Fréttablaðið - 06.05.2011, Síða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
REYKJAVÍKURBORG Með samþykkt
borgarráðs á viðaukasamningi við
Knattspyrnufélagið Fram hefur
borgin nú samið um frestun á alls
9.390 milljóna virði af framkvæmd-
um sem hún hafði lofað að greiða
fyrir fimm íþróttafélög.
Eftir að borgin endursamdi við
félögin fimm standa eftir fram-
kvæmdir fyrir 1.038 milljónir af
fyrri loforðum frá árunum 2006 til
2008 um 10.428 milljónir króna.
Dagur B. Eggertsson, formað-
ur borgarráðs, segir að auk fram-
lags til framkvæmda hafi verk-
efnin falið í sér nær milljarð króna
í árlegum rekstri að öllu meðtöldu.
„Þessir samningar fóru langt
fram úr því sem borgin gæti ráðið
við, jafnvel þótt hér hefði verið
bullandi góðæri út í eitt. Jafn-
framt er umhugsunarefni að sumir
samninganna voru lagðir fram
án þess að heildarkostnaður eða
sú skuldbinding sem í þeim fæl-
ist lægi fyrir, þannig að tölurnar
sem fylgdu sögðu aðeins hluta sög-
unnar. Af þessu öllu þurfum við
sannar lega að læra,“ segir Dagur.
Allir fulltrúar í borgarráði nema
fulltrúi VG greiddu atkvæði með
samningum við Fram í gær. Önnur
félög sem málið snertir eru Fjölnir,
Fylkir, ÍR og Golfklúbbur Reykja-
víkur.
Fjölnir fékk á árinu 2007 samn-
ing um 3.200 milljónir króna.
Samið var um það á árinu 2009 að
fresta eða hætta við framkvæmd-
ir fyrir 2.900 milljónir af upphæð-
inni. Fram fékk fyrirheit um 3.367
milljónir á árinu 2008 en með
samningnum sem fyrr er nefndur
er 2.859 milljónum af því frestað.
Á árinu 2006 var Fylki lofað 1.550
milljónum en fallið var frá því með
samningi í fyrra.
Golfklúbbur Reykjavíkur fékk
samning um 311 milljónir á árinu
2006 en í fyrra var skorin 81 millj-
ón af þeirri upphæð.
Þá fékk ÍR fyrirheit á árinu 2006
um 2.000 milljónir. Þeim fram-
kvæmdum er öllum frestað.
„Þetta er mjög mikilvægt fyrir
borgina vegna fjárhagsstöðu henn-
ar,“ segir formaður borgarráðs.
„En þetta sýnir líka að íþrótta-
félögin í Reykjavík eru ekki aðeins
metnaðarfull heldur líka ábyrg og
raunsæ. Fyrir það erum við þakklát
og getum raunar verið stolt.“ - gar
Föstudagur
skoðun 18
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
6. maí 2011
104. tölublað 11. árgangur
Í fremstu röð
Hilma Hólm er talin einn
fremsti vísindamaður
heims í erfðafræði
hjartasjúkdóma.
föstudagsviðtalið 16
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
K affihúsið Litli bóndabær-inn var opnað á Laug-vegi 41 fyrir skemmstu en þar eru allir drykk-ir úr lífrænt ræktuðu hráefni. Á það við um kaffið, teið, safana, heita súkkul-aðið og mjólkina. Þá eru allar umbúð-ir endurvinnanlegar og reynt eftir fremstameg i
Litli bóndabærinn á Laugavegi býður upp á lífræna drykki og ljúfmeti.
150 g fínmalað spelt 50 g hrísmjöl50 g hrásykur110 g kælt smjör (til dæmis frá Bíobú)1 tsk. þurrkað lavende(
með rifjárni út í blönduna. Blandið smjörinu saman við og hnoðið í um það bil fimm mínútur Kremjið
1.5 sentimetra þykkt. Bakið í 40 mínútur. Gætið þess að kakan verði ekki brún h ld
SKOSKAR LAVENDER-SMÁKÖKURstökkar með kaffinu
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lavender-kex með lífrænu kaffi
Eyfirski safnadagurinn verður haldinn í fimmta sinn á
morgun og munu 18 söfn og sýningar við Eyjafjörð opna
dyr fyrir gestum og gangandi milli 11 og 17. Dagurinn er
að þessu sinni tileinkaður börnum og verður boðið upp
á söngva, sýningar, leiki, listasmiðjur, leikföng, ratleiki og
ýmislegt fleira. Nánar á www.sofn.is.
