Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 4
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR4 KJARAMÁL Aðilar vinnumarkaðar- ins undirrituðu í gær kjarasamning til þriggja ára sem munu tryggja félagsmönnum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) almennar launahækk- anir upp á 4,25 prósent um næstu mánaðamót og 3,5 og 3,25 prósenta hækkanir á næstu tveimur árum. Samningarnir eru þó háðir ýmsum fyrirvörum um þróun mála. Fyrir utan fyrrnefndar hækkanir hækka lægstu mánaðarlaun fyrir fulla vinnu upp í 204 þúsund á samningstímanum og launþegar í fullu starfi fá 50 þúsund króna ein- greiðslu um næstu mánaða mót. Við undirskriftina í gær féllust forvígismenn ASÍ og Samtaka atvinnu- lífsins (SA) í faðma enda lauk með því einhverri hörðustu samninga- rimmu síðari ára. Samningaferlið hefur staðið frá síðasta hausti og var farið að hilla undir víðtækar verkfallsaðgerðir. Kröfur SA um að framtíðarskipulag sjávarútvegs- mála yrði útkljáð voru einn af helstu ásteytingarsteinunum viðræðnanna, en í yfirlýsingu stjórnvalda kom fram að frumvarp um stjórn fisk- veiðimála yrði kynnt hagsmuna- aðilum í sjávarútvegi áður en það yrði lagt fram á þingi. Sérstök endurskoðunarákvæði eru í samningunum, en þau lúta að því að kaupmáttur aukist, verð- lag haldist stöðugt, gengi krónunn- ar styrkist og stjórnvöld standi við fyrirheit um aðgerðir í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið að undirskrift samninga væri léttir. „Það er mikið fagnaðarefni að ná að ljúka þessu og að mínu mati eru álitlegir kjarasamningar hér í höfn. Ekki bara út af launahækkunum, heldur er hér komið samkomulag um uppbyggingu næstu þrjú árin.“ Gylfi telur að of mikið hafi verið gert úr hugsan- legum áhrifum launa- hækkana á verðlag og bendir á að í þeim felist talsverð innspýting fyrir hagkerfið. Vilmundur Jósefsson, forseti SA, geldur var- hug við þeim hækkunum sem eru ekki í samræmi við stefnu samtakanna. Kostnaðarauki atvinnu- rekenda á samningstím- anum er áætlaður um 12,6 prósent. „Þetta er svolítið glanna- legt, en ég vona að þetta skili sér þó að maður beri ákveðinn kvíðboga í brjósti. Þetta er hins vegar niður- staðan og við leggjum tvímælalaust til að samningarnir verði samþykkt- ir.“ Varðandi sjávarútvegsmálin segir Vilmundur aðspurður að SA sé sátt við útspil stjórnvalda. „Við látum það nægja til að ná samn- ingum. Við vildum fá að koma að efnislegri umræðu um málið og að sjávar útveginum yrðu sköpuð góð rekstrar skilyrði. Það er hvort tveggja inni í myndinni hjá ríkis- stjórninni og við ætlumst til að hún standi fullkomlega við það.“ Samningarnir verða nú lagð- ir fyrir aðildarfélög ASÍ og SA og má sennilega vænta niðurstöðu um miðjan mánuð. thorgils@frettabladid.is Nöfn Eysteins Þórðarsonar og Hró- bjarts Arnfinnssonar vantaði í upp- talningu yfir þá sem lentu í 2. til 4. sæti í myndasögukeppni Ókeibæ-kur. Þeir sömdu verkið Jötunmóð ásamt Magnúsi Ingvari Ágústssyni. LEIÐRÉTTING VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 22° 21° 17° 22° 25° 14° 14° 20° 21° 23° 22° 30° 14° 24° 16° 10°Á MORGUN 4-7 m/s en hvassara með S-ströndinni.. SUNNUDAGUR Hæg NA-læg átt en hvassara vestantil. 12 8 10 9 10 7 6 7 9 9 17 7 7 4 7 9 6 11 9 4 10 7 12 12 9 10 6 12 11 13 6 5 VOR Í LOFTI Í dag og á morgun mun blása nokkuð við S-ströndina en annars verður vind- ur fremur hægur um helgina. Í dag og morgun má bú- ast við björtu veðri norðantil en á sunnudaginn snýst í NA-átt. Þá léttir til sunnanlands en þykknar heldur upp fyrir norðan og austan. