Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 42

Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 42
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR30 Tónlist ★★★★★ Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Hörpu Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafs- son. Stjórnandi: Vladimír Ashke- nazy. Einsöngvarar: Christiane Oelze, Sesselja Kristjánsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson og Bjarni Thor Kristinsson ásamt Óperu- kórnum í Reykjavík, Hljómeyki og Kór Áskirkju. Ég var í fimmtugsafmæli um dag- inn. Eitt af skemmtiatriðunum var síðasti kafli níundu sinfóníunnar eftir Beethoven. Flytjendur voru tveir, gítarleikari og söngvari. Í sjálfu sér var flutningurinn hrylli- legur, en hann átti að vera brandari, og sem slíkur var hann frábær. Mér datt þetta í hug á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu á miðvikudags- kvöldið. Þar var líka níunda sinfóní- an á dagskránni. Sinfónían hefur margoft verið leikin í Háskólabíói. Munurinn á hljómburðinum þar og í Hörpu er sláandi. Að flytja verk- ið í bíósal sem hentar engan veginn til tónleika er í rauninni hálfgerð- ur brandari. Að Sinfóníuhljómsveit Íslands hafi þurft að vera þar árum saman er þó langt frá því að vera fyndið. Það var ótrúleg upplifun að koma í Hörpu. Húsið er einstaklega fallegt að utan, en það virkar miklu stærra fyrir innan. Og stóri salur- inn, Eldborg, er ægifagur. Allur eldrauður og með mörgum svölum, gríðarlega hátt til lofts. Bara að horfa á herlegheitin er upplifun út af fyrir sig. Fagnaðarlæti brutust út þegar Steinunn Birna Ragnarsdóttir tón- listarstjóri flutti stutt ávarp og bauð hljómsveitinni HEIM. Hljóm- sveitin gekk þá í salinn og áheyr- endur stóðu upp fyrir henni. Það var gleði í loftinu. Vladimir Ashkenazy steig því næst fram á sviðið, en hann var stjórnandi hljómsveitarinnar að þessu sinni. Það var viðeigandi. Ashkenazy var á sínum tíma ótrúleg lyftistöng fyrir íslenskt tónlistar líf. Hann var einn af stofn- endum Listahátíðar í Reykjavík árið 1970. Hann var líka hvata maður að því að fá hingað nokkrar af skær- ustu stjörnum tónlistarheimsins til tónleikahalds. Svo hefur hann bar- ist fyrir tónlistar húsi á Íslandi ára- tugum saman. Fyrst á dagskrá var stutt, fjör- legt verk eftir Þorkel Sigurbjörns- son sem var samið sérstaklega fyrir tilefnið og heitir Velkomin Harpa. Það byrjaði á lágum en hröðum tónahendingum sem smátt og smátt sóttu í sig veðrið. Maður heyrði strax að hljómburðurinn var fínn. Sérstaklega sláandi var hljómurinn í sellóunum. Allt í einu HEYRÐI maður sellóhljóm! Djúpan og magn- aðan, og einstaklega áferðarfagran. Í sjálfu sér er verk Þorkels ekki endilega með því skáldlegasta sem hann hefur samið. En sem upphitun fyrir hljómsveitina og fyrir áheyr- endur smellpassaði það inn í dag- skrána. Næst á dagskrá var píanó- konsertinn eftir Edvard Grieg. Þessi eini, sem lengi hefur verið einn af vinsælustu píanókonsertum tónbókmenntanna. Laglínurnar eru grípandi, einleiksrullan glæsileg og stemningin full af rómantískum andstæðum. Einleikari var Víkingur Heiðar Ólafsson. Ég verð að segja að ég dáðist að honum, bara fyrir að vera þarna. Það er eitt að koma fram sem einleikari á tónleikum sem marka nýja tíma í íslenskri tónlistar sögu. En það er annað að koma fram sem píanóleikari þar sem Ashkenazy stjórnar. Ashkenazy var á sínum tíma einn af mestu píanóleikurum heims. Að spila með slíkri goðsögn er