Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 28
26. mars 2011 LAUGARDAGUR28
L
ilja Katrín Gunnars-
dóttir er stundvís.
Þegar blaðakona mætir
tímanlega á umsam-
inn stað er Lilja Katr-
ín mætt og búin að
koma sér fyrir. Hún er í hádegis-
hléi frá vinnunni sinni á Séð og
heyrt en Lilja Katrín hefur unnið
með hléum sem blaðamaður í sjö ár
og hóf reyndar þann feril á Frétta-
blaðinu 2004. „Ég ákvað að taka
mér frí frá námi eftir stúdentspróf
2002, vann og flakkaði um Spán.
Svo fór ég að vinna í afgreiðslunni
á Fréttablaðinu og sótti um blaða-
mannastarfið í kjölfarið,“ segir
Lilja Katrín. „Það er skemmtilegt
að vinna sem blaðamaður og fer
ágætlega með leiklistinni núna,“
segir Lilja Katrín sem leikur aðal-
hlutverkið í þáttunum Makalaus
sem eru sýndir á Skjá einum.
Skemmtileg tímavél
Þáttaröðin Makalaus var tekin upp
í ársbyrjun, vikur sem Lilja segir
hafa verið algjört ævintýri. „Þetta
er bara það skemmtilegasta sem
ég hef gert, ég held það hafi verið
smá leiðinlegt í vinnunni einn dag
af 34. Annars var alltaf frábært og
fólkið sem ég kynntist var hvert
öðru skemmtilegra. Það var dálítið
gaman að við vorum þarna nokkur
sem höfðum lært leiklist erlendis
og það tengdi okkur. Annars voru
þetta allt miklir snillingar, fólkið
sem sá um vinnslu þáttanna ekki
síst. Það er ótrúlegt að lesa handrit
og sjá svo að útkoman er miklu
flottari en maður hefði getað gert
sér í hugarlund.“ Lilja segist reynd-
ar hafa þurft að stífla fréttanefið
þegar hún var við tökur á Maka-
laus. „Ég sat einhvern tíma og
hugsað með mér að hér væri efni í
ótal fréttir, en svo slökkti ég bara
á forvitna blaðamanninum og hélt
áfram að vinna vinnuna mína.“
Prufurnar fyrir hlutverk í þætt-
ina fóru fram fyrir jól og segir Lilja
aldrei hafa verið jafn stressaða
eins og þegar hún tók þátt í þeim. „Í
flestum prufum hef ég verið frekar
slök en ég gat varla sofið áður en
ég mætti í þessa, mig langaði svo í
hlutverkið,“ segir Lilja, sem hafði
lesið bók Tobbu Marinós sem þætt-
irnir byggja á og langaði mikið til
að leika nöfnu sína Sigurðardóttur.
„Það var mjög gaman, líka vegna
þess að það var pínu eins og að fá
að heimsækja mig fyrir nokkr-
um árum aftur, lifa lífi einhleypr-
ar konu sem langar í kærasta og
fer mikið út að skemmta sér með
vinkonunum. Þetta er kannski
aðeins ýkta útgáfan af þessum
heimi, en mjög skemmtileg eigi að
síður,“ segir Lilja, sem fannst það
erfiðasta við þáttagerðina vera
fjarveran frá litlu eins árs dóttur
sinni Amelíu Björt.
Sagan sem ekki átti að segja
„Stundum fór ég út áður en hún
vaknaði og kom heim þegar hún var
sofnuð, það var erfitt,“ segir Lilja
sem hefur skrifað heilt leikrit um
meðgönguna og móðurhlutverkið,
Mamma, ég? Einleik sem hún sýndi
nokkrum sinnum í haust en stefnir
á að fara með í leikför um landið á
næstunni. „Við erum að skipuleggja
þetta tæknimaðurinn og leikstjór-
inn,“ segir Lilja, sem skrifaði leik-
ritið í fæðingarorlofinu.
