Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 6
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR6 Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands Ársfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 20. maí, kl. 16.00 í sal Tannlæknafélags Íslands, Síðumúla 35. Dagskrá fundarins fer eftir samþykktum sjóðsins og 30. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða. Atkvæðaréttur sjóðfélaga telst eftir eign þeirra og réttindum við síðustu áramót. Rétthafar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og atkvæðarétt. Ársfundargögn má nálgast á vef sjóðsins, www.li.is/ls/ltfi, og hjá Fjármálaráðgjöf Landsbankans, Austurstræti 11. Virðingarfyllst, stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. STJÓRNLAGARÁÐ Kafli um mannrétt- indi verður fremstur í stjórnar- skránni og í honum verður tekið fyrir möguleikann á herskyldu hér á landi, verði tillögur stjórn- lagaráðs að veruleika. Fyrstu tillögurnar frá nefnd- um Stjórnlagaráðs um breyting- ar á stjórnarskránni voru teknar til umræðu og afgreiðslu á 7. ráðs- fundi í gær. Nefnd C, sem fjallar meðal ann- ars um dómstóla, lagði fram til afgreiðslu á fundinum tillögu sína að nýjum kafla um dómstóla. Kafl- inn er viðameiri og ítarlegri en sá í gildandi stjórnarskrá. Nokkrar umræður urðu um ákvæði í kaflanum þar sem kveðið er á um að forseti skuli skipa dóm- ara, eins og nú er. Þótti sumum óeðlilegt að það væri sérstak- lega tiltekið, enda ætti ráðið alveg eftir að ræða kaflann um forseta Íslands, hlutverk hans og vald. Því var lagt til að orðin ‚Forseti Íslands‘ yrðu sett í hornklofa, svo fólk áttaði sig betur á að tillagan væri breytingum háð og alls ekki meitluð í stein. Hornklofa umræðan dróst nokkuð á langinn og sýndist sitt hverjum. Sumir töldu að þá mætti jafnframt nýta til að auð- kenna þau atriði í tillögum ráðsins sem sæta tíðindum eða verðskulda sérstaka eftirtekt og umræðu. Nið- urstaðan varð að einungis ‚Forseti Íslands‘ færi í hornklofa að sinni. Jafnframt lagði nefnd C fram til- lögu til kynningar um svokallaða Lögréttu, nefnd sem hefði það hlut- verk að veita Alþingi ráðgefandi álit á því hvort frumvörp standist stjórnarskrá. Skiptar skoðanir voru um það hvort tillagan gengi nógu langt og töldu sumir að niðurstaða nefndar- innar ætti að vera bindandi og verksvið hennar víðara; hún ætti til dæmis einnig að úrskurða um Karpað um hornklofa og sérfræðiþekkingu Fyrstu tillögur að breytingum á stjórnarskránni voru ræddar á fundi stjórnlaga- ráðs í gær. Lagt er til að herskylda verði með öllu bönnuð og að sérstök nefnd ákvarði hvort frumvörp standist stjórnarskrá. Forsetinn varð þrætuepli. FRÁ SETNINGU STJÓRNLAGARÁÐS Fólk var ekki sammála um hvort nauðsynlegt væri að lögspekingar úrskurðuðu um það hvort lagafrumvörp stæðust stjórnarskrá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Aðfaraorð: ■ Fyrsta grein stjórnarskrárinnar verði aðfaraorð, eða nokkurs konar inngangur, sem móti anda hennar og það sem á eftir komi. Ekki hefur verið gerð tillaga að aðfaraorðum. Kafli um dómstóla: ■ Kaflinn um dómstóla verði mun viðameiri og ítarlegri en sá fimmti í gildandi stjórnarskrá. ■ Sá gamli er einungis þrjár greinar en sá í tillögu nefndarinnar er sex kaflar. ■ Í tillögunum er kveðið á um skipulag íslenskra dómstóla, nokkurn veginn eins og því er nú til hagað. ■ Helsta nýmælið er að forseti Íslands skuli skipa dómara að tillögu hæfisnefndar, án milligöngu ráðherra. Kafli um mannréttindi: ■ Kaflinn verði færður fremst í stjórnarskrána, á eftir aðfaraorðum. Hann er nú í sjöunda og síðasta kafla. ■ Nokkrum