örugglega ekki auðvelt. En Víkingur stóð fyllilega undir væntingum. Vissulega voru öfgarn- ar í túlkuninni við þol mörkin. Inn- hverf draumastemningin var hrein- lega úti í geimnum, og ofsalegur hraðinn í lokakaflanum eins og í formúlukappakstri. En það hæfði þessari tónlist. Grieg konsertinn er útjaskaður en hann hljómaði fersk- ur í meðförum Víkings. Og tækni- lega séð var hann svo glæsilegur að maður naut hvers tóns. Hér heyrði maður betur hversu góður hljómburðurinn í Hörpu er. Styrkleikabreiddin í tónlistinni fékk að njóta sín, allt frá örveikum blæbrigðum upp í ofsafengnar til- finningasprengjur. Tærleikinn í tré blásurunum var líka aðdáunar- verður, pákurnar magnaðar og sellóin unaðsleg. Auðvitað þarf að huga að ein- hverjum stillingaratriðum. Hugsan- lega hefði skýrleikinn í flyglinum mátt vera meiri, hver svo sem ástæðan var. Mögulega hefði hljóm- urinn í fiðlunum líka mátt vera þykkari og safaríkari. En þetta er væntanlega nokkuð sem kemur með meiri reynslu af tónleikahaldi í Hörpu. Lokaverkið á dagskránni var áðurnefnd níunda sinfónía Beet- hovens. Fyrstu þrír kaflarnir voru stórbrotnir, stígandin hæg en örugg undir markvissri stjórn Ashkenazys. Í fjórða kaflanum byrjaði svo söngurinn, og þá hófst fjörið fyrir alvöru. Að vísu hafði ég efasemdir um frammistöðu Bjarna Thors Kristins sonar bassasöngvara. Bjarni Thor hefur magnaða rödd en einsöngskaflinn hans virkaði eins og raddhlutverkið væri of hátt fyrir hann. Raddlega séð var tenórinn Kol- beinn Jón Ketilsson mun meira sannfærandi. Einsöngurinn hefði samt þurft að vera kröftugri. Rytmískar áherslur voru ekki nógu snarpar – þetta er svo mikill lykil- staður í tónverkinu, alger vendi- punktur. Krafturinn verður einfald- lega að vera yfirgengilegur. Minna mæðir á kvenröddunum í verkinu. Hér voru það þær Sess- elja Kristjánsdóttir og Christiane Oelze sem sungu. Þær voru báðar frábærar. Og það heyrðist vel í þeim þrátt fyrir að hljómsveitin spilaði með allt í botni. Eitt af því sem var óþolandi við Háskóla- bíó var einmitt hve illa heyrðist í söngvurum á sinfóníutónleikum. Tilkomumikið var að sjá þrjá kóra fyrir aftan sviðið, Óperu- kórinn í Reykjavík, Hljómeyki og Kór Áskirkju. Og söngur kór- anna var æðisgenginn í mögnuð- um hljómburðinum! Það var eitt- hvað það flottasta sem maður hefur heyrt á lifandi tónleikum á Íslandi. Ég held að það sé ljóst að Harpa er vel heppnað tónleikahús, að minnsta kosti stóri salurinn. Ég óska okkur öllum til hamingju með stórkostlegan áfanga í menningar- lífinu á Íslandi. Jónas Sen Niðurstaða: Fyrstu tónleikar Sinfóní- unnar í Hõrpu lofuðu góðu. Tónlistar- flutningurinn var magnaður og hljóm- burðurinn flottur. 30 menning@frettabladid.is FAGURT ER Í HÖRPU SNERT HÖRPU MÍNA … „Það er eitt að koma fram sem einleikari á tónleikum sem marka nýja tíma í íslenskri tónlistarsögu,“ skrifar Jónas Sen. „En það er annað að koma fram sem píanóleikari þar sem Ashkenazy stjórnar. … Að spila með slíkri goðsögn er örugglega ekki auðvelt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI OPNAR VINNUSTOFU Í SKIPHOLTI Sigurdís Harpa Arnarsdóttir myndlistarmaður opnar vinnustofu að Skipholti 9 í Reykjavík í dag. Af því tilefni býður Sigurdís áhugafólki um myndlist velkomið til að fagna með sér frá klukkan 16 til 18. Meðal annars munu þeir félagar í GRM (Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas) stíga á stokk og taka nokkur lög.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.