Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 42
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR30
Tónlist ★★★★★
Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Hörpu
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafs-
son. Stjórnandi: Vladimír Ashke-
nazy. Einsöngvarar: Christiane
Oelze, Sesselja Kristjánsdóttir,
Kolbeinn Jón Ketilsson og Bjarni
Thor Kristinsson ásamt Óperu-
kórnum í Reykjavík, Hljómeyki og
Kór Áskirkju.
Ég var í fimmtugsafmæli um dag-
inn. Eitt af skemmtiatriðunum var
síðasti kafli níundu sinfóníunnar
eftir Beethoven. Flytjendur voru
tveir, gítarleikari og söngvari. Í
sjálfu sér var flutningurinn hrylli-
legur, en hann átti að vera brandari,
og sem slíkur var hann frábær.
Mér datt þetta í hug á fyrstu
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Hörpu á miðvikudags-
kvöldið. Þar var líka níunda sinfóní-
an á dagskránni. Sinfónían hefur
margoft verið leikin í Háskólabíói.
Munurinn á hljómburðinum þar og
í Hörpu er sláandi. Að flytja verk-
ið í bíósal sem hentar engan veginn
til tónleika er í rauninni hálfgerð-
ur brandari. Að Sinfóníuhljómsveit
Íslands hafi þurft að vera þar árum
saman er þó langt frá því að vera
fyndið.
Það var ótrúleg upplifun að
koma í Hörpu. Húsið er einstaklega
fallegt að utan, en það virkar miklu
stærra fyrir innan. Og stóri salur-
inn, Eldborg, er ægifagur. Allur
eldrauður og með mörgum svölum,
gríðarlega hátt til lofts. Bara að
horfa á herlegheitin er upplifun út
af fyrir sig.
Fagnaðarlæti brutust út þegar
Steinunn Birna Ragnarsdóttir tón-
listarstjóri flutti stutt ávarp og
bauð hljómsveitinni HEIM. Hljóm-
sveitin gekk þá í salinn og áheyr-
endur stóðu upp fyrir henni. Það
var gleði í loftinu.
Vladimir Ashkenazy steig því
næst fram á sviðið, en hann var
stjórnandi hljómsveitarinnar að
þessu sinni. Það var viðeigandi.
Ashkenazy var á sínum tíma
ótrúleg lyftistöng fyrir íslenskt
tónlistar líf. Hann var einn af stofn-
endum Listahátíðar í Reykjavík árið
1970. Hann var líka hvata maður að
því að fá hingað nokkrar af skær-
ustu stjörnum tónlistarheimsins til
tónleikahalds. Svo hefur hann bar-
ist fyrir tónlistar húsi á Íslandi ára-
tugum saman.
Fyrst á dagskrá var stutt, fjör-
legt verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son sem var samið sérstaklega fyrir
tilefnið og heitir Velkomin Harpa.
Það byrjaði á lágum en hröðum
tónahendingum sem smátt og smátt
sóttu í sig veðrið. Maður heyrði
strax að hljómburðurinn var fínn.
Sérstaklega sláandi var hljómurinn
í sellóunum. Allt í einu HEYRÐI
maður sellóhljóm! Djúpan og magn-
aðan, og einstaklega áferðarfagran.
Í sjálfu sér er verk Þorkels ekki
endilega með því skáldlegasta sem
hann hefur samið. En sem upphitun
fyrir hljómsveitina og fyrir áheyr-
endur smellpassaði það inn í dag-
skrána.
Næst á dagskrá var píanó-
konsertinn eftir Edvard Grieg.
Þessi eini, sem lengi hefur verið
einn af vinsælustu píanókonsertum
tónbókmenntanna. Laglínurnar eru
grípandi, einleiksrullan glæsileg
og stemningin full af rómantískum
andstæðum.
Einleikari var Víkingur Heiðar
Ólafsson. Ég verð að segja að ég
dáðist að honum, bara fyrir að vera
þarna. Það er eitt að koma fram sem
einleikari á tónleikum sem marka
nýja tíma í íslenskri tónlistar sögu.
En það er annað að koma fram sem
píanóleikari þar sem Ashkenazy
stjórnar. Ashkenazy var á sínum
tíma einn af mestu píanóleikurum
heims. Að spila með slíkri goðsögn
er örugglega ekki auðvelt.
