB-
megin borðsins. Því hafi hin mikla
andstaða stuðlað að því að þjóðin
landaði góðum aðildarsamningi.
Maltneska er eitt 23 opinberra tungumála ESB og fjölmargir Maltverjar starfa við að þýða og tala maltnesku fyrir ESB,
sem eyðir 30 milljónum evra í þetta verkefni árlega.
Einn málvísindamaðurinn orðaði það svo að áður hefðu Malt-
verjar haft áhyggjur af því að maltneska liði undir lok. Nú snúist
áhyggjurnar um að sæmilega kjarnyrt og góð maltneska heyrist
ekki utan eyjanna, því sú maltneska sem heyrist á vettvangi ESB
sé meira og minna út úr munni lögfræðinga. ESB-maltneskan er þó
sögð batna með hverju árinu.
Maltneska er semitískt mál og þróaðist úr siculo-arabísku. Hún
er eina tunga sinnar tegundar sem er rituð með latnesku letri og
einnig sú eina sem nýtur þess að vera opinbert tungumál ESB.
Stór hluti orðaforðans er úr ítölsku og ensku en kunnátta í þessum
tungum kemur fólki ekki endilega langt í samræðum á maltnesku.
„Jekk joghgbok, tkellem iktar bil-mod,“ skal sagt, vilji maður biðja
Maltverja að tala hægar. Enska er einnig opinber tunga á Möltu.
Eyþjóð með einstaka tungu
Magnús Árni Magnússon, stjórnmálafræðingur og dósent við Bifröst, er að ljúka við doktorsritgerð,
meðal annars um ESB-aðild Möltu. Hann bendir á að
Maltverjum hafi aldrei staðið EES-aðild til boða, ólíkt
Íslendingum. Þá stýri aðrir hlutir afstöðu fólks til ESB
í löndunum tveimur: Hin mikla tvískipting á Möltu
geri að verkum að annar flokkurinn varð næstum
sjálfkrafa á móti því sem hinn lagði til, ESB-aðild.
„En hér tengist þetta þessum leiðandi atvinnu-
greinum. Sjávarútvegurinn er ráðandi í umræðunni,
ásamt skeleggri og etnískri þjóðernishyggju sem hefur fengið að
grassera hér síðustu hundrað ár. Þjóðernishyggjan var allt öðru
vísi á Möltu, þar sem fólk vildi tengjast öðrum löndum. Það greindi
bara á um hvaða landi ætti að tengjast,“ segir hann. Þar hafi mótrök
verið efnahagsleg, en hér fjalli þau um fullveldi og tilfinningar: „Og
það er erfitt að berjast við tilfinningar með rökum.”
Aðrar pólitískar hindranir
Magnús Árni
Magnússon
Sameinaðir kraftar í nýju
útibúi Arion banka á Höfða
Við höfum opnað nýtt útibú á Bíldshöfða 20. Þar sameinast útibú
bankans í Árbæ, Grafarvogi og á Suðurlandsbraut á nýjum stað.
Í nýja útibúinu veita ráðgjafar okkar alhliða fjármálaþjónustu
og sérhæfða ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja.
Aðstaðan í Höfðaútibúi er öll hin besta og mikið lagt upp
úr því að gera heimsókn þína í útibúið sem ánægjulegasta.
Við erum hér fyrir þig og hlökkum til að taka á móti þér á nýjum stað.
ÍS
LE
N
S
K
A
S
IA
.IS
A
R
I
5
3
1
1
7
0
3
/1
1