Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 74
26. mars 2011 LAUGARDAGUR42 42
menning@frettabladid.is
Laugardagur 26. mars 2011
➜ Tónleikar
15.00 Vortónleikar Vox feminae,
Þar skein sól í heiði, verða haldnir í
Grensáskirkju í dag kl. 15. Aðgangseyrir
kr. 1.500. Miðar seldir við inngang.
22.00 Hljómsveitin Gæðablóð heldur
tónleika á Bar og gallerí 46 í kvöld kl.
22. Leikin verða lög eftir aðra listamenn
frá ýmsum löndum. Aðgangseyrir kr.
1.500.
➜ Sýningar
14.00 Listakonan Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir opnar sýninguna Þorra-
blót í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í dag kl. 14. Á opnuninni leikur
Friðjón Hallgrímsson á harmoniku og
Gunnar Þorsteinsson fer með kvæði.
➜ Myndlist
15.00 Myndlistamaðurinn Ingimar
Waage opnar olíumálverkasýningu
í Gallerí Fold í dag kl. 15. Sýningin
stendur til 10.apríl.
➜ Útivist
10.00 Landssamtök hjólreiðamanna
bjóða til hjólreiðaferðar í dag kl. 10.15.
Lagt af stað frá Hlemmi. Hjólað í 1-2
klst. Allir velkomnir. Þátttaka ókeypis.
Sunnudagur 27. mars 2011
➜ Tónleikar
17.00 Orgeltónleikar Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur fara fram í Hjalla-
kirkju kl. 17. Helga leikur verk eftir
Buxtehude, Mendelssohn, Messiaen og
Jón Nordal. Aðagangur er ókeypis.
➜ Sýningarspjall
15.00 Myndlistamaðurinn Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson verður með lista-
mannsspjall á sýningunni Varanlegt
augnablik. Spjallið verður í Hafnarborg
kl. 15. Enginn aðgangseyrir.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni verður
að Stangarhyl 4 í kvöld frá kl. 20-23.
Danshljómsveitin Klassík leikur dans-
lög.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Tilgangurinn með ferð minni var að safna fyrir
prófessorinn dæmum um tvítölu, skrá þau niður ítar-
lega með upplýsingum um viðmælendur, svo sem heim-
kynni þeirra, aldur og stöðu. Söfnunin yrði að eiga
sér stað í dreifbýli, því það var vitað mál að tví-
talan lifði þar betur en í borgunum, þar sem hún
var um það bil að deyja út.
Þar sem ég sat í þröngum lestarklefanum á leið minni
til Ljubljana braut ég mjög heilann um það hvernig ég
ætti að standa að söfnuninni. Takmarkið væri jú að
ná á blað sem flestum setn ingum sem fælu í sér hina
víkjandi tvítölu, það er að segja orðin við (nf.),
okkur (þf. og þgf.) og okkar (ef.) í stað hinna
algengari beygingarmynda vér, oss og vor. Samsvarandi
orðmyndir í annarri persónu yrðu þá þið, ykkur og
ykkar, í stað þér, yður og yðar. Skyndilega flaug mér
í hug þetta snilldarráð: Ég skyldi skrifa niður aug-
lýsingu, og fá hana birta í útbreiddasta dagblaði
Slóvena! Ég bretti upp ermarnar, setti mig í
skriftar stellingarnar og hripaði niður auglýsingu
sem hljóðaði svo: „Vel stæður Frakki auglýsir eftir
landsbyggðarstúlku með hjónaband í huga. Vinsamlegast
skrifið niður og sendið á neðangreint póstfang helstu
upplýsingar um yður sjálfa, sem og hugmynd yðar um
hjónabandið og samvistir hjóna“.
Það þurfti ekki að spyrja að árangrinum. Bréfin
hrönnuðust upp og tugir kvenna tjáðu þar væntingar
sínar til hjónabandsins, og ýmist skrifuðu þær við
myndum eða vér myndum, við svæfum eða vér svæfum,
heimili okkar eða heimili vort og svo framvegis.
Dásamlegt! Nú þurfti ég ekki annað en að bæta við
nokkrum viðtölum við karlmenn, svo að prófessorinn
yrði ánægður.
Bréfin voru mörg hver tilfinningaþrungin og sneisa-
full af draumum um betra líf og bætta þjóðfélags-
stöðu. Eitt bréfanna bar þó af, bæði hvað varðaði
tvítölunotkun og hugmyndir um sambúð karls og konu.
