Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 22
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR22
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
timamot@frettabladid.is
60 ára afmæli
Kæru ættingjar og vinir
Þótt ótrúlegt megi virðast er ég
að verða 60 ára þann 7. maí nk. Af
því tilefni verð ég með opið hús í
safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju
frá klukkan 10.30 til 13.30. Það myndi
gleðja mig ef þið gætuð átt með mér
ánæg julega stund í tilefni þessa
merkis áfanga.
Kær kveðja
Jóhanna Freyja Björnsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Benóný Kristjánsson
fyrrverandi skrifstofustjóri
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
1. maí. Hann verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
mánudaginn 9. maí kl. 15.00.
Sigurbjörg Jóhanna Þórðardóttir
Unnsteinn Þórður Gíslason
Magnús Gíslason
Kristján Gíslason Guðrún Benedikta Elíasdóttir
Gísli Örn Gíslason Birna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
100 ára afmæli
Í tilefni hundrað ára afmælis
Þórdísar G. Ottesen tekur
hún á móti gestum í dag milli
klukkan 16 og 18 í Salnum,
Kópavogi.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Aron Jónsson
húsasmíðameistari og fyrrv. bygginga-
fulltrúi, Frostafold 4, 112 Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
4. maí.
Sigurrós Kr. Sigurðardóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Þorsteinn Björnsson
Neðstabergi 10, Reykjavík,
lést á heimili sínu mánudaginn
2. maí síðastliðinn. Útförin
fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 9. maí kl. 13.00.
Kristrún Bragadóttir
Björn Davíð Þorsteinsson
Katrín Ingunn Björnsdóttir
Elskuleg eiginkona, móðir, amma
og langamma,
Sunna Karlsdóttir
frá Vestmannaeyjum,
sem andaðist að heimili sínu Æsufelli 4 í Reykjavík,
þriðjudaginn 26. apríl, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 9. maí kl. 13.00.
Andri Valur Hrólfsson
Ívar Andrason Sigrún Guðnadóttir
Ólafur Darri Andrason Kristjana Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Móðir okkar og tengdamóðir,
Ingibjörg J. Gíslason
Elliheimilinu Grund,
áður Laufásvegi 64a,
verður jarðsungin í Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 9. maí kl. 15.
Þóra Sandholt
Ragnheiður Gíslason Þórarinn Jónasson
Bergljót B. Gíslason
Ása Gíslason Ólafur R. Magnússon
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Jónsdóttir
„Imma á Hernum“
til heimilis að Norðurgötu 38,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 4. maí.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík
mánudaginn 9. maí kl. 13.00.
Rannveig Óskarsdóttir Einar Björnsson
Hákon Óskarsson Heiður Agnes Björnsdóttir
Daníel Óskarsson Anne Gurine Óskarsson
Mirjam Óskarsdóttir
Torhild Ajer
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra ættingja og
vina sem sýndu okkur samúð og vin-
áttu við andlát og útför mannsins míns,
föður okkar, afa, langafa og bróður,
Guðmundar Björns
Sveinssonar
Esther Ósk Karlsdóttir
börn, barnabörn, langafabörn og systkini.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Stefánsdóttir
Hringbraut 65, Keflavík,
lést laugardaginn 30. apríl á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 10. maí, kl. 13.00.
Guðríður Ó. Vestmann Bragi Jóhannsson
Alma Vestmann Ægir Sigurðsson
Stefán Vestmann Sara Saengduan Sinpru
ömmu- og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
móður minnar og ömmu,
Ásu Beck
Magnús Haukur Jökulsson
Þórunn Elín Magnúsdóttir
Oddfríður R. Jónsdóttir stóma-
hjúkrunarfræðingur var heiðruð sér-
staklega á aðalfundi LHS í gær fyrir
vel unnin störf, en Oddfríður er eini
starfandi stómahjúkrunarfræðingur-
inn á Landspítalanum. Hún hefur
starfað sem slík í átján ár en 26 ár eru
síðan hún útskrifaðist sem hjúkrunar-
fræðingur.
„Ég vann á deild þar sem stóma-
þegar lágu og þeir fengu sömu þjón-
ustu og aðrir sjúklingar. Mér fannst
hins vegar nauðsynlegt að einhver
einn sinnti þeirra þörfum sérstak-
lega og þegar mér bauðst að fara í
þetta nám dreif ég mig í það,“ segir
Oddfríður. Stómasjúklingar fá poka
framan á maga sem tekur við þvagi
og hægðum. Oddfríður segir starfið
geta verið erfitt. Það sé þó einnig gef-
andi en hluti starfs hennar felst í að
sinna heimavitjunum til stómaþega.
„Það verða nánari tengsl. Ég fylgi
sömu manneskjunni frá því hún er
skorin og þar til hún er orðin sjálf-
stæð og það geta verið tveir til þrír
mánuðir. Stómaþegar eru á öllum
aldri, allt frá nýfæddum börnum og
upp í gamalmenni og ég fræði bæði
þá og fjölskyldur þeirra. Ég hitti sjúk-
linga bæði fyrir og eftir aðgerðina á
spítalanum og fer svo heim til þeirra
og kenni þeim handtökin við að skipta
um stómahjálpartækin.“
Oddfríður sinnir stómaþegum á
Landspítalanum við Hringbraut, á
Landakoti, Grensás og Borgarspítal-
anum og sér einnig um fræðslu starfs-
fólks annarra deilda spítalans þar
sem stómasjúklingar liggja. Auk þess
heldur hún úti göngudeild fyrir þá sem
hafa fengið stóma fyrir einhverjum
árum og þurfa að koma inn vegna ein-
hverra vandamála.” heida@frettabladid.is
ODDFRÍÐUR R. JÓNSDÓTTIR: HEIÐRUÐ FYRIR VEL UNNIN STÖRF
Starfið bæði erfitt og gefandi
NÁNARI TENGSL MYNDAST Oddfríður R. Jónsdóttir stómahjúkrunarfræðingur sinnir heima-
vitjunum til stómaþega og var heiðruð á aðalfundi LSH fyrir vel unnin störf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EINAR SIGURBJÖRNSSON prófessor er 67 ára í dag.
„Í lífinu erum við umlukt miskunn Guðs.“67