Fréttablaðið - 26.03.2011, Qupperneq 75
LAUGARDAGUR 26. mars 2011 43
„Þetta er skírskotun í heilunarmátt
íslenskrar náttúru,“ segir myndlistar-
maðurinn Tolli um sýningu sína
Græðandi kraft, sem verður opnuð í
galleríinu Listamenn við Skúlagötu
í dag. Þar verða sýndar níu myndir
sem eiga það sameiginlegt að túlka
þennan kraft.
„Ég nota mjög jarðbundna liti,“
segir Tolli, „ég hef oft keyrt meira
á sterkum litum en vildi halda mig
meira á jörðinni í þetta sinn.“ Hug-
myndin þar að baki er að náttúran
sé eins og æðri máttur og leiki stórt
hlutverk í lífi lands og þjóðar. Fólk
eigi að horfa til þess og nýta sér á
jákvæðan hátt.
„Við getum lært
það af samskiptum
við náttúruna að
það er bara ein
leið að lifa, það er
meðalvegurinn.
Náttúran hefur sín
efnislegu mörk en
græðgin sem knýr
okkur áfram er tak-
markalaus. Það er
hins vegar engin
leið fyrir okkur að
komast af nema að finna þetta jafn-
vægi, ekki bara í umgengni okkar
við náttúruna heldur líka innra með
okkur. Þetta er auðvitað gömul saga
og ný. Hvort þetta skili sér í verk-
unum er síðan annað mál en þetta
er að minnsta kosti framlag mitt til
umræðunnar.“
Sýningin verður opnuð klukkan 16
í dag og stendur til 17. apríl. Fyrstu
hundrað gestirnir fá að gjöf disk með
möntru eftir Dalai Lama sem veitir
þeim sem fer með hana hugrekki,
eldmóð og staðfestu. Tolli ætlar líka
að gefa alþingismönnum eintak af
möntrunni.
„Þetta er auðvitað táknræn gjöf en
málið er að þetta virkar líka. Okkur
veitir ekki síst af þori til að fyrirgefa
í þessu samfélagi, því þá fyrst getum
við farið að byggja aftur upp.“ - bs
Skírskotun í heilunarmátt náttúru
TOLLI
Boðið verður upp á tveggja
flygla Tíbrár-tónleika í Salnum
í Kópavogi á morgun. Þá setj-
ast við slaghörpurnar Helga
Bryndís Magnúsdóttir og Alad-
ár Rácz og flytja verkin Til-
brigði við stef eftir Haydn eftir
Johannes Brahms, Rondo eftir
Frederic Chopin, Sónata fyrir
tvö píanó í D-dúr eftir Mozart
og La Valse eftir Maurice
Ravel.
Tónsmíðar fyrir tvö píanó
tíðkuðust hjá tónskáldum nítj-
ándu aldar og við upphaf þeirr-
ar tuttugustu. Þannig gafst
tækifæri til að leyfa samtíma-
mönnum tónskáldanna til að
hlusta á stærri og viðameiri
verk þar sem ekki var á færi
allra hljómsveita að leika þau.
La Valse eftir Ravel hefur
aðeins einu sinni áður verið
flutt á Íslandi leikið á tvo flygla.
Hér er því um fágætt tækifæri
fyrir píanóunnendur að ræða.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.
Flyglar fljúg-
ast á í Salnum
Lúðrasveit Reykjavíkur og
Lúðrasveit Þorlákshafnar leiða
saman lúðra sína og sameinast í
rúmlega 80 manna stórblásara-
sveit um og eftir helgina. Saman
munu þær halda tvenna tónleika,
í Langholtskirkju á sunnudag
klukkan 17 og í Íþróttamiðstöð
Þorlákshafnar á mánudag klukk-
an 20.
Á efnisskránni eru verk eftir
þekktustu tónskáld blásara-
sveitatónlistar síðustu ára,
þá Frank Erickson, Clare
Grundman, Alfred Reed, Jan Van
der Roost, Gioacchino Rossini
og Gustav Holst. Verkin á efnis-
skránni eru: Overture Jubiloso
eftir Frank Erickson, Hebrides
Suite eftir Clare Grundman og La
Danza eftir Gioacchino Rossini.
