Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 29

Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 29
er líka að reyna að toga hann hingað til Íslands þannig að vonandi breytist þetta ástand fljótlega.“ Blaðamaður laumast til þess að spyrja Annie hvað hún nú taki nú eiginlega í bekk en fær það svar að hún stundi ekki slíkar æfingar. „Bekk- pressur eru ekki beint hluti af Cross- Fit og mér finnst það frekar leiðinleg- ar æfingar. Ég stunda ólympískar lyft- ingar og þar tek ég 90 kíló í „clean and jerk“ og 70 kíló í snörun.“ AUGLÝSIR REEBOK Annie Mist gerði nýverið samning við íþróttavöruframleiðandann Reebok og leggur þeim meðal annars lið við hönnun á fatnaði sem er sérsniðinn að þörfum þeirra sem stunda Cross- Fit. Auk þess situr hún fyrir í aug- lýsingum fyrirtækisins og þekur ein slík meðal annars þakið á flugvell- inum í Los Angeles. „Samningurinn felur meðal annars í sér að ég aðstoði þau við vöruþróun og auglýsi vörurn- ar. Mér skilst að það sé stór auglýs- ing með mér á þaki flugvallarins í Los Angeles, sem er svolítið skrítin tilhugsun.“ Annie telst eitt af undrabörnum CrossFit-íþróttarinnar en þrátt fyrir það lætur hún athyglina ekki ná til sín heldur er hógværðin uppmál- uð. „Ég er bæði búin að æfa íþrótt- ina mjög stutt og er einnig með þeim yngstu og hef þess vegna vakið nokkra athygli. En það eru margar mjög efnilegar konur að keppa í þessu og maður veit aldrei hverjum maður mætir eða hvernig keppnin verður. Þó ég sé stanslaust að bæta mig þá eru hinir keppendurnir líka að því ... sem er pirrandi,“ segir hún og skell- ir upp úr. STEFNIR Á SIGUR Faðir Annie er ættaður frá Vík í Mýr- dal og þar ól hún manninn fyrstu sex ár ævinnar. Hún man lítið frá þeim tíma annað en að lífið hafi verið gott og að því hafi fylgt mikið frelsi að búa í svo litlu þorpi. Annie á tvo eldri bræður og segir tilveruna þægilega þegar maður er bæði yngsta barn- ið og eina stúlkan að auki. „Ég segi ekki að ég hafi verið dekruð en maður fékk mikla athygli og það var passað upp á mann. Ég þurfti samt líka að hafa fyrir mínu verandi litla systir en svona oftast var þetta frekar þægileg tilvera,“ segir hún brosandi. Samhliða stífri íþróttaiðkun stund- ar hún einnig nám í lífefnafræði við Háskóla Íslands og stefnir á læknis- fræðinám í framtíðinni. Hún er einnig meðeigandi að CrossFit BC sem hlýtur að teljast nokkuð merkilegt þar sem hún er ekki nema 21 árs gömul. Og Annie stefnir hærra í nánustu fram- tíð því hún hefur einsett sér að sigra á næstu Heimsleikum. „Eins og alltaf,“ segir hún að lokum brosandi. YRIR ULAÐI ✽ m yn da al bú m ið Þarna er ég ásamt bræð rum mínum, Kolla og Svani, og pabba í göngutúr í Vík í Mýrdal . Mitt fyrsta Kvennahlaup með mömmu. Ég er um fimm ára gömul þarna. Þarna er ég sex ára í Noregi ásamt bræðrum mínum. Ég á CrossFit-æfingu. Töff sólgleraugu fyrir sumarið Marc by Marc Jacobs Verð 23.600 Dolce&Gabbana og Madonna Hér á ferðinni er hönnun á D&G sólgleraugnalínu sem sjálf söngkonan Madonna er aðili að í samvinnu við Domenico Dolce og Stefano Gabbana. Sjá má fleiri MDG sólgleraugu á www.opticalstudio.is Oakley, módel TEN, litur á umgjörð Black Ink. Linsan er Polarized svokölluð OO Red Iridium. Oakley halda því fram, og vitna í óháða rannsókn, að þetta séu skörpustu og bestu Polarized gler sem til eru í dag. Meiri upplýsingar um Oakley á vef Optical Studio, www.opticalstudio.is OPTICAL STUDIO www.opticalstudio.is AUGAÐ Gleraugnaverslun Kringlunni S. 568-9111 www.augad.is Carrera Verð 32.700 Gucci Verð 48.200 Ray Ban Verð 19.900 Sjónlínan Gleraugnaverslun Strandgötu Hafnarfirði www.sjonlinan.is Kaenon Polarized Georgia Blue Lagoon golfgleraugu fyrir konur. Verð 34.900 kr. Kaenon Polarized Kore veiðigleraugu fyrir karlmenn. Sjóngler úr SR-91 Verð 33.900 kr. Kynning

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.