Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1923, Qupperneq 14

Sameiningin - 01.11.1923, Qupperneq 14
332 staka athygli meðal vor, vegna þess, að trúboði vor, séra Octavíus Thorlaksson, hefir ferðast um ílestar bygðir vorar. Við það ber að kannast, að þetta mál er ekki það stórmál í huga vorum, sem það ætti að vera. En að iskilningur á því og áhugi fyrir því sé að fara vaxandi, tel eg ekkert vafamál. Þeir, sem gjöfum héti} því málefni á. síðasta kirkjuþingi, en hafa ekki enn þá greitt þau loforð, ættu sem fyrst að senda peningana til féhirðis kirkjufélagsins. Eins ættu þeir, sem tóku við gjafaspjöldum af trúboðanum, og hafa í hyggju að styrkja málið, að ,senda spjöldin og upphæð þá, er þeir vilja gefa, annað hvort beint til féhirðis, eða þá að af- henda það einhverjum presti kirkjufélagsins, er mundi senda það áleiðis. Á næsta vori ættu að sjálfsögðu að vera borin fram heiðingjatrúboðsoffur í sem allra flestum söfnuðum kirkjufélagsins. Heimatrúboðið er vanalega styrkt að haustinu, og vonandi er, að það hafi að þessu sinni verið styrkt al- ment og vel. En ef einhverjir söfnuðir hefðu ekki enn þá lagt neitt til þess máls, er þetta kemur fyrir almenn- ings sjónir, eru þeir beðnir að gera það hið fyrsta. Vér ættum að temja oss bjartsýni í sambandi við fjármr.lin, e'kki bjartsýni^ sem leiðir til þess að menn liggi á liði sínu, heldur bjartsýni, sem treystir því, að ef vel er unnið fyrir gott málefni, þr« muni Drottinn blessa þá viðleitni, svo hún beri mikinn árangur, og góð málefni líði ekki vegna fjárskorts. K. K. Ó. Á víð og dreif. Coolidge forseti hafSi ekki fram aS þeim tíma, aS hann gerSist forseti veriS meSlimur neins kristins safnaSar, þó hann væri trúrækinn og kirkjurækinn, og hefði áhuga á starfsmálum kirkjunnar. En þegar hann tók viö embætti, gerSist hann meSlimur Fyrsta kongregazíónalista safnaSarins í Washington. Hann játaöi trú safnaSarins, gekk til GuSs borSs viS opinbera gusþjónustu safnaSarins, og gerSist þannig sjálfur formlega meblimur hinnar sömu kirkjudeildar og kona hans og synir

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.