Stjórnendur á tónleikunum eru
Robert A. Darling og Lárus Hall-
dór Grímsson.
Blásið í lúðra
HELGA BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR Leikur
ásamt Aladár Rácz verk eftir Ravel sem
hefur aðeins einu sinni áður verið flutt á
tvo flygla hér álandi.
Sigurður Bessason, formaður Vilhjálmur Egilsson, varaformaður
Friðrik J. Arngrímsson Guðmundur Ragnarsson
Heiðrún Jónsdóttir Hermann Magnús Sigríðarson
Sigurrós Kristinsdóttir Sveinn Hannesson
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Árni Guðmundsson
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
lífeyrissjóður
Efnahagsreikningur: 31.12.2010 31.12.2009
Verðbréf með breytilegum tekjum 74.934 79.975
Verðbréf með föstum tekjum 135.603 120.167
Veðskuldabréf 15.394 14.407
Bankainnstæður 18.029 17.937
Kröfur 2.626 1.853
Fasteign, rekstrarfjármunir og aðrar eignir 268 232
Skuldir - 5.811 - 7.265
Hrein eign til greiðslu lífeyris 241.043 227.306
Breytingar á hreinni eign: 2010 2009
Iðgjöld 11.226 10.840
Lífeyrir - 7.785 - 7.884
Framlag ríkisins vegna örorku 969 965
Fjárfestingartekjur 9.754 14.821
Fjárfestingargjöld - 162 - 146
Rekstrarkostnaður - 303 - 272
Aðrar tekjur 38 40
Hækkun á hreinni eign á árinu 13.737 18.364
Hrein eign frá fyrra ári 227.306 208.942
Hrein eign til greiðslu lífeyris 241.043 227.306
Kennitölur: 2010 2009
Hrein nafnávöxtun 4,0% 6,8%
Raunávöxtun 1,5% -1,5%
Hrein raunávöxtun 1,4% - 1,7%
Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) -3,9% - 1,0%
Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 2,2% 2,0%
Eign umfram heildarskuldbindingar (%) - 8,1% -11,6%
Fjöldi virkra sjóðfélaga 25.175 25.521
Fjöldi sjóðfélaga með réttindi 181.127 177.791
Fjöldi launagreiðenda 3.955 4.033
Fjöldi lífeyrisþega 14.919 14.552
(Allar fjárhæðir í milljónum króna)
Stjórn sjóðsins:
Ársfundur sjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl n.k. kl. 17.00 á Grand Hótel, Reykjavík.
Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.
Ársfundur 2011
Afkoma
Hrein nafnávöxtun sjóðsins á árinu 2010 var 4,0% sem jafngildir 1,4% hreinni raunávöxtun. Ávöxtun innlendra
hlutabréfa var 19,9% og erlendra hlutabréfa -3,3% í íslenskum krónum. Raunávöxtun skuldabréfa var 3,6%.
Eignir sjóðsins skiptast þannig: Innlend ríkistryggð skuldabréf eru 47,4%, veðskuldabréf 6,4%, önnur
skuldabréf 9,2%, innlend hlutabréf 2,7%, erlend verðbréf 27,1% og bankainnstæður 7,2%.
Séreign
Hrein eign séreignardeildar í árslok 2010 var 2.557 milljónir króna og hækkaði um 97 milljónir króna
frá fyrra ári. Raunvöxtun séreignardeildar sjóðsins var þannig: Framtíðarsýn I 5,6% (nafnávöxtun
8,4%), Framtíðarsýn II 6,9% (nafnávöxtun 9,7%) og Framtíðarsýn III sem er verðtryggður
innlánsreikningur bar að meðaltali 4,2% raunvexti á árinu 2010. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild
námu samtals 288 milljónum króna á árinu.
Starfsemi á árinu 2010