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Heimsmarkaðsverð á hráolíu féll, þegar mest var, um 8,2 prósent á bandarískum fjár- málamörkuðum í gær í kjölfar gengisstyrkingar Bandaríkja- dals. Olíuverðið fór undir hundrað dali á tunnu og hefur það ekki verið lægra síðan í mars. Hátt olíuverð hefur dregið mjög úr eftir spurn eftir eldsneyti vestra, að sögn Bloomberg-fréttastof- unnar. Svipuð þróun var á verði ann- arrar hrávöru, svo sem silfurs, sem lækkaði um 8,4 prósent. Silfur verðið hefur nú lækkað um tæp þrjátíu prósent frá í apríl. - jab Hrávöruverð lækkar mikið: Olían á svipuðu róli og í mars DÆLT Á BÍLINN Neytendur hafa hert takið um budduna eftir því sem verð á olíu og eldsneyti hefur hækkað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALÞINGI Beiðni Björgólfs Thors Björgólfssonar athafnamanns um að fá að birta athugasemdir við skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is á vefsvæði þingsins hefur verið hafnað. „Heimasíða Alþingis er ekki bloggsíða heldur upplýsingasíða fyrir þjóðþingið,“ segir Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Björgólfur Thor hefur birt marg- víslegar athugasemdir við efni skýrslunnar á vef sínum. Hann óskaði eftir því að fá þær athuga- semdir birtar á vef Alþingis, þar sem skýrslan er vistuð. Ásta segir ekki hafa komið til greina að birta athugasemdir við skýrsl- una á vef þingsins, eða standa fyrir umræðum um hana á þeim vett- vangi. Vefútgáfa skýrslunnar sé aðalútgáfa skýrslunnar og endanleg rit rannsóknanefndarinnar. Nóg sé af öðrum síðum á net- inu til að ræða efni hennar og gera athugasemdir. „Björgólfur hefur þegar birt athugasemdirnar á sinni vefsíðu, svo það er búið að birta þær,“ segir Ásta. „Vegna þessa get ég ekki fall- ist á þetta erindi hans.“ Björgólfur Thor er sá eini sem óskað hefur eftir því við Alþingi að fá að birta athugasemdir við skýrsl- una á vef þingsins, segir Ásta. - bj Forseti Alþingis hafnar því að birta athugasemdir Björgólfs Thors á vef Alþingis: Vefur Alþingis er ekki bloggsíða ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFSSON NOREGUR Fyrrverandi nemanda í barnaskóla í Kristiansand í Nor- egi hafa verið dæmdar skaða- bætur fyrir áralangt einelti sem hann mátti þola á skólagöngu. Bæjaryfirvöld í Kristiansand þurfa nú að greiða manninum, sem er þrítugur í dag, rúmar 27 milljónir íslenskra króna. Maður- inn greindist með áfallastreitu- röskun eftir andlegt og líkamlegt ofbeldi sem yfir hann gekk og var það niðurstaða réttarins að skólayfirvöld hefðu getað gripið inn í. - þj Dómsmál í Noregi: Fær skaðabætur vegna eineltis Fundu 30 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í fyrrakvöld. Við húsleit fundust um þrjátíu kannabisplöntur en á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Karl á fimmtugsaldri var yfirheyrður og játaði hann aðild sína að málinu. LÖGREGLUFRÉTTIR Samningar til þriggja ára háðir ýmsum fyrirvörum Þriggja ára samningar SA og ASÍ voru undirritaðir í gær. Kveða meðal annars á um eingreiðslu, almennar launahækkanir og 200 þúsund króna lágmarkslaun. Fyrirvarar settir um jákvæða þróun efnahagsmála. SAMNINGUM FAGNAÐ Í samræmi við hefðir voru vöfflur í boði í húsakynnum Ríkissáttasemjara þegar kjarasamningar voru í höfn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Almenn launahækkun: 2011 4,25% 2012 3,50% 2013 3,25% ■ Lágmarkslaun: 2011 182.000 2012 193.000 2013 204.000 ■ Aukagreiðslur: Eingreiðsla 1. júní 50.000 Álag á orlofsuppbót 2011 10.000 Álag á desemberuppbót 2011 15.000 ■ Jöfnun lífeyrisréttinda Fyrir árslok 2012 verði komin niðurstaða um samræmt og sjálfbært lífeyriskerfi alls launafólks á vinnumarkaði. Helstu atriði kjarasamninga Eftirfarandi fyrirvarar verða metnir í upphafi árs 2012 og 2013. Standist þeir ekki munu aðilar funda um aðgerðir en náist ekki samkomulag munu samningarnir falla úr gildi. 1. Kaupmáttur launa aukist samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands. 2. Verðlag haldist stöðugt á samningstímanum og að verðbólga verði innan við 2,5% í desember 2012. 3. Að gengi krónunnar styrkist marktækt frá gildistöku samningsins til loka árs 2011 og að gengisvísitala íslensku krónunnar verði innan við gildið190 í desember 2012. 4. Að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu-, og félagsmálum. Fyrirvarar í kjarasamningum ... að mínu mati eru álit- legir kjara- samningar hér í höfn. GYLFI ARNBJÖRNSSON FORMAÐUR ASÍ GENGIÐ 05.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,1827 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,20 111,74 183,48 184,38 164,75 165,67 22,09 22,22 20,767 20,889 18,165 18,271 1,3952 1,4034 180,27 181,35 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.