Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1923, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.11.1923, Blaðsíða 30
348 í Kristí krafti eg segi: kom þú sæll þegar þú vilt.” Hallgrímur er ekki meira skáld en hinir iheiðnu höfundar. En hann er meira karlmenni, hugrakkari hetja en þeir, þegar komið er á síðasta hólminn. — Skáldhetjan forna, Egill á Borg, ber sig ekki jafnhraustlega. — Bngin íslenzk hetja hefir kveðið slíkan hreysti- söng, og enginn hefir heldur einlægar og öruggar en hann, falið sig Jesú Kristi á vald. Eg hefi nú reynt að túlka fyrir yður hreystisöng kristindóms- ins, hvernig Kristur talar sjálfur og hvernig hann talar enn í þeim mönnum, sem hann hefir valið að vottum dýrðar sinnar. — En minnumst jafnframt orða Jóns biskups Arasonar, að: "Enginn kann með orðum inna alla hans dýrð í letrum skýrða, þó að hann fengi þúsund tungur og þær allar á málið snjallar.” Söfnuður minn fékk um síðustu helgi heimsókn af nokkrum tugum sveina úr þeim félagsskap ungra manna í Reykjavík, sem hefir kosið sér að kjörorði: “Kristur er konungur vor.” Þar voru menn af öllum stéttum. Þar var stúdentinn. Þar var bóndason- urinn. Þar var verzlunarmaðurinn og þar var verkamaðurinn. Og allir sungu þeir í kirkju minni gúaðværan lofgjörðarsöng. — Meðal þessara stæltu sveina var eitt lama ungmenni. Þegar þeir nú báru þennan lama félagsbróður sinn, hraustlega og varlega, ofan í bát- inn og lögðu af stað i hvassviðri og úfnum sjó, þá komu mér í hug hinir ungu riddarar fyr á öldum. Þegar ungur aðalsmaður var helgaður eða vígður til riddara, vakti hann í kirkjunni alla nóttina á undan, á föstu og bæn. Snemma morguns, þegar hringt var til morgun-tiða, gekk hinn hrausti sveinn inn í kórinn og lagði vopn sín sem fórnargjöf á altari kirkjunnar.— Síðan, þegar hringt var til hámessu, þá gekk riddarinn aftur inn að altarinu og sótti vopn sín þangað aftur, helguð og vígð til bar- áttu í nafni Drottins. Nú hringir til morguntíða meðal ungra manna út um -heiminn. Hinn kristilegi félagsskapur æskumannanna leggur vopn sín, — hæfileika og krafta—•, á altari Guðs. — En þegar Drottinn vitjar lýðs síns, — þegaf hringt verðjxr til hámessu, — þá gengur göfug hreystin aftur upp að hinu forna aítari, til að sækja þangað vígt sverð og skygðan skjöld, til að taka signuð vopn sér í hönd, til starfs og stríðs fyrir þjóðina í nafni Drottins. —PrestafélagsritiS.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.