Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 10
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR Þrjár sígildar barnabækur sem eru ómissandi fyrir lestrarhesta 2.999 TILBOÐ Áður kr. 3.499 2.299 TILBOÐ Áður kr. 2.699 2.599 TILBOÐ Áður kr. 2.999 TILBOÐIN GILDA FRÁ 6. MAÍ TIL OG MEÐ 18. MAÍ 2011 Ó S K A B Æ K U R Í B Ó K A S A F N B A R N A N N A e s t a b l i s h e d 1 9 3 4 Andersen & Lauth Herraverslun Laugavegi 7 Lokadagar Lagersölu Lagersölu lýkur á morgun laugardaginn 7. maí 70%- EFNAHAGSMÁL Sendinefnd Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) segir við búið að fimmta endurskoðun efna- hagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins í byrjun júní. Vikulangri heimsókn sendi- nefndarinnar lauk í gær með blaða- mannafundi þar sem farið var yfir helstu niðurstöður funda sem haldnir voru með fulltrúum stjórn- valda, þingmönnum, fræðimönnum og fulltrúum viðskipta- og atvinnu- lífs, vegna fimmtu endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands. Þá kom þar fram að stjórnvöld á Norður- löndum hafi staðfest að þau bjóði enn tvíhliða lán til stuðnings áætl- un Íslands. Julie Kozack, yfirmaður sendi- nefndar AGS, upplýsti á fundinum að íslensk stjórnvöld og starfslið sjóðsins hefðu náð samkomulagi um fimmtu endurskoðunina, sem nú biði staðfestingar framkvæmda- stjórnar og stjórnar AGS. Hún sagði kominn fram vísi að hægum efnahagsbata, búist væri við 2,25 prósenta hagvexti á þessu ári sem síðan aukast í 3,0 prósent á næstu misserum. Mat sjóðsins á efnahags- horfum landsins væri að mestu óbreytt frá fyrri spám. Sjóðurinn telur engu að síður að endurskipulagning skulda heim- ila og fyrirtækja gangi enn of hægt fyrir sig, þótt þar hafi orðið nokkur framför. „Endurskipulagn- ing skulda er ennþá nauðsynlegur þáttur varanlegs efnahagsbata og myndi einnig aðstoða við að taka á vanda hás hlutfalls lána í vanskil- um í bankakerfinu. Julie sagði margvíslegan árang- ur hafa náðst og hrósaði áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyris- hafta. Hún væri árangurstengd og hæfilega varkár. Þá drægi úr opinberum skuldum og viðskipta- halla, en óvissa um áhrif Icesave þar á hefði aukist með því að deil- unni hafi verið vísað til dómstóla. „Engu að síður er búist við að eign- ir þrotabús Landsbankans standi undir verulegum hluta innstæðna Icesave, sem dregur úr fjárhags- legri áhættu ríkisins,“ sagði hún. Þá sagði Julie mat sendinefndar- innar að hér kæmi til með að draga hægt úr atvinnuleysi, en nokkur ár, líkast til fjögur, yrðu þar til atvinnuleysi teldist lítið á ný. Hvað gang efnahagsáætlunarinn- ar í heild varðar sagði Julie ástæðu til að fagna góðum árangri. Krepp- an á Íslandi hefði verið ein sú allra mesta sem sést hefði í heiminum. Þá hefðu ytri aðstæður í efnahags- lífi heimsins verið erfiðar og það unnið á móti hraðari efnahagsbata. Þá væru vandfundin lönd í heimin- um til samanburðar, því óvíða hefði fjármálakerfi landa hrunið alveg. olikr@frettabladid.is BLAÐAMANNAFUNDUR Í SEÐLABANKANUM Julie Kozack, yfirmaður sendinefndar AGS, svarar spurningum blaðamanna í gær. Með henni er Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS með aðsetur á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Góður bati eftir eina mestu kreppu heims Sjórnvöld og sendinefnd AGS hafa náð saman um fimmtu endurskoðun efnahags- áætlunar Íslands. Fer fyrir stjórn AGS í júní. Mikill árangur hefur náðst frá hruni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.