Fréttablaðið - 26.03.2011, Síða 36
26. mars 2011 LAUGARDAGUR2
„Ég hef yndi af því að elda og
umvefja vini mína, enda ég er vax-
andi kokkur og byrjandi í bakstri,“
segir María sem á pabbahelgum
ýmist vinnur eða fer í leikhús, en
hún er nú í Grímunefndinni.
„Þegar maður er leikari verður
það bæði atvinna manns og áhuga-
mál og ég reyni að sjá sem flest
á sviði leiklistar, dans og óperu.
Þessa helgina verð ég í Borgar-
leikhúsinu að spinna efni í dans-
leikhússýninguna Ferðalag Fön-
ixins þar sem goðsagan er notuð
sem vegvísir um óbyggðir lífs-
ins, en verkið verður frumsýnt á
Listahátíð í vor,“ segir María sem
fer líka á fund vinkvenna sinna um
helgar. „Þá erum við í rólegheit-
um, því mér hefur aldrei fundist
skemmtilegt að hanga á skemmti-
stöðum,“ segir María sem stundar
sund, göngur, skíði, hestamennsku
og hugleiðslu.
„Ég er lítið fyrir að sofa út og
hanga í rúminu, og finn stundum á
mánudögum að ég steingleymdi að
hvíla mig. Samt kann ég að slaka
á og hef stundað jóga frá því á
unglingsárum,“ segir María sem í
janúar hélt á vit indverskra munka
á Indlandi þar sem hún sótti hug-
leiðslunámskeið. „Bróðir minn var
munkur á Indlandi í áratugi og lét
munka taka á móti mér á flugvell-
inum, sem var ekki amalegt að fá
svo hlýjar móttökur í ókunnu landi
og í raun dálítið eins og að koma
heim,“ segir María sem síðan
hefur fyllt heimili sitt indversk-
um reykelsisilmi, tónlist og „chai“
á tehellunni.
„Í klaustrinu var bara græn-
metisfæði á boðstólum og hef ég
haldið mig við það síðan. Mér er
eðlislægt að borða hollt og hreyfa
mig og því set ég engar kryddpyls-
ur á pitsurnar nú,“ segir María og
skellir upp úr.
María er þessa dagana að skrifa
einleik um skáldkonurnar Guð-
nýju frá Klömbrum, Skáld-Rósu
og Agnesi Magnúsdóttur, sem
allar lentu í ástarsorg á 19. öld,
en Agnesi lék María í samnefndri
kvikmynd 1995.
„Ég velti mikið vöngum yfir
því hvernig maður þroskast og
umbreytist í lífinu, og þarna velti
ég því upp að eitt er að lenda í
áfalli en annað hvernig á að takast
á við það. Allar þessar konur tók-
ust á við ástarsorgina á mismun-
andi hátt, því ein dó úr ástarsorg,
önnur drap elskhuga sinn og sú
þriðja lifði af,“ segir María. En hví
er ástarsorg henni svo hugleikin?
„Eigum við nokkuð að fara út í
það?“ svarar hún brosandi. „Ástin
er aðalatriði í lífinu og alltaf verið
mér hugleikin. Mér finnst ótrú-
lega magnað hvernig hún kemur
og fer, þroskast og þróast, og ástin
hefur verið rauði þráðurinn í verk-
um mínum. Við Charlotta Böving
gerðum leikritið Mammamamma
um móðurástina og ég gerði Sölku
Völku ástarsögu og Úlfhamssögu
sem fjallar um ást í fallegri og
ljótri mynd, ásamt Sjúk í ást um
ástir systkina. Þessa dagana er ég
bara ástfangin af lífinu og börnun-
um mínum, meðan prinsinn á hvíta
hestinum er hvergi í sjónmáli.“
Annað kvöld verður María á
RÚV í Tíma nornarinnar, og brátt
hefjast tökur á nýrri syrpu gaman-
þáttanna Hæ, Gosi, þar sem hún
leikur færeyska hárgreiðslukonu.
„Ég tala færeysku reiprennandi,
en Ellingsen-nafnið kemur ekki
þaðan, heldur frá norskum lang-
afa sem var skipasmiður og kom
hingað til að taka við Slippnum
tvítugur að aldri. Hann stofnaði
líka verslunina Ellingsen, sem var
nýlega seld eftir 90 ára eign fjöl-
skyldunnar, og þar vann ég lengi
sem sendill og elska enn lyktina
af tjöru, hampi og steinolíu. Að
ætt minni koma líka færeyskir
sjómenn og íslenskir prestar, en
hinn langafi minn var séra Har-
aldur Níelsson sem 27 ára þýddi
Biblíuna.“
María reynir að fara sem oftast
til Færeyja. „Mamma er ein níu
systkina frá Vogi á Suðurey. Ég á
því stóran frændgarð í Færeyjum
og gæti vel hugsað mér að vera þar
lengur í senn.“
María átti góðu fylgi að fagna
í Hollywood á níunda áratugnum,
þegar hún lék í sjónvarpi og kvik-
myndum.
„Ég hef haldið hurðinni að
Hollywood opinni og er með
umboðsmann í Lundúnum sem
öðru hverju sendir eftir prufum.
Ég hefði þó ekki viljað daga uppi
sem Hollywood-leikkona því leik-
húsið á í mér sterka taug og ég
þarf að sinna minni þörf að segja
frá því sem mér sjálfri liggur á
hjarta.“
thordis@frettabladid.is
„Konur vinna svo oft við eldhúsborðið,” segir María sem ásamt fleiri listakonum
opnaði vinnuaðstöðu listakvenna með stóru eldhúsborði við Suðurgötu í janúar.
Framhald af forsíðu
„Ástin er aðalatriðið í lífinu og alltaf verið mér hugleikin.
Mér finnst ótrúlega magnað hvernig hún kemur og fer,
þroskast og þróast, og ástin hefur verið rauði þráður-
inn í verkum mínum.”
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur tónleika úti á landi dagana 26.-28.
mars. Kórinn byrjar í Dalsbúð í Búðardal klukkan 17 í dag og syngur við messu í
Reykhólakirkju klukkan 14 á morgun. Klukkan 20 sama dag verða almennir tónleikar í
Hólmavíkurkirkju og á mánudagskvöld verða tónleikar í Stykkishólmskirkju.
10%
25%
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
SKREF AÐ SKEMMTILEGU SUMRI
Ræktun matjurta í heimilisgarðinum
Hefst 29.mars
Trjárækt á sumarhúsalóðum
Haldið 13. apríl
Fáðu krydd í tilveruna:
Námskeið um ræktun kryddjurta
Haldið 22. apríl
VOR í
ENDURMENNTUN
Nánari upplýsingar og skráning á endurmenntun.is eða í síma 525 4444
Á ferð um Íslendingasagnaslóðir
með Magnúsi Jónssyni
Hefst 26. apríl
Vestfirðir – fjársjóður við hvert fótmál
Hefst 9. maí
Í ríki Vatnajökuls:
Austur-Skaftafellssýsla í allri sinni dýrð
Hefst 16. maí
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Gardeur
buxur
Gallabuxur
20% afsláttur - 3 litir
www.laxda
l.is
!"#
$%
&'
("
)*'! + &! ,-.#
/
'0
'
1
12)
3
45#"
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI
MENNING
Sölufulltrúi:
Jóna María
Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Miðvikudaga