Þessu bréfi svaraði ég, og með þeim hætti tókst mér
að ná kynnum við verðandi eiginkonu mína. Ég sneri
því til baka, og býsna lukkulegur með árangurinn.
Einhleypingurinn fyrrverandi hugsar nú í tvítölu.
Aðalheiður Guðmundsdóttir:
Einhleypingurinn
1. SÆTI: Aðalheiður Guðmundsdóttir, aðjúnkt í þjóðfræði á Félagsvísinda-
sviði. Aðalheiður átti tvo af þeim 25 textum sem sýndir voru í Kringlunni. Báðir
voru þeir í hópi 20 smásagna sem hún skrifaði nýlega en stytti fyrir keppnina.
Hún segir skáldskapinn góða leið til að ljá fræðunum nýtt líf en í Einhleypingn-
um styðst hún við gamla munnmælasögu um hvernig franskur málfræðingur
stóð að söfnun málfræðidæma. Í sigurlaun fékk Aðalheiður bókapakka frá Opnu.
ÁTTU ORÐ? Fréttablaðið birtir þrjá texta sem urðu hlutskarpastir í Áttu orð? – textasamkeppni Hug-
vísindasviðs Háskóla Íslands. Tilkynnt var um úrslitin 19. mars. Hugvísindasvið efndi til keppninnar
í tilefni af aldarafmæli Háskólans og var nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans boðið
að taka þátt. Hátt í 200 textar voru sendir inn. Þriggja manna dómnefnd, skipuð lektor í ritlist og
tveimur rithöfundum, valdi úr þeim 25 texta sem voru til sýnis í Kringlunni 11. til 19. mars. Gestir
Kringlunnar gátu látið skoðun sína í ljós og hafði dómnefnd atkvæði þeirra til hliðsjónar þegar hún
valdi þá þrjá texta sem þóttu skara fram úr.
Áttu orð? Textasamkeppni Hugvísindasviðs Háskóla ÍslandsHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
21.30 Styrktartónleikar fyrir Krabbameinsfélag Íslands verða á Sódómu í kvöld. Fram koma Böddi úr Dalton, Morgan
Kane, Morning After Youth, Noise, UnderCover, Endless Dark og Finnegan. Allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameins-
félagsins. Húsið verður opnað 21.30. Aðgangseyrir kr. 1.500, en kr. 1.000 fyrir þá sem skarta mottu.
Bændur flugust á
Í tilefni þess að Ísland verður heiðursgestur á Bókasýningunni í
Frankfurt í haust hafa Bergur Ebbi Benediktsson, Ugla Egilsdóttir
og Dóri DNA sett saman skemmtilega sýningu sem byggir á
Íslendingasögunum. Sýningin heitir Bændur flugust á og er í léttum
dúr þar sem sögurnar eru skoðaðar frá óvæntum og skemmti-
legum sjónarhornum.
Með stuðningi Landsbankans fer þessi sýning víða um land
28/3 Brúarásskóla við Egilsstaði, kl. 10
Menntaskólanum á Egilsstöðum, kl. 15
29/3 Menntaskólanum á Akureyri, kl. 9
Framhaldsskólanum Húsavík, kl. 14
30/3 Framhaldsskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, kl. 11
31/3 Fjölbrautaskóli Suðurlands, kl. 9:45
1/4 Fjölbrautaskóla Suðurnesja, kl. 11:10
2/4 Njálusetrinu á Hvolsvelli, kl. 15
6/4 Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi, kl. 12:10
Verið velkomin á opnun sýningarinnar
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Laugardaginn 26. mars kl. 14
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir fangar þorrablóts-
stemningu fyrr og nú með skúlptúrum og lágmyndum.
Við opnun leikur Friðjón Hallgrímsson á harmoniku
og Gunnar Þorsteinsson fer með kvæði.
Sunnudaginn 27. mars kl. 14 - 16
Aðalheiður býður börnum og
aðstandendum þeirra að skapa listaverk
í anda sýningarinnar Þorrablót. Allir velkomnir!
Þorrablót
Listsmiðja
Menningarmiðstöðin Gerðuberg | Gerðubergi 3-5 | 111 Reykjavík | Sími 575 7700 | gerduberg@reykjavik.is | www.gerduberg.is