En Víkingur stóð fyllilega undir
væntingum. Vissulega voru öfgarn-
ar í túlkuninni við þol mörkin. Inn-
hverf draumastemningin var hrein-
lega úti í geimnum, og ofsalegur
hraðinn í lokakaflanum eins og í
formúlukappakstri. En það hæfði
þessari tónlist. Grieg konsertinn er
útjaskaður en hann hljómaði fersk-
ur í meðförum Víkings. Og tækni-
lega séð var hann svo glæsilegur að
maður naut hvers tóns.
Hér heyrði maður betur hversu
góður hljómburðurinn í Hörpu er.
Styrkleikabreiddin í tónlistinni
fékk að njóta sín, allt frá örveikum
blæbrigðum upp í ofsafengnar til-
finningasprengjur. Tærleikinn í
tré blásurunum var líka aðdáunar-
verður, pákurnar magnaðar og
sellóin unaðsleg.
Auðvitað þarf að huga að ein-
hverjum stillingaratriðum. Hugsan-
lega hefði skýrleikinn í flyglinum
mátt vera meiri, hver svo sem
ástæðan var. Mögulega hefði hljóm-
urinn í fiðlunum líka mátt vera
þykkari og safaríkari. En þetta er
væntanlega nokkuð sem kemur
með meiri reynslu af tónleikahaldi
í Hörpu.
Lokaverkið á dagskránni var
áðurnefnd níunda sinfónía Beet-
hovens. Fyrstu þrír kaflarnir
voru stórbrotnir, stígandin hæg
en örugg undir markvissri stjórn
Ashkenazys. Í fjórða kaflanum
byrjaði svo söngurinn, og þá hófst
fjörið fyrir alvöru.
Að vísu hafði ég efasemdir
um frammistöðu Bjarna Thors
Kristins sonar bassasöngvara.
Bjarni Thor hefur magnaða rödd
en einsöngskaflinn hans virkaði
eins og raddhlutverkið væri of hátt
fyrir hann.
Raddlega séð var tenórinn Kol-
beinn Jón Ketilsson mun meira
sannfærandi. Einsöngurinn hefði
samt þurft að vera kröftugri.
Rytmískar áherslur voru ekki nógu
snarpar – þetta er svo mikill lykil-
staður í tónverkinu, alger vendi-
punktur. Krafturinn verður einfald-
lega að vera yfirgengilegur.
Minna mæðir á kvenröddunum
í verkinu. Hér voru það þær Sess-
elja Kristjánsdóttir og Christiane
Oelze sem sungu. Þær voru báðar
frábærar. Og það heyrðist vel í
þeim þrátt fyrir að hljómsveitin
spilaði með allt í botni. Eitt af því
sem var óþolandi við Háskóla-
bíó var einmitt hve illa heyrðist í
söngvurum á sinfóníutónleikum.
Tilkomumikið var að sjá þrjá
kóra fyrir aftan sviðið, Óperu-
kórinn í Reykjavík, Hljómeyki
og Kór Áskirkju. Og söngur kór-
anna var æðisgenginn í mögnuð-
um hljómburðinum! Það var eitt-
hvað það flottasta sem maður hefur
heyrt á lifandi tónleikum á Íslandi.
Ég held að það sé ljóst að Harpa
er vel heppnað tónleikahús, að
minnsta kosti stóri salurinn. Ég
óska okkur öllum til hamingju með
stórkostlegan áfanga í menningar-
lífinu á Íslandi.
Jónas Sen
Niðurstaða: Fyrstu tónleikar Sinfóní-
unnar í Hõrpu lofuðu góðu. Tónlistar-
flutningurinn var magnaður og hljóm-
burðurinn flottur.
30
menning@frettabladid.is
FAGURT ER
Í HÖRPU
SNERT HÖRPU MÍNA … „Það er eitt að koma fram sem einleikari á tónleikum sem marka nýja tíma í íslenskri tónlistarsögu,“
skrifar Jónas Sen. „En það er annað að koma fram sem píanóleikari þar sem Ashkenazy stjórnar. … Að spila með slíkri goðsögn
er örugglega ekki auðvelt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
OPNAR VINNUSTOFU Í SKIPHOLTI Sigurdís Harpa Arnarsdóttir myndlistarmaður opnar vinnustofu að Skipholti
9 í Reykjavík í dag. Af því tilefni býður Sigurdís áhugafólki um myndlist velkomið til að fagna með sér frá klukkan 16 til 18.
Meðal annars munu þeir félagar í GRM (Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas) stíga á stokk og taka nokkur lög.