Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1917, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.01.1917, Blaðsíða 4
322 I. Það svæði, sem vér látum oss mest um varða, er svæði trúar og hristindóms. Þegar um er litast á því svæði, dylst ekki, að þar eru umbrot og breytingar. Það er ekki til sá blettur á Guðs grænni jörð, sem ekki verður fyrir áhrifum þeirra umróta, sem nú eru. Það má segja, að jarðskjálfti sá, er nú á sér stað, hristi allar undirstöður mannfélagsins. Andi mannsins og hugsun hans hefir hrokkið við. Hugur mannsins fær ekki sofið þessa dagana—þessi árin. Heimsstríðið mikla vekur einnig þá, sem trúarlega voru sofandi. Áhrif stríðsins og dauðans nú eru ef til vill hvergi meiri, en á svæði trú- arlífsins. Yitanlega eru þau áhrif enn ekki komin nema í dauft ljós og verða síðar skýrari. Hver era áhrif stríðsins á andlegt líf mannatma? Af mörgu, sem oss hafði hugkvæmst að benda á til svars, veljum vér umrnæli eins hins allra merkasta kennimanns í Ameríku, sem nýlega er heim kominn úr Norðurálfu- ferð. Það er presturinn dr. John H. Jowett í New York. Auðvitað ná athuganir hans aðallega til Englands, en það mun ekki fjarstæða að ætla, að manneðlið sé raunar svipað í öllum löndum og áhrif stríðsins muni hvarvetna svipuð, bæði á hið einstaka mannshjarta og á sameinað hjarta þjóðanna. Vér skulum hér skýra lesendum frá helztu atriðum í ummælum dr. Jowetts. Dr. Jowett kvaðst hafa orðið var við áhrif trúar- innar í þeirri breyting, sem orðin sé á ‘ ‘ siðferðilegu andrúmslofti” þjóðarinnar. Einkum segir hann breyt- inguna eftirtektarverða á svæði stjórnmálanna. Hon- um farast orð á þessa leið: “Fyrir stríðið réði blind ástríða flokkadráttar og fl'okksspillingar. Þjóðmál og velferðarmál mannfélags- ins voru ekki íhuguð lilutdrægnislaust, heldur voru þau undirorpin hleypidómum flokka-aðstöðunnar. En nú eru hin miklu mannfélagsmál, sem snerta velferð alþýð- unnar, og sambiið manna og bræðralag, hugleidd og skilin betur en þau hafa nokkru sinni áður verið hugleidd og skilin. Eg á von á endurfæðing og endurnýung mann-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.