Fréttablaðið - 29.04.2011, Side 33
29. apríl föstudagur 7
✽
m
yn
da
al
bú
m
iðKLIST
KUM
félagasamtaka flugumferðarstjóra
flugumferðarstjórum á Íslandi
æðstu viðurkenningu fyrir framúr-
skarandi fagmennsku á meðan á
gosinu í Eyjafjallajökli stóð í fyrra.
Á meðan á þessu stóð voru allir
flugumferðarstjórar á vakt og var
Sigurður auðvitað þar á meðal. „Ég
fór til Parísar með kærustu minni
akkúrat á þessum tíma og heyrði
af því að það væri allt vitlaust í
vinnunni heima. Maður stalst til að
hringja heim og fylgjast með gangi
mála þrátt fyrir að hafa verið í fríi
og eiga ekki að hugsa um vinn-
una. Ég náði samt að vera með síð-
ustu þrjá dagana og það var rosa-
lega gaman að upplifa þessa miklu
umferð sem fór í gegnum íslenska
flugstjórnarsvæðið.“
FÖÐURHLUTVERKIÐ
LÆRDÓMSRÍKT
Sigurður á þriggja ára gamla dótt-
ur með sambýliskonu sinni, Her-
dísi Önnu Ingimarsdóttur. Hann
segir föðurhlutverkið stórkostlegt
enda sé dóttirin algjör demantur.
„Það að vera pabbi er náttúrulega
alveg ný upplifun og maður er
alltaf að læra og upplifa eitthvað
nýtt. En þetta er stórskemmtilegt
og gefur lífinu aukið gildi,“ segir
hann stoltur. Inntur eftir því hvort
dóttirin sé mikil pabbastelpa
segir hann dagamun þar á. „Hún
er pabba stelpa þegar það hent-
ar henni, hún lætur okkur alveg
vita af því hvort maður er í upp-
áhaldi þann daginn,“ segir hann
og brosir.
HARÐUR UNITED-MAÐUR
Sigurður fór með hlutverk blaða-
manns í sjónvarpsþáttunum
Pressu sem luku nýverið göngu
sinni á Stöð 2. Persónan var sú al-
varlegasta sem hann hefur leikið
hingað til og þótti honum gaman
að takast á við verkefnið. Að-
spurður kveðst hann lítið hafa
undirbúið sig fyrir hlutverkið og
segir persónurnar yfirleitt þró-
ast smátt og smátt á meðan á
æfingum standi. „Yfirleitt les ég
handritið í gegn og þá fær maður
strax nokkuð skýra mynd af pers-
ónunni. Ég var svo heppinn að
bæði við gerð Fangavaktarinnar
og Pressu fékk maður leyfi til að
vera með í að skapa persónuna.
Eins og með Ingva í Fangavaktinni
þá gerði ég hann að eitilhörðum
Manchester United aðdáanda sem
tekur í vörina.“ Blaðamaður spyr
Sigurð hvort hann eigi það sam-
eiginlegt með Ingva? „Já, ég tek í
vörina og er gallharður United-
maður. Þó ekki jafn leiðinlegur og
Ingvi,“ segir hann og hlær.
Þegar Sigurður er að lokum
spurður hvort fleiri hlutverk séu á
döfinni svarar hann því neitandi.
„Nei, það er ekkert planað í það
minnsta. Enda verður nóg að gera
í sumar þar sem búist er við mikl-
um ferðamannastraumi til lands-
ins, það er alltaf meiri flugumferð
á sumrin. Ég á því eftir að standa
vaktina þar í allt sumar.“
Veiðin er í miklu upp-áhaldi hjá mér.
Þarna er ég ásamt Rúnari
Frey í Patreki 1,5.
Þarna erum við ásamt
mömmu- og pabbastelpunni.
Ingvi úr Fangavaktinni
alltaf jafn hress.