Sameiningin - 01.11.1923, Blaðsíða 13
331
menn, og ættu þeir, sem bezta afkomu hafa, að finna til
þess, að nú hvílir á þeim sérstök skylda. Hver prestur
og leikmaður ætti að finna til þess, að sé honum það
mögulega unt, ætti hann að leggja til allra starfsmála
vorra eins ríflega og ástæður frekast leyfa, og að sjálf-
sögðu æt'ti enginn að vilja binda öðrum þær byrðar, er
hann sjálfur ekki vill bera. Bezta áminningin til ann-
ara um að gefa, er að gefa sjálfur.
Starfsmálin, er á fé þurfa að halda nu, eru: Jóns
Bjarnasonar skóli, Betel, heiðingjatrúboð og heimatrú-
boð.
Jóns Bjarnasonar skóli hefir nú eignast nýtt heim-
ili. Við hefir líka verið bætt fyrsta bekk í College í við-
bót við það, sem áður var. Ætti hann því betur að
geta fullnægt tilgangi sínum en áður. Það, sem skólinn
hefir til síns ágætis fram yfir skóla ríkisins, er að hann
er kristilegur skóli og leggur stund á íslenzkunám. Að
kristilegir skólar séu nauðsynlegir, er betur og betur að
skiljast þeim, er kristindómi unna. Að íslenzkunám
hafi hið mesta menningargildi, er ekki álitamál fyrir
þeim, er nokkurt skyn bera á slíka hluti. Því miður eru
ástæður þannig, að ekki allir Islendingar liér og ekki
heldur alt kirkjufólkið getur haft bein not af skólanum,
en þrátt fyrir það ætti svo gott fyrirtæki að njóta al
mennra vinsælda, og almenns stuðnings. Þá er því
borgið.
Betel hefir verið svo vinsæl stofnun, að verðleik-
um, að frá byrjun hefir það verið stutt af ráði og dáð
af fólki voru. Það er svo nauðsynlegt og fagurt kær-
leiksverk, sem þar er verið að vinna, að það mælir með
sér við alla göfuga menn. Byrjun hefir verið gerð til
minningarsjóðs fyrir þá stofnun, og er ætlast til, að
vöxtum af þeim sjóði, er hann væri myndaður, sé varið
upp í reksturskostnað stofnunarinnar. Eg tel víst, að
margir muni minnast Betel á þessu ái’i, einmitt með
það í huga, að árferðið verði ekki stofnuninni til hnekk-
is. — Og margir ættu að verða til þess aðminnast bæði
Betel og Jóns Bjarnasonar skóla í erfðaskrám sínum.
Heiðingjatrúboðsmálið hefir á þessu ári vakið sér-