Sameiningin - 01.01.1917, Blaðsíða 12
330
hyltust kenningar guðfræðinnar nýju frá Þýzkalandi og
gerðust aðal-talsmenn hennar á íslandi.
Eitt af því, sem Kirkjublað séra Þórhalls gerði að
sérstöku áhugamáli sínu, var skilnaður ríkis og ldrkju.
Og aldrei mun Þ. B. liafa breytt skoðan sinni á því máli.
Yiðurkennir hann það í blaðagrein síðastl. haust, í tilefni
af ummælum séra Sigurðar í Vigur, að skilnaðurinn sé
eins og á stendur eina. úrlausnin. Það var ekki við því
að búast, að hann beitti sér fyrir því máli, eftir er hann
tók við biskupsdómi, enda komst hann svo að orði í bréfi
ekki alls fyrir iöngu, að það sæti ekki á þjóðkirkju bisk-
upi, að gangast fyrir afnámi þjóðkirkjunnar.
Árið 1898 hætti Kirkjublaðið að koma út, en 1905
byrjaði Þórhallur biskup að gefa xít “Nýtt Kirkjublað”,
og hélt því úti til dauðadags. Mintist hann oft á það, að
blaðið borgaði sig ekki, en sagðist samt gefa það út að
“gamni sínu”.
Umfangsmesta ritstarf Þ. B. er óefað verk það, er
hann vann við biblíuþýðingarnar. Hann á líklega mest-
an þátt í því að koma þýðingum þeim í framkvæmd. Síð-
an útgáfu nýju þýðingarinnar var lokið, vann hann á-
fram að þýðingu apokryfisku bókanna, og var því verki
víst ekki lokið, er hann féll frá.
Árin 1894—99 og 1902—1909 sat Þ.B. á alþingi og
var þingmaður Borgfirðinga. Forseti neðri deildar var
haun ý897—99. 1 stjórnmálum kom fram hagsýni lians
og frjálslyndi, sem í öðrum greinum. Lét hann sér eink-
um umhugað um landbúnaðinn. Var hann 8 ár formaður
Búnaðarfélags Islands. Viðbrugðið er dugnaði biskups
og Iiagsýni við ræktun landsvæðis í kring um bíistað lians
í Laufási í Revkjavík. Töluðu margir, sem til íslauds
ferðuðust, um fyrirmyndarbú biskupsins í Laufási.
Þórhallur biskup var kvæntur VaTgerði Jónsdóttur
frá Bjarnarstöðum í Bárðardal, fósturdóttur Tryggva
Gunnarssonar. Ivonu sína misti hann 28. Jan. 1913. Tvo
syni og tvær dætur eignuðust þau hjón. Séra Tryggvi
Þórhallsson er prestur á Hesti í Borgarfirði, en yngri
bróðirinn, Björn, andaðist síðastliðið sumar; hafði verið
bústjóri hjá föður sínum. Eldri systirin, Svafa, er gift
Halldóri Vilhjálmssyni, skólastjóra á TTvaimeyri; liin,
Dóra, var heima hjá föður sínum.
Með Þórhalli. biskupi er fallinn frá einhver hinn fjöl-