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
6. maí 2011
Annie Mist
Þóri dó i
FÓLK Teiknimyndafyrirtækið
CAOZ hefur stofnað dótturfyrir-
tækið CAOZ Games utan um hönn-
un á tölvuleik upp úr teiknimynd
fyrirtæksins
Hetjur Val-
hallar – Þór.
Búist er við
því að tölvu-
leikurinn líti
dagsins ljós á
næsta ári en
myndin sjálf
verður frum-
sýnd í haust.
Tölvuleikja-
gerðin fékk nýverið 24 milljóna
króna styrk úr evrópska sjóðn-
um MEDIA. Framkvæmdastjóri
CAOZ Games, Haukur Sigurjóns-
son, segir styrkinn vera kærkom-
inn enda ekki um auðugan garð að
gresja þegar kemur að fjáröflun
til tölvuleikjagerðar. - fgg / sjá síðu 58
Fékk 24 milljóna styrk:
Gerir tölvuleik
upp úr íslenskri
teiknimynd
Íþróttafélag Fyrirheit um
framkvæmdir
Hætt við
eða frestað
ótímabundið
Frestað
tíma-
bundið
Fjölnir 2007 3.200
Fallið frá framkvæmdum með samningi 2009 2.900
Fram 2008 3.367
Viðaukasamningur 2011 2.859
Fylkir 2006 1.550
Fallið frá framkvæmdum með samningi 2010 1.150
GR 2006 311
Fallið frá samkv. endurskoð. samningi 2010 81
ÍR 2006 2.000
Ótímabundin frestun framkvæmda 2.000
Samtals 10.428 6.531 2.859
HEIMILD: REYKJAVÍKURBORG, FJÁRMÁLASKRIFSTOFA
Fyrirheit um fé og endurskoðun 2009-11
Stöðva 9 milljarða til íþrótta
Borgin hefur samið við íþróttafélög um frestun á lofuðum framkvæmdum fyrir 9.390 milljónir króna. Aðeins er
framkvæmt fyrir 1.038 milljónir. Í gær var gengið frá frestun á 2.859 milljóna króna framkvæmdum hjá Fram.
Opið til 19
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!
www.listahatid.is
10
12
10
6
9
BJART N-TIL Í dag má búast við
15-20 m/s allra syðst en hægari
vindi annars staðar. Horfur á
lítilsháttar vætu víða við S- og
SA-ströndina en norðantil verður
nokkuð bjart.Hlýjast inn til landsins
S- og V-til.
VEÐUR 4
Fullt hús í Hörpu
Jónas Sen var ánægður með
fyrstu tónleikana í Hörpu.
menning 30
HAUKUR
SIGURJÓNSSON
Sænskir meistarar
Jakob Örn Sigurðarson og
Hlynur Bæringsson urðu í
gær Svíþjóðarmeistarar í
körfubolta.
sport 38
KJARAMÁL Vonast er til þess að kjarasamningarnir
sem Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnu-
lífsins undirrituðu í gær verði undirstaða stöðug-
leika, hagvaxtar og öflugs atvinnulífs næstu þrjú
árin.
Í samningunum felast meðal annars almennar
launahækkanir og hækkun lágmarkslauna.
Einnig eru í þeim fyrirvarar um víð tækar
aðgerðir stjórnvalda til að auka kaupmátt og fjár-
festingu og draga úr atvinnuleysi.
Í yfirlýsingu stjórnvalda, sem var kynnt eftir
að samningarnir voru í höfn, eru áætlanir um
margs konar aðgerðir, meðal annars stór auknar
opinberar framkvæmdir og sókn í orku- og
iðnaðar málum.
Opinberar fjárfestingar verða auknar um
þrettán milljarða fram að lokum næsta árs og
gangi öll virkjanaráform Landsvirkjunar í Þing-
eyjarsýslum eftir gætu fjárfestingar þar numið
um sjötíu til áttatíu milljörðum króna. Þá er
tryggt að lífeyrisþegar og atvinnulausir fái sömu
kjarabætur og felast í samningunum. - þj / sjá síðu 4
Þriggja ára kjarasamningar milli ASÍ og SA loks undirritaðir:
Samningar undirstaða hagvaxtar
LOKS Í HÖFN Forsvarsmenn atvinnurekenda og ASÍ handsöluðu í gær kjarasamninga til þriggja ára. Á milli þeirra Vilmundar
Jósefssonar og Gylfa Arnbjörnssonar stendur Magnús Pétursson ríkissáttasemjari. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON