Fréttablaðið - 26.03.2011, Síða 76
26. mars 2011 LAUGARDAGUR44
Opnir málfundir...
...um vísinda- og nýsköpunarkerfi ð
Vísinda- og tækniráð efnir til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og
nýsköpunarkerfi ð á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfi rskriftinni;
„Með gæði og ávinning að leiðarljósi.“
Miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17
í Náttúrufræðistofnun Íslands, Urriðaholtsstræti, Garðabæ
Slá menntakerfi ð, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífi nu?
Inngangserindi
Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands ehf.
Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika.
Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa.
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka Iðnaðarins.
Fundarstjóri: Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs.
Næsti málfundur
Þekkingaryfi rfærsla - stífl ur eða opnar gáttir?
Miðvikudaginn 27. apríl kl. 15-17.
Miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17 í Náttúrufræðistofnun Íslands
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
folk@frettabladid.is
Breski söngvarinn Robbie Willi-
ams lét hafa það eftir sér í viðtali
við þýskan sjónvarpsþátt að hann
væri skíthræddur við ábyrgð-
ina sem fylgdi því að vera faðir.
Eigin kona hans, Ayda Fields, er
víst byrjuð að huga að barneign-
um en Williams heldur því fram að
ábyrðin sem fylgir föðurhlutverk-
inu eigi eftir að gera honum gott
þótt honum finnist tilhugsunin
ógnvekjandi. „Ég verð góður faðir
þegar þar að kemur vegna þess að
ég verð,“ viðurkenndi Williams og
bætti við að hann hefði gott af því
að hugsa um einhvern annan en
sjálfan sig.
Hræddur við að verða faðir
FÖÐURHLUTVERKIÐ Robbie Williams
viðurkennir að hann sé byrjaður að
hugsa um að fjölga sér og er hræddur
við ábyrgðina sem því fylgir.
Söngkonan Gwen Stefani úr No
Doubt ætlar að bjóða sjálfa sig
upp í von um að safna peningum
handa fórnarlömbum hamfar-
anna í Japan. Hæstbjóðand-
inn fær að hitta Stefani í eigin
persónu og vera með henni
á fjáröflunarsamkomu í Los
Angeles. Stefani hefur þegar
gefið eina milljón dala, eða yfir
eitt hundrað milljónir króna, til
samtakanna Save the Children
sem aðstoða börn sem hafa
orðið illa úti vegna hamfaranna.
„Japan hefur veitt mér innblást-
ur í mörg ár og ég ber mikla virð-
ingu fyrir Japönum og menningu
þeirra,“ sagði Stefani.
Á uppboði
fyrir Japan
GWEN STEFANI Söngkonan býður sjálfa
sig upp vegna hamfaranna í Japan.
Listahópurinn Sirkus
Íslands setur upp sýningu á
skemmtistaðnum Bakkus í
apríl næstkomandi. Sýning-
in er skemmtileg blanda
af kabarettgjörningi og
burlesque-dansi.
Sjónvarpskonan Margrét Erla
Maack er meðlimur í Sirkusi
Íslands og segir hún tilefni sýn-
ingarinnar vera komu bandaríska
burlesque-dansarans Freyu West
til landsins. Freya mun koma fram
ásamt Sirkusi Íslands og að sögn
Margrétar Erlu standa nú yfir
strangar æfingar þar sem hvert
atriði er fínpússað. „Það mætti
lýsa þessu sem sirkus fyrir full-
orðna. Þarna verða atriði sem ekki
hæfa börnum og eru jafnvel ekki
allra, fólk þarf að mæta með opinn
huga,“ segir hún og bætir við að
sýningar sem þessar hafi verið að
slá í gegn bæði í Bandaríkjunum
og á meginlandi Evrópu.
Þeir sem þátt taka í sýningunni
eru allir mikið hæfileikafólk og
gengur sýningin því ekki aðeins út
á að sýna bert hold og segja dóna-
lega brandara. „Þetta er „hæfi-
leika-show“. Þetta er allt fólk
með ólíkan bakgrunn og við erum
meðal annars með menntaðan trúð
frá Danmörku á okkar snærum,”
segir Margrét Erla, sem líkir sýn-
ingunni helst við gjörningakvöld
í anda þeirra sem Leikhús lista-
manna setur upp.
Spurð hvort hún hlakki til sýn-
ingarinnar svarar Margrét Erla
því játandi. „Það er sagt að
börn séu erfiðustu áhorfendurnir
en þau eru einnig þeir bestu því
þau eru svo einlæg. Ég held að
Íslendingar með bjór við hönd
verði engu verri áhorfendur,
jafnvel skemmtilegri,“ segir
hún og hlær.
Sýningin fer fram þann
9. apríl klukkan 22.30 og er
aðgangseyrir 1.500 krónur. - sm
DJARFUR SIRKUS
BURLESQUE Margrét Erla Maack og
Sirkus Íslands munu setja upp skemmti-
legan sirkus fyrir fullorðna hinn 9. apríl.
MARGRÉT ERLA
MAACK