Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1923, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.11.1923, Blaðsíða 12
330 verurétt, og að trúmenska við það á að vera sú hugsjón, sem lýsir því í öllu starfi og framkvíomdum. Því meiri, sem kærleikurinn verður til þess málefnis, því fleiri verða þeir, sem fúsir eru til að leggja í sölurnar fyrir það nokkuð af kröftum sínum og efnum. Þannig og þannig einungis verður varanlega trygð fjármálahlið hinna kristilegu starfsmála. Yið það ber líka að kannast, að þrátt fyrir það, hve skamt á leið er fyrir oss komið í mörgum efnum. þá hvílir vor kirkjulegi félagsskapur á þeim aðallega hvað fjármál snertir eins og í öðru, sem er svo aht um mál- efnið, að þeir eru viljugir að leggja í sölurnar fyrir það, þó þeir þurfi að taka sér nærri. Það er til margt fólk í söfnuðum vorum, sem gefur til kirkjulegra þarfa á hverju ári, með gleði og án möglunar, upphæðir, sem eftir efnum og árferði nú sýna, að þar er sjálfsfórnar- hugmr. Yið þetta ber að kannast, og þessu ber að halda á lof-ti. Slík dæmi eru áhrifameiri til vakningar í þessu efni, en nokkrar fortölur. Og þeim fjölgar einungis þannig, að skilningur á .starfsmálunum og kærleikur til þeirra útbreiðist. Það eru sérstök vankvæði nú í peningamálum, vegna þess að árferði og efnalegar ástæður fólks eru víða mjög erfiðar. Vegna þess hvílir sú skylda á öllum fé- lagsskap, ekki síður en einstaklingum, að fara sem bezt með fé, án þess þó að láta nauðsynleg málefni líða. En svo ríður á því líka, að hvergi sé vanrækt að minna á málefnin, svo þeir, sem fúsir eru til að veita þeim lið, leiði það ekki hjá sér vegna þess það fari fram hjá þeim að það sé brýn þörf í sambandi við þetta málefnið eða hitt. Þar hygg eg að hafi verið hvað mest vanræksla hjá oss. Það er mín reynsla, að starfsmálin kristilegu fái stuðning hjá fólki voru, þegar á þau er mint og hin sérstaka þörf í það og það skiftið útskýrð. Þetta þarf sérstaklega að rækja á þessu ári, svo að almenn hluttaka í öllum málum vorum megi bæta upp erfiðleika þá, sem árferðið hefir í för með sér. Prestarnir og safnaða leið- togar þurfa að minnast skyldu sinnar í þessu efni. Svo er nokkuð mismunandi hvernig árferðið hefir leikið

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.