„Dóttir mín hatar ekki að sofa, hún
svaf allar nætur og lagði sig á dag-
inn þannig að ég hafði mikinn laus-
an tíma. Félagi minn Svanur Már
Snorrason skrifaði leikritið með
mér og við sendum hvort öðru text-
ann. Kveikjan var sú að mig lang-
aði til að lýsa meðgöngunni eins og
hún er, með öllum fylgikvillunum,
og fæðingunni sömuleiðis. Ég vissi
mjög lítið um þessi mál og lang-
aði til að lýsa því að meðgangan er
fjarri því að vera dans á rósum þó
að hún sé auðvitað vel þess virði.
Þegar ég var búin að setja verk-
ið saman þá fannst mér það mjög
skemmtilegt og segja sögu stelpu
sem var frekar kærulaus, ætlar
ekki að eignast börn og verður svo
ólétt á mjög kæruleysislegan hátt,
en eignast svo barn sem hún elskar
út af lífinu,“ segir Lilja Katrín og
getur ekki annað en hlegið að því að
sagan af því hvernig hún varð ólétt
sé orðin hluti af leikriti, saga sem
hún skammaðist sín mikið fyrir í
fyrstu.
Lilja Katrín varð nefnilega ólétt
eftir einnar nætur gaman í Kaup-
mannahöfn. „Ég sendi barns föður
mínum, Hjalta Rúnari Sigurðs-
syni, línu á Facebook þegar ég
komst að því að ég var ólétt. Og
sagði honum um leið að ég ætlaði í
fóstur eyðingu. Hann sagðist styðja
mig í minni ákvörðun. Ég panta svo
tíma í fóstureyðingu á föstudegi en
á miðvikudeginum vill svo til að
tvær leikkonur í Borgarleikhúsinu,
þar sem ég var í starfsnámi, byrja
að ræða við mig í um barneignir og
hvað óvænt ólétta geti verið mikil
blessun. Ég hafði aldrei talað við
þær áður og þetta var mjög furðu-
leg tilviljun. Þær vissu auðvitað
ekki að ég væri ólétt, ég var ekki að
auglýsa það enda fannst mér hálf
skammarlegt hvernig hún kom til.”
Samtalið hreyfði við Lilju Katr-
ínu, sem tók þá ákvörðun á leiðinni
heim úr vinnunni að ganga með
barnið sem hún bar undir belti.
Þegar heim kom beið hennar einn-
ig bréf frá barnsföður hennar þar
sem hann sagðist vilja flytja heim
og ala barnið upp með henni.
Leikaradraumurinn sem rættist
Það varð úr og um leið og kom
heim flutti Lilja Katrín inn til hans
og þau hafa verið saman síðan.
Óléttan varð síðan til þess að Lilja
Katrín fór sér hægt í að koma sér á
framfæri í leiklistinni, en hún seg-
ist hafa lítil tengsl við íslenskan
leikhús heim. „Ég var reynd-
ar nokkra mánuði í starfsnámi í
Borgar leikhúsinu eftir að ég flutti
heim, var aðstoðarmaður leikstjóra
og það var bara mjög gaman. En
ég fékk ekkert að leika þar, ólíkt
skólasystkinum mínum sem fengu
að leika í sínu starfsnámi, það er
bara ekki hefð fyrir því hér,“ segir
Lilja Katrín sem lærði leiklist í
Árósum, í skóla sem hún fékk auga-
stað á sextán ára framhaldsskóla-
mær. „Ég sótti svo um á nokkrum
stöðum þegar ég hafði ákveðið að
láta leikara drauminn rætast, fór
í inntökupróf í Árósum og komst
inn.“
Skólinn er rússneskur og aðferðir
leikhúsmeistarans Stanislavskis í
hávegum hafðar. „Hann var þarna
uppi um alla veggi, og við gerðum
ótal æfingar í hans anda, marg-
ar mjög leiðinlegar,“ segir Lilja
og hlær. „Svo unnum við mikið í
okkur sjálfum, eina önnina áttum
við til dæmis bara að leika persónu-
legar sögur úr eigin lífi. Það tók á,
ég held reyndar að ég hafi aldrei
grenjað jafn mikið og þennan
tíma,“ segir Lilja Katrín, sem segir
að hún hafi lært ótrúlega mikið á
Árósaárunum, og auðvitað eignast
fullt af vinum. „Borgin er frábær,
alltaf eitthvað að gerast en samt
nægilega lítil til þess að maður
læri fljótt á hana,“ segir Lilja, sem
þurfti reyndar undir lokin á Dan-
merkurdvölinni að flytja í vafasamt
hverfi fjarri alfaraleið til að endar
næðu saman. „Haustið 2008 var
eiginlega ekki hægt að vera lengur
námsmaður í Danmörku. Þegar ég
flutti út var danska krónan um 10
krónur en var orðin 30 krónur eftir
hrunið,“ segir Lilja Katrín, sem
unir sér vel á Íslandi í dag.