atriðum bætt í ákvæðið um jafnan rétt fólks óháð stöðu þess, til dæmis aldri, arfgerð, búsetu, fötlun, kynhneigð, uppruna og stjórnmálaskoð- unum. ■ Nýtt ákvæði um að allir skuli njóta verndar gegn ofbeldi, svo sem kynferðis- ofbeldi. ■ Sérstakur kafli um börn og ákvæði um að þau skuli eiga rétt til samráðs um eigin málefni í samræmi við aldur sinn og þroska. ■ Ákvæði um að aldrei megi lögleiða herskyldu. Lögrétta: ■ Sérstakur kafli um nefnd sem hefði það með höndum að veita ráðgefandi álit á því hvort lagafrumvörp standast stjórnarskrá, að kröfu þingnefnda eða þriðjungs þingmanna. ■ Nefndin yrði skipuð sérfræðingum í stjórnlögum af forseta, Alþingi, Hæstarétti og jafnvel almenningi. Helstu breytingartillögur til þessa það hvort þingmenn væru löglega kjörnir eða hvort framkvæmdar- valdið hefði brotið í bága við stjórnarskrána. Mestar umræður urðu um það hvort eðlilegt væri að kveða á um það í stjórnarskrá að í nefndinni gæti aðeins setið fólk með þekk- ingu á stjórnlögum. Þannig töldu til dæmis Pawel Bartoszek, formaður nefndar C, og Íris Lind Sæmundsdóttir mjög mikilvægt að lögfrótt fólk veldist til að úrskurða um svo flókin lög- fræðileg álitaefni. Aðrir, til dæmis Þorvaldur Gylfason, Andrés Magnússon, Katrín Oddsdóttir og Katrín Fjeldsted, lýstu andstæðri skoðun. Þau töldu að almenningur ætti að kjósa í nefndina, að minnsta kosti að hluta. Umræðum um tillögur, aðfara- orð og mannréttindakafla, sem sjá má hér til hliðar, var frestað til dagsins í dag. stigur@frettabladid.is Auglýsingasími BANDARÍKIN Bandarískir vísinda- menn hafa kynnt afar þunna lófa- tölvu sem þeir kalla pappírstölvu. Þessari örþunnu og sveigjanlegu tölvu er líkt við framúrstefnulegan iPhone-síma, enda getur hún gert flest sem síminn getur. „Þetta er framtíðin, svona verð- ur þetta orðið eftir fimm ár,“ segir Roel Vertegaal, yfirmaður tölvu- þróunardeildar Queens-háskóla í Bandaríkjunum, þar sem tölvan var þróuð. Snjallsímar í dag verði úreltir eftir fimm til tíu ár. „Þessi tölva er eins og lítið gagn- virkt blað. Maður getur sveigt það til og notað sem farsíma, sveigt hornin til að fletta blaðsíðum og skrifað á það með penna til að koma upplýsingum inn í tölvuna.“ Stærri útgáfur af tölvunni munu í framtíðinni leysa pappír á skrif- stofum af hólmi, segir Vertegaal. Hægt verður að geyma mörg skjöl á slíkum tölvum og skrifa inn á þau með sérstökum pennum. Tölvurn- ar nota enga orku nema þegar þær eru í notkun, og þola meðferð sem myndi skemma aðrar spjaldtölvur. Pappírstölvan verður frum- sýnd 10. maí á tækniráðstefnu í Vancouver í Kanada. - bj Vísindamenn kynna örþunna og sveigjanlega pappírstölvu í Bandaríkjunum: Mun gjörbylta tölvutækninni SMÁGERÐ Nýja pappírslófatölvan á að geta flest sem iPhone-síminn getur. Hægt er að hringja úr henni, skoða skjöl og fleira. MYND/QUEENS-HÁSKÓLI DANMÖRK Hættulega mikið magn af PCB-efni sem flokkast sem krabbameinsvaldandi hefur fund- ist í lofti á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Könnun á loft- gæðum leiddi þetta í ljós. Forstjóri spítalans segir að þó að ástandið sé alvarlegt bendi ekkert til þess að sjúklingar eða starfsfólk hafi veikst vegna efnisins. PCB-efni voru notuð í bindiefni eins og plast, málningu og steypu á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, einnig á Íslandi. - þeb Ríkisspítali í Kaupmannahöfn: Skaðleg efni í lofti á spítala Tókst vel til með byggingu tón- listarhússins Hörpu? Já 51,6% Nei 48,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Líst þér vel á nýju kjara- samningana? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.