Fréttablaðið - 29.04.2011, Side 30
6 •
Rapparinn Busta Rhymes er væntanlegur
til landsins og kemur fram á tónleikum
í Vodafone-höllinni 17. maí. Popp tók
saman nokkrar staðreyndir um rappar-
ann.
Þegar Need for Speed: Shift kom
út fyrir tæpum tveimur árum
boðaði hann nýja og bjartari tíma
fyrir þessa gamalreyndu en hnign-
andi leikjaseríu. Shift tókst að rífa
seríuna upp úr neonljósaskreyttu,
tribal-húðflúruðu, „Fast and Fu-
rious“-holræsinu og gera seríuna
aftur boðlega mönnum sem spá
meira í bílana sjálfa en spoiler-
kittið sem þeir ætla að klína á
bílana. Þetta var virðingarvert
afrek en þó hafa eflaust einhverjir
eldri aðdáendur seríunnar orðið
skúffaðir yfir þessari breytingu.
Nú hefur Need for Speed Shift
2: Unleashed litið dagsins ljós og
hann tekur sama pól í hæðina
og forverinn. Hér er enginn
margslunginn söguþráður til að
flækja málin, eða til að gera þau
heimskuleg eins og í til dæmis
Need for Speed Undercover,
frá því að menn byrja að spila
í „career mode“ snýst leikurinn
bara um að vinna kappakstur og
færast ofar í stigatöflunni. Ein-
stöku sinnum birtist gangandi
auglýsingaskilti, einhver þekktur
ökuþór, á skjánum og leiðbeinir
manni um einstök atriði leiksins
en þar fyrir utan eru menn á eigin
vegum.
Shift 2: Unleashed skartar
yfir 130 bílum sem bjóða upp
á nánast allt litrófið í bílageir-
anum, hvort sem það eru snöggir
asískir sportbílar eða amerískir
sterakaggar. Úrval akstursbrauta
er líka veglegt, þar sem menn
geta ekið um á þekktum brautum
svo sem Nürburgring. Til þess að
menn geti auðveldlega keppt við
félagana hefur Autolog-kerfinu
verið skellt inn í leikinn til að
sjá til þess að menn séu alltaf á
tánum. Í hvert sinn sem leik-
maður klárar kappakstur er tíminn
vistaður inn í kerfið og borinn
saman við tíma félaganna sem
og annarra leikmanna. Nái síðan
einhver að bæta tíma manns fær
maður skilaboð um það og getur
þá tekið til við að reyna að endur-
heimta metið sitt.
Shift 2: Unleashed er afbragðs
bílaleikur. Hann fellur í flokk með
leikjum á borð við Gran Turismo
þar sem raunveruleikinn er ráð-
andi afl, ekki skrípalegur akstur,
hrikalegir árekstrar eða glysgirni.
Þeir sem elskuðu Fast and the
Furious-stíl sumra eldri Need for
Speed-leikjanna munu líklega
ekki fá mikið fyrir sinn snúð en
þeir sem vilja bílaleikina sína í
alvarlegri kantinum ættu ekki að
hika við að skoða þennan. - vij
POPPLEIKUR: NFS SHIFT 2 UNLEASHED
… OG ENGIN NEONLJÓS
FLOTTUR Eins og við er að búast er leikurinn hrikalega flottur og vel gerður.
EKKI SÍST
Busta Rhymes er 38 ára gamall og á afmæli
þremur dögum eftir tónleikana á Íslandi.
Raunverulegt nafn hans er Trevor
Tahiem Smith, Jr.
Hann á 578.609 aðdáendur á Facebook.
Í febrúar árið 1996 sendi Busta Rhymes
frá sér fyrsta lagið sitt Woo Hah!! Got You
All in Check. Lagið náði áttunda sæti
bandaríska Billboard-listans og öðru
sæti í Bretlandi.
Árið 2008 hafnaði lagið í 56. sæti
sjónvarpsstöðvarinanr VH1 yfir bestu
hipphopplög allra tíma.
Busta Rhymes er búinn að senda
frá sér átta breiðskífur og sú
níunda er í vinnslu.
Plöturnar hafa selst í meira en
tíu milljónum eintaka í
Bandaríkjunum.
Fyrsta plata Busta Rhymes til
að ná fyrsta sæti bandaríska
Billboard-listans var The Big
Bang árið 2006.
Á lista yfir kröfur rapparans fyrir
tónleika er meðal annars fata af
kjúklingi, 24 bitar. Þá vill hann
rifflaða smokka og Moet-
kampavín.
Busta Rhymes hefur leikið í nokkrum kvik-
myndum og fór með hlutverk í myndinni
Shaft með Samuel L. Jackson í aðalhlut-
verki.
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
4/5 5/5 4/5 4/5
HVAÐ VEISTU UM
BUSTA
RHYMES?
Julian Casablancas, söngvari
hljómsveitarinnar The Strokes,
viðurkennir að hafa tafið upptökur
á nýrri plötu.
The Strokes sendi nýlega frá sér
plötuna Angles og hugðist skella
sér aftur í hljóðver sem fyrst, en
Casablancas vildi ekki sjá það.
Stemningin í hljómsveitinni virðist
ekki vera góð þar sem ástæðan
fyrir þrjóskunni í Casablancas
er sú að Nick Valensi, gítar-
leikari hljómsveitarinnar, vildi nota
Strokes-lög á sólóplötu sinni.
„Hann ætlaði nota lög sem við
sömdum saman, en samnings-
mál komu í veg fyrir það,“ sagði
Casablancas í samtali við breska
tímaritið Q.
FÚLI MÚLI Julian Casablancas var að
refsa hljómsveitarfélaga sínum þegar
hann hindraði að Strokes færi í hljóðver.
Sumarkort á kr. 23.900.-
(gildir til 10. september 2011)
Veggsport bolur og brúsi fylgir með.
KETILBJÖLLUR
KARFA
SPINNING
LYFTINGAR
SKVASS
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is
SUMARTILBOÐ!
TEFUR UPP-
TÖKUR Á
NÝRRI PLÖTU