„Dæmigerður dagur hjá mér
núna er þannig að ég fer með dóttur
mína til dagmömmu, í ræktina og
svo í vinnuna. Kem heim síðdegis
og er yfirleitt sofnuð snemma, ég
er algjör A-manneskja,“ segir Lilja
Katrín, sem mætir líka reglulega á
brennóæfingar. „Vinkona mín dró
mig með á Klambratúnið síðasta
sumar til að spila og eftir það varð
ekki aftur snúið. Ég hef aldrei æft
hópíþrótt áður en er mjög dugleg
að mæta og varð meira að segja
Íslandsmeistari í síðustu keppni,
liðin voru reyndar bara fimm en
ég er ótrúlega ánægð með titilinn,“
segir Lilja Katrín að lokum.
Uppáhaldsskemmtistaðurinn: Ölstofan alla leið!
Eftirlætismaturinn: Sushi. Ég gæti borðað það í öll mál ef ég væri milljóna-
mæringur.
Þegar við vinkonurnar hittumst þá er skemmtilegast að … rifja upp gamla
tíma, spila og dansa eins og fávitar. Að öskra nafn landsþekktra manna
hefur líka vakið mikla lukku.
Uppáhaldssjónvarpsþættir: Frasier, Friends og Seinfeld. Og ekki má
gleyma hinum hámenningarlega America‘s Next Top Model sem veitir mér
ávallt nýja sýn á lífið. Lítt þekkti breski þátturinn Deal or No Deal er svo
möst eftir vinnu.
Besta líkamsræktin: Tvímælalaust brennó.
Eftirminnilegasta lífsreynslan: Að eignast dóttur mína. Það er kynngi-
magnað og ólýsanlegt að finna manneskju koma út úr líkamanum á manni
– og vera gjörsamlega fullkomin öll útötuð í slími og blóði.
Pínlegasta atvikið: Skrifa Facebook-skilaboð til þáverandi ókunnugs manns
og segja honum að ég væri ólétt.
Fallegasti karlmaðurinn: Hjalti Rúnar Sigurðsson – allir karlmenn eru eins
og Quasimodo við hliðina á honum.
Besta partílagið: Þessa stundina er það S&M með Rihönnu. Roxanne með
The Police klikkar hins vegar aldrei þegar vín er við hönd.
Mér finnst rómantískt þegar … kærastinn minn kaupir handa mér danskt
nammi á dönskum dögum í Hagkaup því hann veit að ég elska það. Ég er
mjög einföld, ég veit.
Draumaferðalagið: Mig dreymir um að komast til Ástralíu. Sá draumur
hefur verið lifandi síðan ég byrjaði að horfa á Nágranna þegar ég var sex
ára gömul. Einn daginn mun ég komast á Ramsey-stræti og heilsa upp á
Harold.
DANSKT NAMMI ER RÓMANTÍSKT
Eins og að fara aftur í tímann
Lilja Katrín Gunnarsdóttir hefur aldrei verið jafn stressuð og þegar hún fór í prufur fyrir hlutverk aðalsöguhetjunnar í Maka-
laus. Ánægjan var því ótrúlega mikil þegar hún hreppti hlutverkið sem hefur vakið athygli á þessari ungu leikkonu sem vinnur
einnig sem blaðamaður en vonast til að verða leikkona í fullu starfi einn daginn. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Lilju.
LEIKKONA, BLAÐAMAÐUR OG BRENNÓSTJARNA Lilja Katrín Gunnarsdóttir sinnir mörgum hlutverkum á degi hverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ILVA.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
einfaldlega betri kostur
Tortilla m/osti og skinku, osti og
salami eða osti, lauk og papriku.
(Borið fram með salati.) Verð 690,-
nú 345,-
HEIT
TORTILLA