Fréttablaðið - 26.03.2011, Page 56
● lh hestar 26. MARS 2011 LAUGARDAGUR4
„N1 er orðinn einn stærsti styrktaraðili Lands-
sambands og Landsmóts hestamannafélaga.
Þetta er hópur sem við viljum ná betur til og
sinna vel,“ segir Jón Gunnar Geirdal hjá mark-
aðsdeild N1. Að sögn Jóns Gunnars þurfa hesta-
menn góða þjónustu, enda sífellt á ferðinni.
„Hestamönnum stendur til boða að fá N1
kortið á sérkjörum og geta um leið valið sitt
hestamannafélag til að styðja með hálfri krónu
af hverjum seldum lítra af bensíni. Með kort-
inu færðu afslátt af eldsneyti, smurolíu, verk-
stæðisvinnu og meira og minna öllu er viðkem-
ur rekstri bíls.“
N1 stöðvar um landið eru orðnir um 120 tals-
ins. Af afsláttarkjörum N1 kortsins fyrir hesta-
menn má nefna 5 króna afslátt af eldsneyti,
15% afslátt af smurolíu, 15% afslátt af smur-
þjónustu og 15% afslátt af almennum rekstr-
arvörum.
Hægt er að greiða fyrir vörur í N1 verslun-
um og þjónustustöðvum með N1 punktum þar
sem hver punktur jafngildir einni krónu.
Þess má geta að handhafar N1 kortsins fá
1.000 króna afslátt af hverjum aðgangsmiða
inn á Landsmót hestamanna á þessu ári og því
næsta.
N1 býður afslátt fyrir hestamenn
N1 kortið býðst hesta-
mönnum á sérkjörum.
Blönduð og skemmtileg fjölskyldu-
sýning er á dagskrá í Reiðhöllinni
í Víðidal næstkomandi föstudag,
1. apríl. Sex hestamannafélög á
höfuðborgarsvæðinu standa að
sýningunni en öll hafa þau lagt
mikla vinnu í dagskrá Hestadaga
í Reykjavík.
Bæði unglingarnir í félögunum
sem og fullorðnir félagsmenn taka
þátt í sýningunni þannig að ungir
sem aldnir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi. Meðal þess sem sjá
má er skrautreið, glæsilegar tölt-
sýningar, skeið auk gleði og söngs.
Þá verður og óvæntrar uppákomu
að vænta um kvöldið.
Sýningin hefst klukkan 20 og
aðgangseyrir er 1.000 krónur en
frítt er inn fyrir 13 ára og yngri.
Fjölskyldu-
sýning í Víðidal
Sýningin í Reiðhöllinni á föstudag er
afar fjölbreytt.
Opna mótið, Lífstölt, verður hald-
ið í Reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ á
morgun, 27. mars. Mótið er haldið
til styrktar Kvennadeild Landspít-
ala en það er Hestamannafélagið
Hörður í samstarfi við styrktar-
félagið Líf sem heldur mótið.
Allir sem standa að mótinu gefa
vinnu sína. Aðgangseyrir er frjáls,
utan 500 króna lágmarks, og
skráningargjald er einnig frjálst,
utan 1.000 króna lágmarks. Ágóði
af hvoru tveggja rennur óskiptur
til málefnisins.
Keppt er í fjórum flokkum á
mótinu: Byrjendur, minna vanar,
meira vanar og svo í opnum flokki.
Verðlaunin eru peningagjafir sem
renna beint til Lífs.
Sigríður Klingenberg opnar
mótið, sem hefst klukkan 10, og
leiðir skrautreið til heiðurs konum.
Þá munu þeir Auðunn Blöndal,
Egill „Gillz“, Steindi jr. og Nagl-
bíturinn Vilhelm Anton Jónsson
þreyta með sér keppni í því hver
ríður í fyrstur í mark með könnu
fulla af brjóstamjólk.
Mót til styrktar
Kvennadeild
Allur ágóði af mótinu Lífstölti rennur
óskiptur til Kvennadeildar Land-
spítalans.
Lynghálsi 3
Lónsbakka, Akureyri Sími: 540 1150
Sími: 540 1125 www.lifland.is
,